Umhverfismat virkjunar Arctic Hydro er hafið

Tvær stíflur munu rísa og tvö stöðu­vötn fara undir uppi­stöðu­lón verði Geit­dals­ár­virkjun Arctic Hydro að veru­leika á Hrauna­svæði Aust­ur­lands. Íslenska ríkið setti nýlega fram kröfu um þjóð­lendu á svæð­inu.

Fossaröð í Geitdalsá í Leirudal skammt neðan við áformað miðlunarlón. Rennsli í fossunum mun skerðast með tilkomu virkjunar.
Fossaröð í Geit­dalsá í Leirudal skammt neðan við áformað miðl­un­ar­lón. Rennsli í foss­unum mun skerð­ast með til­komu virkj­unar. Mynd: Andrés Skúlason

Geit­dalsá á upp­tök sín í lækjum og tjörnum á hálend­inu upp af Ham­ars­dal og Fossár­dal vestan Ódáða­vatna, í jaðri svæðis sem nefn­ist Hraun. Hún rennur til norð­urs, á köflum í gegnum gljúfur og í fossa­röðum, og á þess­ari leið falla í hana margar þverár og lækir. Hún er því sann­kölluð dragá: Getur verið vatns­mikil í rign­inga­tíð og leys­ingum en vatns­minni í þurrkum.

[links]Mest af vatni Geit­dalsár kemur úr Leiru­dalsá, á sem rennur í gegnum nokkur stöðu­vötn á leið sinni úr vestri. Tvö þess­ara vatna, sem njóta verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum, munu fara undir miðl­un­ar­lón verði áform fyr­ir­tæk­is­ins Geit­dals­ár­virkj­unar ehf. að veru­leika.

Tvær stíflur yrðu reistar, önnur við miðl­un­ar­lón í Leirudal, lón sem yrði í rúm­lega 700 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og um þrír fer­kíló­metrar að stærð. Stíflan sú yrði 1 kíló­metri að lengd og mesta hæð hennar 18 metrar. Önnur stífla vegna inn­takslóns yrði gerð í far­vegi Geit­dalsár. Hún er áætluð um 300 metrar að lengd og mesta hæð hennar yrði 32 metrar.

[adspot]

Hrauna­svæðið nær yfir víð­lent hálendi allt frá Eyja­bökkum við Snæfell austur yfir vatna­skil, um inn­an­verðan Geitdal og Háups að fjall­veg­inum yfir Öxi og niður í drög suð­ur­fjarða Aust­ur­lands.

Nú þegar hefur verið virkjað mikið á vatna­sviði Hrauna­svæðis eða allt frá Hálslóni og sunnan við Snæfell þar sem svo­kall­aða Hrauna­veitu er að finna með fjórum mis­stórum uppi­stöðu­lónum.

Síðustu lítt rösk­uðu víð­erni Hrauna­svæðis eru hins­vegar utar á hraunum þar sem Geit­dals­ár­virkjun er einmitt fyr­ir­huguð. Enn er unnið að frum­hönnun virkj­un­ar­innar en fyrsta skrefið í mati á umhverf­is­á­hrifum hefur nú verið tekið með aug­lýs­ingu mats­á­ætl­unar fram­kvæmd­ar­innar. Virkj­unin yrði 9,9 MW, rétt undir 10 MW mörk­unum sem hefði þýtt að kost­ur­inn yrði að fara í ferli ramma­á­ætl­unar.

Virkj­anir af þess­ari stærð­argráðu hafa verið kall­aðar „smá­virkj­anir“ en geta þó vissu­lega haft umfangs­mikil umhverf­is­á­hrif. Allar breyta þær ásýnd lands og hafa með ýmsum hætti áhrif á líf­ríkð. Að minnsta kosti fimm slíkar eru nú á teikni­borð­inu á Norð­austur- og Aust­ur­landi.

Landið sem Geit­dals­ár­virkjun er fyr­ir­huguð á er ann­ars vegar í eigu Múla­þings, hins nýstofn­aða sveit­ar­fé­lags á Aust­ur­landi, og hins vegar íslenska rík­is­ins. Samið hefur verið við báða aðila um rann­sóknar- og nýt­ing­ar­leyfi.

Krafa um þjóðlendu

Skýrsla Geit­dals­ár­virkj­unar ehf. um mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar var gerð í febr­úar en í lok jan­úar hafði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra afhent óbyggða­nefnd kröfur um þjóð­lendur á Aust­fjörðum. Og landið sem virkj­unin er áformuð á er innan þess svæðis. Óbyggða­nefnd kallar nú eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga önd­verðra hags­muna að gæta. Sagan segir okkur að það getur tekið dágóðan tíma, nokkur ár, að fá úr þjóð­lendu­málum skorið enda fara þau oft og tíðum fyrir dóm­stóla. Óbyggða­nefnd hefur þegar lokið umfjöllun um rúm­lega 90 pró­sent af meg­in­landi Íslands og af þeim hluta mið­há­lend­is­ins sem nefndin hefur lokið með­ferð á eru tæp­lega 86 pró­sent þjóð­lendur en rúm­lega 14 pró­sent eign­ar­lönd. Hluti fram­kvæmda­svæðis Geit­dals­ár­virkj­unar er innan mið­há­lend­is­lín­unnar.

Vék vegna fjölskyldutengsla

Geit­dals­ár­virkjun ehf. er alfarið í eigu Arctic Hydro hf. Það félag er nú skráð í eigu sex aðila og á Quadran Iceland ehf. (nú Qair Iceland) sem áformar fjöl­mörg vind­orku­ver vítt og breitt um landið, stærstan hlut eða 38 pró­sent. Stjórn­ar­for­maður þess er Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í tíð Geirs H. Haarde.

Adira Hydro á 23 pró­sent í Arctic Hydro og Snæból, fjár­fest­inga­fé­lag Stein­unnar Jóns­dóttur og Finns Reyrs Stef­áns­sonar, á 18 pró­sent.

Tíu pró­senta hlutur Arctic Hydro er svo í eigu Hængs ehf. Það félag er að fullu í eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar, frænda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Þegar samið var um vatns­rétt­indi og land­nýt­ingu innan rík­is­jarð­ar­innar Þingmúla vegna Geit­dalárs­virkj­unar fyrir tveimur árum vék Bjarni sæti í mál­inu vegna fjöl­skyldu­tengsl­anna. Miðl­un­ar­lónið í Leirudal er áformað á landi rík­is­ins en önnur virkj­un­ar­mann­virki, m.a. þrýsti­pípa og stöðv­ar­hús, eru í landi Múla­þings (áður Fljóts­dals­hér­aðs).

Skapa „raunveruleg verðmæti“

Arctic Hydro „hefur sér­hæft sig í þróun virkj­un­ar­kosta,“ segir í mats­á­ætlun vegna Geit­dals­ár­virkj­unar. „Fyr­ir­tækið leitar uppi og stendur að frum­hönnum, frek­ari útfærslum og fram­kvæmdum mögu­legra virkj­un­ar­kosta, hvort heldur sem slíkir kostir hafa áður komið til skoð­unar af hálfu ann­arra eða þá að félagið þróar áður óþekkta virkj­ana­kosti frá grunni. Fyr­ir­huguð áform um virkjun Geit­dalsár eru til komin sem áður óþekktur virkj­un­ar­kostur og fellur að lang­tíma­mark­miðum Arctic Hydro um að skapa raun­veru­leg verð­mæti til lengri tíma litið fyrir alla hlut­að­eig­andi aðila.“

Í mats­á­ætlun virkj­un­ar­innar kemur fram að fram­kvæmdin myndi hafa áhrif á far­veg Geit­dalsár á tólf kíló­metra kafla, Leir­dalsá á þriggja kíló­metra kafla og Miðá á eins km kafla. Fleiri ár yrðu undir, því til stendur að veita einni ónefndri á til við­bótar í skurði í miðl­un­ar­lónið.

Áhrif­anna mun því gæta allt frá miðl­un­ar­lón­inu í Leirudal, niður í inn­takslónið í Geitdal og áfram að stöðv­ar­húsi. Vatninu yrði veitt frá inn­takslón­inu og niður í stöðv­ar­húsið í gegnum 6,6 kíló­metra langa nið­ur­grafna þrýsti­pípu.

Í Leiru­dalslóni yrði vatn geymt fyrir tíma­bilið des­em­ber og út mars þegar nátt­úru­legt rennsli er í lág­marki. Í með­al­ári yrði safnað í lónið frá lokum apríl og út allan júlí­mánuð en þá yrði að jafn­aði byrjað að hleypa úr því en þó í litlu magni út nóv­em­ber. Á tíma­bil­inu des­em­ber og út mars yrði hleypt mest úr því.

Þetta þýðir að með til­komu Leiru­dals­stíflu myndi rennsli á milli hennar og inn­takslóns skerð­ast frá lokum apríl og út allan júlí. Skerð­ingin yrði mis­mikil eftir árs­tíðum, minnst á sumrin en mest á vet­urna. „Gróflega áætlað skerð­ist rennslið á bil­inu 50-80% yfir sum­arið,“ segir í mats­á­ætlun Geit­dals­ár­virkj­unar og um 80 pró­sent á vet­urna.

Rennsl­is­breyt­inga yrði þó vart alla leið niður að Lag­ar­fljóti, þangað sem Geit­dalsá rennur að lokum, þá sam­einuð öðrum í Grímsá. Á þetta benti Veiði­mála­stofnun m.a. í umsögn sinni um rann­sókn­ar­leyfi Orku­stofn­unar vegna virkj­un­ar­innar árið 2016. Sagði stofn­unin að virkj­unin myndi hafa áhrif á rennsl­is­hætti og líf­ríki Geit­dalsár, þveráa hennar sem og rennsli Grímsár.

Í umhverf­is­mats­skýrslu, sem er næsta skrefið í mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda, verður m.a. lagt mat á magn og útbreiðslu fiski­teg­unda í þeim ám, vötnum og tjörnum sem yrðu fyrir áhrifum og t.d. raf­veitt á lík­legum búsvæðum og upp­eld­is­stöðvum laxa­seiða. Þá verður að rann­saka áhrif á fugla en fram­kvæmdin gæti raskað varp­stöðvum þeirra auk þess sem skert vatns­rennsli kann að hafa áhrif á fæðu­öflun. Líkt og lög gera ráð fyrir verða fleiri þættir metnir, m.a. mögu­leg áhrif á sér­stakar jarð­mynd­anir, röskun á gróðri og á högum hrein­dýra sem halda til á þessum slóðum.

Mats­á­ætlun Geit­dals­ár­virkj­unar er hægt að nálg­ast á vef Skipu­lags­stofn­unar. Allir geta veitt umsögn um hana og skulu þær ber­ast stofn­un­inni eigi síðar en 5. apríl næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arctichydro

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár