Bók um íslenska hrunið fær glimrandi umsögn í Financial Times

Blaða­mað­ur­inn Ian Fraser rit­aði bóka­dóm um nýlega bók Jareds Bibler fyrir Financial Times og segir bók­ina stór­kost­lega lesn­ingu, sem feli í sér varn­að­ar­orð um stöðu eft­ir­lits með fjár­mála­kerf­inu á heims­vísu.

Bók Jareds kom út í Bretlandi í upphafi októbermánaðar.
Bók Jareds kom út í Bret­landi í upp­hafi októ­ber­mán­aðar. Mynd: Samsett

Nýleg bók Jareds Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­anda hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, um aðdrag­anda og eft­ir­mála hruns íslensku bank­anna árið 2008, fékk afar góða umsögn í breska blað­inu Financial Times í gær. Bókin er ein fárra sem komið hafa út á ensku um fall íslenska banka­kerf­is­ins haustið 2008.

„Þrátt fyrir að ég hefði getað þegið nokkrar ljós­myndir og efn­is­at­riða­skrá er Iceland’s Secret stór­kost­leg lesn­ing. Hún opnar augu manns og felur í sér varn­ar­orð um þau blygð­un­ar­lausu og langvar­andi brot sem geta átt sér stað ef banka­menn fá frítt spil hjá blaða­mönnum, eft­ir­lits­stofn­unum, stjórn­mála­mönnum og rík­is­stjórnum ríkja,“ segir í bóka­dómnum.[links]

Hann ritar blaða­mað­ur­inn Ian Fraser, sem árið 2014 gaf sjálfur út bók um ris og fall Royal Bank of Scotland og hvað það var sem leiddi til þess að breska rík­is­stjórnin þurfti að koma bank­anum til bjargar á ögur­stundu, með ærnum til­kostn­aði fyrir skatt­greið­endur.

Í bóka­dómnum segir Frasier að það sem Bibler bendi á með bók­inni sé það að ef eft­ir­lits­stofn­anir með fjár­mála­kerf­inu á heims­vísu vakni ekki og herði sig, gæti svip­aður „fífla­gangur“ og átti sér stað á Íslandi fyrir hrun verið að eiga sér stað í öllum hornum fjár­mála­mark­að­ar­ins, með mögu­lega hörmu­legum afleið­ingum.

Taldi alþjóðlega umfjöllun um íslenska hrunið vanta

Kjarninn ræddi ítar­lega við höf­und bók­ar­innar í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þar sagði hann frá því að hann hefði ákveðið að skrifa bók­ina vegna skorts á því að helstu erlendir fjöl­miðlar gerðu íslenska banka­hrun­inu og eft­ir­málum þess almenni­leg skil í heild sinni.

„Ég var alltaf að bíða eftir að Fin­ancial Times myndi covera þetta, en það gerð­ist aldrei,“ sagði Jared við blaða­mann.

[adspot]

Í bóka­dómnum sem birt­ist í Financial Times segir að fáir séu í betri aðstöðu en Jared til að gera íslenska banka­hruns­ins skil, þar sem hann hafi verið með sæti í fremstu röð á þá atburði á árunum fyrir hrun þegar íslenska banka­kerfið var í örum vexti.

Jared sagði upp störfum hjá Lands­banka Íslands ein­ungis nokkrum dögum áður en banka­kerfið fór að hlið­ina í upp­hafi októ­ber árið 2008 og fór síðar að starfa sem rann­sak­andi hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Í umsögn­inni í Financial Times segir að bók Jareds sé blanda af opin­skáum per­sónu­legum end­ur­minn­ingum og „nor­rænni glæpa­sögu sem varpi ljósi á þær ótrú­legar upp­götv­anir sem hann gerði sem rann­sak­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár