Orkumálastjóri: „Einföld leið“ að leggja niður rammaáætlun

Guðni A. Jóhann­es­son orku­mála­stjóri leggur til að ramma­á­ætlun verði lögð niður og að stofn­anir sem fara með umhverfis- og skipu­lags­mál verði efldar til þess að meta hugs­an­lega virkj­un­ar­kosti.

Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti. Í þriðja áfanga rammaáætlunar er lagt til að svæðið verði friðað.
Ald­eyj­ar­foss í Skjálf­anda­fljóti. Í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar er lagt til að svæðið verði friðað. Mynd: Ólafur Már Björnsson

„Frið­lýs­ing án tíma­marka er í raun alvar­leg skerð­ing á rétti kom­andi kyn­slóða til þess að taka lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir um sín mál á hverjum tíma,“ skrifar Guðni A. Jóhann­es­son orku­mála­stjóri í jóla­er­indi sínu. Hann segir ferli ramma­á­ætl­unar orðið „langur, erf­iður draumur eða martröð“ og að tími sé kom­inn til að vakna og finna nýjar leiðir. „Einföld leið er að leggja niður ramma­á­ætlun og efla þær stofn­anir sem fara með umhverfis og skipu­lags­mál til þess að meta hugs­an­lega virkj­un­ar­kosti á skipu­lags­stigi.“

[adspot]

Guðni rifjar í jóla­er­indi sínu upp að þegar hann hóf störf hjá Orku­stofnun árið 2008 hafi vinna við annan áfanga ramma­á­ætl­unar verið að hefj­ast. „Í verk­efn­is­stjórn voru þá full­trúar stofn­ana, sam­taka og ráðu­neyta þannig að um aðferðir og nið­ur­stöður skap­að­ist breið umræða þar sem mis­mun­andi sjón­ar­mið tók­ust á. Þótt ýmis upp­hlaup yrðu vegna óskyldra hluta sem trufl­uðu starf­sem­ina var for­mað­ur­inn, Svan­fríður Jón­as­dóttir, óþreyt­andi að taka umræð­una og umfjöll­unin komst á það stig að það var hægt að ná nið­ur­stöðu með meiri­hluta­sam­þykkt á alþingi. Jafn­framt hafði verið unnið að því að treysta grund­völl ramma­á­ætl­unar með því að setja um hana lög, en því miður fólu þau lög í sér að fram­kvæmd lag­anna var falin umhverf­is­ráðu­neyti í stað iðn­að­ar­ráðu­neytis eins og áður var.“

Verk­efn­is­stjórn þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar var hins vegar fámenn­ari og eins­leit­ari að mati Guðna. Starf hennar hafi beinst að því „að safna í excel-skjöl smáum og stórum ávirð­ingum á mögu­lega virkj­un­ar­kosti með ein­kunna- og stiga­gjöf sem var ill­skilj­an­leg fyrir þá sem stóðu utan við starfið“.

Röðun og flokkun virkj­ana­kosta gekk að mati Guðna „þvert á almenna skyn­semi og mik­il­vægar for­sendur voru oftar en ekki gripnar úr lausu lofti“ og nefnir hann í því sam­bandi sér­stak­lega áform um Skata­staða­virkjun. „Enda varð snemma ljóst að engin sam­staða var á Alþingi um afgreiðslu þessa áfanga og nú er vinna við fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar hafin án þess að afgreiðslu þriðja áfanga sé lokið.“

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um 3. áfanga ramma­á­ætl­unar var lögð fram í fjórða sinn á Alþingi í byrjun des­em­ber. Hún er sam­hljóma til­lögu verk­efn­is­stjórn­ar­innar sem skil­aði loka­skýrslu sinni í ágúst árið 2016. Tvisvar á þessu tíma­bili hefur verið mælt fyrir til­lög­unni en órói í póli­tík­inni og stjórn­ar­slit hafa meðal ann­ars orðið til þess að fresta afgreiðslu hennar.

Í til­lög­unni eru sam­tals þrettán virkj­ana­kostir í orku­nýt­ing­ar­flokki og bið­flokki sem falla innan marka fyr­ir­hug­aðs hálend­is­þjóð­garðs.

Illa dulin þórðargleði

[links]Guðni fjallar einnig um hálend­is­þjóð­garð­inn í jóla­er­indi sínu og seg­ist sakna áhrifa á lofts­lags­mál í umfjöllun um garð­inn. „Menn hafa vissu­lega sett spurn­ing­ar­merki við að byggja atvinnu­líf okkar og hag­vöxt í enn meira mæli á fjölda­túrisma með til­heyr­andi kolefn­islosun, en svo eru menn enn gagn­rýn­is­laust að tala niður jákvæð áhrif af því að nýta vist­væna orku hér á á landi til iðn­að­ar­fram­leiðslu,“ skrifar Guðni og heldur áfram. „Með illa dul­inni þórð­ar­gleði lýsa menn vænt­ingum sínum um að álver á Íslandi gætu þurft að loka sem þá myndi tryggja okkur nægi­legt raf­magn til kom­andi orku­skipta án þess að byggja fleiri virkj­anir. Hin hliðin á pen­ingnum er nefni­lega að ef það þarf að loka álveri hér þá er það vegna þess að það hefur orðið undir í sam­keppni við álver rekið á kola­orku ann­ars staðar á jarð­ar­kringl­unni. Allur okkar ávinn­ingur af orku­skiptum sem drifin væru áfram af orku sem væri þannig fengin myndi glat­ast fimm sinnum í þeim skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár