Vindmylluframleiðandi ekki lengur á dagskrá vettvangsferðar Grænvangs

37 full­trúar atvinnu­lífs, sam­taka og sveit­ar­fé­laga ætla að taka þátt í vett­vangs­ferð Græn­vangs til Dan­merkur í þeim til­gangi að fræð­ast um nýt­ingu vind­orku. Hug­myndin að ferð­inni kvikn­aði í kjöl­far kon­ung­legrar heim­sóknar.

Vindtúrbína í landbúnaðarsvæði á vesturhluta Danmerkur.
Vind­túrbína í land­bún­að­ar­svæði á vest­ur­hluta Dan­merkur.

Er dag­skrá „vind­orku­vett­vangs­ferðar“ Græn­vangs til Dan­merkur var kynnt síð­sum­ars kom fram að vind­myllu­fram­leið­andi yrði með inn­legg. Í upp­færðri dag­skrá ferð­ar­innar, sem 37 full­trúar íslensks atvinnu­lífs, hags­muna­sam­taka og sveit­ar­fé­laga hafa stað­fest þátt­töku í, er þann lið ekki lengur að finna.

Skýr­ingin er sú, segir Nótt Thorberg, for­stöðu­maður Græn­vangs, að vind­túrbínu­fram­leið­and­inn Vestas getur ekki sent full­trúa til fundar við íslensku sendi­nefnd­ina sökum anna. „Ástæðan fyrir að dag­skráin hefur breyst er einmitt það álag sem hefur skap­ast í Danmörku í ljósi aðstæðna í Evrópu og orku­krís­unnar. Það hefur því verið svo­lítið púsl á loka­metrum að koma dag­skránni heim og saman með til­liti til þátt­tak­enda úti sökum anna og ófyr­ir­sjá­an­legra aðstæðna.“

Hún segir upp­legg vett­vangs­ferð­ar­innar eftir sem háður hið sama: „Hvað getum við lært af reynslu og þekk­ingu Dana við hag­nýt­ingu vind­orku og þá er sér­stök áhersla á hvernig sam­starfi í þeim málum hefur verið háttað milli ólíkra hag­hafa.“

[adspot]

Vett­vangs- og fræðslu­ferðin verður farin um Jótland og Samsø dag­ana 24.-27. októ­ber. Í henni “gefst þátt­tak­endum færi á heim­sækja sveit­ar­fé­lög, fyr­ir­tæki, hags­muna­sam­tök í ferða­málum og nátt­uru­vernd og aðra hag­að­ila sem komið hafa að hag­nýt­ingu vind­orku á svæð­inu,“ sagði í boðs­bréfi Græn­vangs. „Dag­skránni er ætlað að varpa ljósi á helstu tæki­færi og áskor­anir og hvernig stjórn­völd, danskt atvinnu­líf, hags­muna­sam­tök og aðrir hag­hafar hafa nálg­ast sitt sam­starf við hag­nýt­ingu vind­orku á far­sælan máta. [...] Þetta er mik­il­vægt umræðu­efni hér á landi og eins og sjá má á dag­skránni gefst þarna spenn­andi tæki­færi til að ræða við alla lyk­il­að­ila um þeirra reynslu.“

Grænar lausnir

Áður en lengra er haldið skal útskýrt hvað Græn­vangur er.

„Græn­vangur er sam­starfs­vett­vangur atvinnu­lífs og stjórn­valda um lofts­lags­mál og grænar lausnir,“ segir á heima­síðu hans. Þar kemur enn fremur fram að hlut­verk Græn­vangs sé að efla sam­starf atvinnu­lífs og stjórn­valda við að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og styðja við mark­mið um kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, er stjórn­ar­for­maður Græn­vangs.

[links]Í sept­em­ber var sent út frétta­bréf Græn­vangs þar sem vakin var athygli á „vind­orku­vett­vangs­ferð til Dan­merkur“ og áskrif­endum boðið að skrá sig til þátt­töku. Að auki var full­trúum sveit­ar­stjórna sér­stak­lega boðið að taka þátt. Og það var gagn­rýnt. Sveit­ar­stjórnir um allt land standa nú frammi fyrir þrýst­ingi frá fyr­ir­tækjum sem vilja reisa þar vind­orku­ver. Tugir slíkra vera eru á teikni­borð­inu, mis­jafn­lega á veg komin hvað varðar skipu­lags­mál og umhverf­is­mat. Vilji fyr­ir­tækj­anna stendur til að reisa þau á heiðum, á fjöllum og í dal­botnum og íbúar í grennd við þessa staði upp­lifa sig varn­ar­lausa og van­mátt­uga, líkt og Kjarninn hefur rakið síð­ustu miss­eri í fjölda frétta og frétta­skýr­inga. Sveit­ar­stjórnir hafa sumar hverjar gefið út að engar ákvarð­anir verði teknar um hvort slík ver verði byggð innan þeirra marka fyrr en stefna stjórn­valda á lands­vísu verður skýr. Vinna við þá stefnu­mótun er hafin og stefnir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, á að leggja fram frum­varp um vind­nýt­ing­una á vor­þingi.

Aðeins eitt sveit­ar­fé­lag, Dala­byggð, hefur þegar sam­þykkt aðal­skipu­lags­breyt­ingar vegna áform­aðra vind­orku­vera.

„Við í sveit­ar­stjórn Borg­ar­byggðar fengum boð í ferð­ina til Dan­merkur. Ég sá bara ein­hliða sam­tal,“ sagði Thelma Harð­ar­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Borg­ar­byggð, á fundi um vind­orku­nýt­ingu sem fram fór í Borg­ar­nesi nýverið. „Og það að flytja sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa úr landi til þess að kynna afstöðu ein­hverra sem eru fylgj­andi þessu í útlöndum fannst mér mjög skrítið og ég afþakk­aði boðið.“

Bjarni Jónsson, þing­maður VG, sagði á fund­inum að fólk þyrfti að vera á varð­bergi gagn­vart boðs­ferðum. „Það þarf að gæta sín á þessu, hvort sem það eru alþing­is­menn eða sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar.“

Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður VG, sagði á þessum sama fundi að hann hefði heyrt í einum sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa sem fékk boð. Sá var gagn­rýn­inn á það en Orri sagð­ist hafa bent honum á að mögu­lega væri hægt að hafa áhrif á dag­skrána „svo að þið hittið fólk sem er ekki endi­lega sam­mála þessu“.

„Þetta“ sem Orri vís­aði þarna til, eru vind­orku­ver. Virkj­anir sem þekkst hafa í henni flat­lendu Danmörku í ára­tugi en hafa ekki enn numið land á Íslandi ef frá eru taldar tvær vind­túrbínur sem risu (og féllu) í Þykkvabæ, og tvær sem Lands­virkjun reisti fyrir nokkrum árum í Hafinu ofan Búrfells í til­rauna­skyni.

Svona framleiða Danir rafmagn

Um helm­ingur af öllu raf­magni sem notað var í Danmörku árið 2019 var fram­leitt með vind­orku. Um tíu pró­sent var fram­leitt með kolum og um sex pró­sent með gasi.

Það segir sig sjálft að í landi þar sem hæsta fjallið, Himmel­bjerget, er 147 metrar er lítið hægt að fram­leiða úr vatns­orku. Það er fall­hæðin sem skiptir þar mestu og auð­vitað vatns­forða­búrið. Og jarð­varmi er hverf­andi í Dana­veldi.

Svona framleiða Íslendingar rafmagn

Vatns­forða­búrið og fall­hæð­ina er hins vegar að finna á Íslandi. Fjöldi áa hefur verið virkj­aður á síð­ustu ára­tugum og síð­ustu ár hafa jarð­varma­virkj­anir risið hver af annarri. Um 69 pró­sent af öllu raf­magni sem notað er hér á landi er fram­leitt í vatns­afls­virkj­unum og um 30 pró­sent í jarð­varma­virkj­unum. Árið 2020 mátti rekja 0,03 pró­sent raf­orku­fram­leiðsl­unnar til vind­túrbína Lands­virkj­unar í Hafinu.

99,98 pró­sent alls raf­magns hér á landi er fram­leitt með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum eins og það hefur lengi verið kallað – „grænni orku“ eins og nú er í tísku er að segja.

Sérfræðingar á sínu sviði

Danmörk teng­ist orku­kerfi Evrópu og flytur yfir­leitt inn meira af raf­magni en flutt er út. Inn­flutn­ing­ur­inn er aðal­lega frá Noregi og Svíþjóð, af orku sem fram­leidd er í vatns­afls­virkj­unum (og kjarn­orku reyndar Sví­þjóð­ar­megin). Um 80 pró­sent af raf­magni sem Danir nota á upp­runa sinn úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.

Danir eru sann­ar­lega sér­fræð­ingar á sviði vind­orku. Þeir hófu að beisla hana í stórum stíl á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og eru enn meðal þeirra þjóða heims sem fram­leiða mest af raf­magni úr vindi á hvern íbúa. Segja má að vind­ur­inn sé þeirra helsta orku­auð­lind þegar kemur að hinni umtöl­uðu „grænu orku“ á meðan fjöl­breytnin er mun meiri á Íslandi, land­inu sem státar af bæði jarð­virkni og jöklum sem byggja ásamt verkviti undir þau lífs­gæði sem við þekkjum í dag.

Og svo eru það Norðmenn

Noregur hefur sann­ar­lega nýtt vatns­aflið í gegnum tíð­ina og síð­ustu ár einnig vind­inn. Þar er enda lands­lagið lík­ara því íslenska og veðr­áttan sömu­leiðis. Það sama hefur svo gerst í Noregi og er farið að ger­ast hér: Fólk í dreifð­ari byggðum, þar sem vind­orku­ver hafa verið sett upp eða til stendur að setja þau upp, hefur mót­mælt harð­lega hinum risa­stóru vélum sem, vind­túrbínur eru orðnar.

Því er ekki úr vegi að spyrja Grænvang hvers vegna vett­vangs­ferð­inni var ekki frekar heitið til Noregs, þar sem lík­indin við Ísland er á margan hátt mikil?

Hin konunglegu áhrif

„Ferðin er skipu­lögð að frum­kvæði State of Green,“ bendir Nótt, for­stöðu­maður Græn­vangs á en State of Green er sam­bæri­legt fyr­ir­bæri og Græn­vangur.

Nótt bendir auk þess á að Danir hafi feng­ist við hag­nýt­ingu vind­orku um ára­tuga skeið. „Ferðin miðar að því að miðla og deila þess­ari reynslu Dana til Íslend­inga,“ segir hún. Hug­myndin að henni á sér hins vegar kon­ung­legar rætur því hún spratt í kjöl­far opin­berrar heim­sóknar Friðriks krón­prins hingað til lands á síð­asta ári. „Það er auð­vitað alltaf mats­at­riði að hversu miklu leyti aðstæður í Danmörku svipa til okkar,“ segir Nótt, „en við höfum einmitt fengið ábend­ingar um Noreg í aðdrag­anda ferð­ar­innar.“

Græn­vangur mun sjálfur senda tvo full­trúa til Dan­merkur og sá útlagði kostn­aður sem hlýst felst því fyrst og fremst í ferða­kostn­aði starfs­manna, segir Nótt. Þátt­tak­endur greiða hins vegar flug og ferða­kostnað sem hlýst af ferð­inni sjálfir.

Spurð hvort á dag­skrá ferð­ar­innar sé að fá sjón­ar­mið fólks sem gagn­rýnir vind­orku­ver í nágrenni sínu svarar Nótt því ját­andi. „The Danish Society of Nature Conservation, stærstu nátt­úr­verndar- og umhverf­is­sam­tök Dan­merkur, taka þátt í dag­skránni en dag­skráin miðar að því að ná fram breiðu sjón­ar­horni um hag­nýt­ingu vind­orku út frá þeim ólíkum þáttum og áskor­unum sem kunna að vera frá sjón­ar­hornum ólíkra aðila sem hafa komið að hag­nýt­ingu vind­orku í Danmörku.“

Á vef Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Dan­merkur segir: „Vind­myllur búa til lofts­lagsvæna orku úr vind­inum.“ Í sömu grein er bent á að með vind­orku megi fram­leiða orku fyrir sam­fé­lagið án þess að auka á lofts­lags­vand­ann. „Við höfum mik­inn vind í Danmörku og hann skulum við nýta. Vindorka er nefni­lega ein af þeim orku­upp­sprettum sem hafa minnst áhrif á lofts­lagið. Samtímis er vindur við­var­andi orku­auð­lind sem ekki tæm­ist.“

[adspot]

Áhersla sam­tak­anna er m.a. á að sam­ráð sé haft við íbúa þar sem byggja á vind­orku­ver og að gætt sé að því að lág­marka umhverf­is­á­hrif þeirra en í grunn­inn mæla þau með virkjun vinds­ins, líkt og útskýrt er hér að framan, enda notkun kola, olíu og jarð­gass í Danmörku enn tölu­verð. Að hætta notkun jarð­efna­elds­neytis til að draga úr lofts­lags­breyt­ingum er enda mikið for­gangs­mál í Danmörku eins og mjög víða þar sem það er notað í stórum stíl.

Eru vind­túrbínur og líf­fræði­leg fjöl­breytni and­stæðir pólar eða geta þau þrif­ist í sátt og sam­lyndi? Þetta er ein þeirra spurn­inga sem varpað er fram í kynn­ing­ar­efni State of Green vegna ferð­ar­innar. „Til að fá svörin skaltu slást í för með okkur til hins aðlað­andi ferða­manna­staðar, vest­an­verðrar Dan­merkur. Við munum hitta leið­andi danska hags­muna­að­ila innan vind­orku­geirans og nátt­úru­vernd­ar­innar sem deila reynslu sinni af því að vinna saman að hinum grænu orku­skiptum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár