Tryggja þurfi að „framvegis rati umframorka og ný orkuöflun til orkuskipta“

Þing­flokks­for­maður Vinstri grænna segir að ríkja þurfi sátt um nýjar virkj­anir og að áður en til þeirra komi þurfi að leita „allra leiða til þess að spara og fara betur með þá orku sem þegar er fram­leidd“.

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Aðsend

„Sagan segir okkur að við höfum oft farið óðs­lega fram í orku­öflun gagn­vart við­kvæmri og ein­stakri nátt­úru lands­ins. Við ætlum sann­ar­lega að byggja upp grænt og kolefn­is­hlut­laust sam­fé­lag og ná fullum orku­skiptum fyrir árið 2040. En það þarf að ríkja sátt um nýjar virkj­anir og áður en kemur til þeirra þurfum við að leita allra leiða til þess að spara og fara betur með þá orku sem þegar er fram­leidd, bæta nýt­ingu í virkj­unum sem þegar hafa verið reistar og tak­marka orku­tap í orku­kerf­inu en ekki ein­ungis horfa til hagn­aðar eig­enda orku­fyr­ir­tækj­anna í krónum talið.“

[links]Þetta skrifar Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna í grein á Vísi í morgun. Kjarninn hefur und­an­farið fjallað um hina rúm­lega fimm ára gömlu til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem verður í fjórða sinn lögð fram á Alþingi í lok mars. Tilefni umfjöll­un­ar­innar er sú að dag­setn­ing á fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar hefur verið ákveðin og einnig sú að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar frá því nóv­em­ber er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar. Því er hins vegar bætt við, í sömu setn­ingu, að kostum í bið­flokki verði fjölgað. Frekari útskýr­ingar hafa stjórn­völd ekki gefið á hvað standi til og spurn­ingum Kjarnans til umhverf­is­ráð­herra hefur enn ekki verið svarað.

Í kjöl­far birt­ingar stjórn­ar­sátt­mál­ans hafa því vaknað ýmsar spurn­ingar um hvernig rík­is­stjórnin hyggst fjölga kostum í bið­flokki en verði það gert í þing­legri með­ferð til­lög­unnar þýðir það vænt­an­lega að kostir verði færðir úr annað hvort vernd­ar­flokki eða nýt­ing­ar­flokki í þann flokk. Nema að hvort tveggja sé. Hægt er að hreyfa við flokk­un­inni svo lengi sem Orku­stofnun hafi ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki eða svæði í vernd­ar­flokki hafi verið frið­lýst.

Í stjórn­ar­sátt­mála er einnig kveðið á um algjöra end­ur­skoðun lag­anna sem ramma­á­ætlun byggir á. Hvort þriðji áfang­inn verði hins vegar afgreiddur með ein­hverjum hætti áður en að því kemur, mun skýr­ast á næst­unni.

Hugsa þurfi áratugi fram í tímann

Orri Páll skrifar í grein sinni að okkur beri að fara vel með nátt­úru lands­ins og ork­una sem eru verð­mæt en tak­mörkuð gæði. Því þurfi að „hugsa lausnir marga ára­tugi fram í tím­ann en ekki til skamms tíma“.

Hann skrifar að þegar fram í sæki muni skorta raf­orku til þess að mæta stærstu áskorun sam­tím­ans; lofts­lags­breyt­ingum. Til þess að stemma stigu við þeim þurfum við m.a. að hraða orku­skiptum. „En höfum í huga að þó svo það muni þurfa að afla frek­ari orku vegna orku­skipta þegar fram í sækir, eins og for­stjóri Lands­virkj­unar sagði í nýlegu við­tali, þá erum við að horfa til næstu ára­tuga í því sam­hengi. Við ætlum okkur að hafa náð fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040 og því þurfum við að taka öll skref af vel yfir­lögðu ráði, leggja hug­mynda­fræði sjálf­bærrar þró­unar til grund­vallar og treysta nátt­úru­vernd.“

Tekur undir með orkumálastjóra

Hann segir brýnt að við komum okkur saman um for­gangs­röðun í hvað þurfi orku og þá hversu mik­illar orku þurfi að afla til við­bótar. Orku­mála­stjóri fjall­aði um einmitt þetta í grein á Vísi nýverið þar sem hún benti á að það væri ekki gefið að aukin orku­fram­leiðsla eða fjár­fest­ingar í flutn­ings­kerf­inu myndu skila sér beint í auknum árangri í orku­skiptum. Krafan á orku­fyr­ir­tæki að hámarka hagnað í þágu eig­enda sinna færi ekki endi­lega saman með því að íbúum og smærri fyr­ir­tækjum á köldum svæðum séu tryggð raf­orka. „Ég tek því heils­hugar undir með orku­mála­stjóra sem segir þörf á að kort­leggja orku­mark­að­inn og skapa lagaum­gjörð sem tryggi að fram­vegis rati umframorka og ný orku­öflun til orku­skipta,“ skrifar Orri Páll. „Þannig má tryggja að við náum mark­miðum okkar um að verða óháð jarð­efna­elds­neyti og kolefn­is­hlut­laus árið 2040.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár