Sveitarfélög á Austurlandi vilja svör um virkjanakosti

Byggða­ráð Múla­þings og bæj­ar­stjórn Fjarða­byggðar vilja fá úr því skorið hvaða virkj­ana­kosti í lands­hlut­anum eigi að nýta. Lýst er yfir áhyggjum af þeirri stöðu sem ramma­á­ætlun er komin í.

Hamarsvirkjun Arctic Hydro yrði í Hamarsdal í Djúpavogshreppi.
Ham­ar­s­virkjun Arctic Hydro yrði í Ham­ars­dal í Djúpa­vogs­hreppi. Mynd: Andrés Skúlason

Eftir rúm­lega fimm ára tafir á afgreiðslu næsta áfanga ramma­á­ætl­unar, þess þriðja, er nokk­urrar óþreyju farið að gæta hjá sveit­ar­fé­lögum á Aust­ur­landi ef marka má bók­anir sem byggða­ráð Múla­þings ann­ars vegar og bæj­ar­stjórn Fjarða­byggðar hins vegar gerðu á fund­inum sínum í síð­ustu viku. Tveir virkj­ana­kostir á Aust­ur­landi eru í bið­flokki til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem báðir voru lagðir fram af Orku­stofnun sjálfri: Hrauna­virkjun til Beru­fjarðar (126 MW) og Hrauna­virkjun til Suð­ur­dals í Fljóts­dal (115 MW).

Það er hins vegar breytt útfærsla ann­arrar þeirra, Ham­ar­s­virkjun, sem er nú, öllum þeim árum eftir að hinar til­lög­urnar voru fyrst lagðar fram, uppi á teikni­borð­inu hjá fyr­ir­tæk­inu Arctic Hydro. Virkj­unin yrði í Ham­ars­firði í Djúpa­vogs­hreppi og upp­sett afl hennar 60 MW. Að auki er áhugi á að reisa tölu­vert margar smærri virkj­anir að afli á svæð­inu.

[adspot]

Í bókun sem sam­þykkt var á fundi bæj­ar­stjórnar Fjarða­byggðar í síð­ustu viku er lögð á það þung áhersla að unnið verði hratt að skil­grein­ingu og þróun nýrra kosta í raf­orku­fram­leiðslu. Þá verði ferli ramma­á­ætl­unar skýrt og hvaða orku­kostir séu til nýt­ingar. „Mik­il­vægt er að hafa hraðar hendur til að tryggja næga orku­öflun og tefja ekki þau orku­skipti sem völ er á, þannig að hægt verði að mæta þörfum inn­lends iðn­aðar, svo sem fiski­mjöls­verk­smiðja, sem og íbúa lands­ins.“ Þá er það ekki síður mik­il­vægt gagn­vart fram­leiðslu á raf­elds­neyti, segir í bókunn­inni, sem sé mik­il­vægur þáttur í orku­skiptum og liður í auk­inni verð­mæta- og atvinnu­sköpun. „Bæj­ar­stjórn Fjarða­byggðar skorar því á stjórn­völd og stofn­anir rík­is­ins að leggj­ast á eitt til að skapa áður­nefndar aðstæður, gera þannig Íslandi kleift sem fyrst að ljúka orku­skiptum og um leið efla hag lands og þjóðar.“

[links]Á fundi byggð­ar­ráðs hins nýja sveit­ar­fé­lags Múla­þings lá þann 18. jan­úar fyrir erindi frá Þresti Jónssyni, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, sem vill að sveit­ar­fé­lagið beiti sér fyrir því að af fram­kvæmdum við Ham­ar­s­virkjun verði sem fyrst enda að hans mati hags­munir Múla­þings af því umtals­verðir. Á fund­inum lagði Þröstur fram til­lögu að bókun um málið þar sem sagði:

„Byggða­ráð Múla­þings sam­þykkir að beina því til sveit­ar­stjórnar að hún sendi ályktun til Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem því verði komið á fram­færi að sveit­ar­stjórn vilji að úr því verði skorið sem fyrst hvort fáist fram­kvæmda­leyfi til að reisa allt að 60MW virkjun í Ham­ars­dal, svo nefnda Ham­ar­s­virkjun. Því verði beint til ráðu­neyt­is­ins að hraða því ferli, sem mest má vera, að skorið verði úr um hvort Ham­ar­s­virkjun kom­ist í orku­nýt­ing­ar­flokk.“

Ekki var þessi bókun sam­þykkt en breyt­inga­til­laga um málið var það hins vegar. Í henni segir:

„Byggða­ráð Múla­þings lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri flóknu stöðu sem uppi er varð­andi ferli ramma­á­ætl­unar. Ferlinu var m.a. ætlað að greiða úr ágrein­ingi í sam­fé­lag­inu um virkj­ana­mál en stöðugar og óásætt­an­legar tafir hafa orðið til þess að mikil óvissa er uppi varð­andi mála­flokk­inn. Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í orku­málum er afar mik­il­vægt að ferlið allt verði tekið til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar með það að mark­miði að sem fyrst liggi fyrir hvaða virkj­ana­kostir eru færir og hverjir ekki. Tækifæri í atvinnu­lífi í Múla­þingi og á Aust­ur­landi öllu byggir á því að afhend­ing orku sé trygg og fram­boð full­nægj­andi. Byggða­ráð leggur því áherslu á að sem fyrst verði úr því skorið hvaða virkj­ana­kostir í sveit­ar­fé­lag­inu verða í nýt­ing­ar­flokki og beinir því til sveit­ar­stjórnar að sveit­ar­stjóra verði falið að koma þeim áherslum á fram­færi við umhverf­is­ráðu­neytið.“

Ham­ar­s­virkjun er hins vegar ekki sem slík í til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem bráð­lega á að leggja fyrir Alþingi í fjórða sinn á rúm­lega fimm árum, af fjórða umhverf­is­ráð­herr­anum. Hún er hins vegar meðal þeirra virkj­ana­kosta sem verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga áætl­un­ar­innar fékk til umfjöll­unar og meðal þeirra fáu kosta sem lagt var mat á. Nið­ur­staðan var sú að setja Ham­ar­s­virkjun í bið­flokk. Þess ber þó að geta að verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga vannst ekki tími vegna marg­vís­legra tafa, m.a. við afgreiðslu 3. áfanga og afhend­ingu gagna frá Orku­stofnun, til að leggja fram loka­til­lögu heldur aðeins drög að til­lögu. Enn er mikið kynn­ing­ar­ferli fyrir höndum sam­kvæmt núgild­andi lögum um ramma­á­ætlun. Rík­is­stjórnin stefnir hins vegar að gagn­gerri end­ur­skoðun lag­anna.

Ham­ar­s­virkjun er í hópi að minnsta kosti átta virkj­ana sem fyr­ir­hug­aðar eru á vatna­sviði Hrauna­svæð­is­ins á Aust­ur­landi. Flestar hug­mynd­irnar gera ráð fyrir innan við 10 MW virkj­unum og því þurfa þær ekki að fara í mats­ferli ramma­á­ætl­unar. Þrjár þeirra eru á vegum Arctic Hydro, félags sem er í 40 pró­sent eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar.

Hamarsá á upp­tök sín í smá­vötnum og tjörnum á Hraunum og er Ham­ars­vatn, norður af Þránd­ar­jökli, stærst. Yrði Ham­ar­s­virkjun að veru­leika yrði vatni miðlað á tveimur stöðum, ann­ars vegar í Ham­ars­vatni og svo í inn­takslóni í Vest­ur­bót. Við Ham­ars­vatn yrði gerð þriggja kíló­metra löng stífla, mest 15 metra há. Vatninu yrði miðlað í inn­takslónið neðar í far­vegi árinnar. Þar yrði reist önnur stífla, tæp­lega kíló­metri á lengd. Hún yrði mest fimm­tíu metrar á hæð.

Skert og stýrt rennsli í fossum

Frá inn­takslóni yrði vatni veitt um aðrennsl­is­göng að Ytri-Þrándará. Gert er ráð fyrir að veita ánni Morsa og Ytri-Þrándará inn í aðrennsl­is­göngin og einnig er gert ráð fyrir því að veita efsta hluta af Leir­dalsá í Ytri-Þrándará með veitu­skurði. Stöðv­ar­hús er sam­kvæmt áformunum fyr­ir­hugað inni í Afrétt­ar­fjalli, um 2,3 kíló­metra frá Hamarsá.

Samkvæmt skýrslu Arctic Hydro um hug­mynd­ina er talið að helstu umhverf­is­á­hrif fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar yrðu á fossa sem njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. „Í Hamarsá eru margir fossar og verður stýrt rennsli á fossum frá Ham­ars­vatni að inn­takslóni og skert rennsli í fossum frá inn­takslóni að frá­rennsl­is­göngum. Einnig verður skert rennsli í fossum í Morsa, Ytri-Þrándará og Leir­dalsá.“

Fyrirheit í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar

Virkj­ana­hug­myndir á Hrauna­svæð­inu eru langt í frá nýjar af nál­inni. Þær voru fyr­ir­hug­aðar sem hluti af risa­vax­inni Hrauna- og Jök­ulsár­veitu við upp­haf ald­ar­innar. Sú veita tók m.a. til Kára­hnjúka, Eyja­bakka og vatns­falla á Hrauna­svæð­inu.

„Í aðdrag­anda Kára­hnjúka­virkj­unar og aðliggj­andi Hrauna­veitna voru gefin fyr­ir­heit um að það þyrfti ekki framar að virkja meir fyrir austan. Nú, aðeins 15 árum síðar, er hins vegar hafið nýtt virkj­ana­á­hlaup á rest­ina af ósnortnum víð­ernum á hálendi Aust­ur­lands og nú undir fölsuðum for­merkjum „smá­virkj­ana“ 9,9 MW,“ sagði í bréfi frá Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Aust­ur­lands og Land­vernd sem sent til for­sætis-, fjár­mála- og umhverf­is­ráð­herra fyrir tæpum tveimur árum.

[adspot]

Kjarninn hefur und­an­farið fjallað um til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar í ljósi þess að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er að finna lof­orð um að lokið verði við afgreiðslu hans. Því er hins vegar bætt við, í sömu setn­ingu, að kostum í bið­flokki verði fjölgað. Frekari útskýr­ingar hafa stjórn­völd ekki gefið á hvað standi til og spurn­ingum Kjarnans til umhverf­is­ráð­herra hefur enn ekki verið svarað.

Vegna óvissunnar hafa vaknað spurn­ingar um hvernig afgreiðsla til­lög­unnar verði. Að fjölga kostum í bið­flokki getur aðeins þýtt tvennt: Að kostir verði færðir úr annað hvort vernd­ar­flokki eða nýt­ing­ar­flokki í þann flokk. Nema að hvort tveggja sé. Hægt er að hreyfa við flokk­un­inni svo lengi sem Orku­stofnun hefur ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki eða svæði í vernd­ar­flokki hafi verið frið­lýst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár