Unnið að gerð ákæru í Lindsor-málinu í Lúxemborg – Næstum 14 ár frá málsatvikum

Lindsor var aflands­fé­lag sem keypti skulda­bréf á yfir­verði af Kaup­­­þingi, ein­­­stökum starfs­­­mönnum þess banka og félagi í eigu vild­­­ar­við­­­skipta­vinar Kaup­­­þings sama dag og Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland.

Sak­sókn­ari í Lúx­em­borg vinnur nú að gerð ákæru í hinu svo­kall­aða Lindsor-máli. Henri Eippers, tals­maður dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þar í landi, segir í svarið við fyr­ir­spurn Kjarnans að ekki sé hægt að segja til um hversu langan tíma það verk muni taka þar sem sak­sókn­ar­inn í mál­inu sé einnig að vinna að öðrum verk­efnum sam­hliða.

Fyrir næstum tveimur árum síðan greindi Kjarn­inn frá því að rann­sókn­ar­dóm­ari í Lúx­em­borg hefði lokið rann­sókn sinni á á Lindsor-­­mál­inu og sent nið­­ur­­stöður hennar til sak­­sókn­­ara, tæpum tólf árum eftir að hinn íslenski banki Kaup­­þing, sem er mið­­punktur máls­ins, féll og atburð­irnir sem málið snýst um áttu sér stað. Það gerði hann með for­m­­legri ákvörðun sem dag­­sett var 24. júlí 2020.

Síðan þá hefur málið legið hjá sak­sókn­ar­anum sem hefur nú í næstum 20 mán­uði verið að leggja mat á nið­ur­stöð­una til að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort senda eigi ákæru til dóm­stóla í Lúx­em­borg.

Kjarn­inn greindi frá því sum­arið 2020, og hafði eftir Dian Klein, tals­konu dóms­­mála­ráðu­­neytis Lúx­em­borgar, að aðstoð­­ar­sak­­sókn­­ari sem ynni að mál­inu teldi afar lík­­­legt að ákæra verði lögð fram gagn­vart ein­hverjum þeirra grun­uðu í mál­in­u.

Lán veitt sama dag og neyð­ar­lánið

Lindsor-­­­málið snýst um 171 millj­­­ónir evra lán sem Kaup­­­þing veitti félagi sem heit­ir Lindsor Holding Corporation og er skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju. Lánið var veitt 6. októ­ber 2008, sama dag og ­neyð­ar­lög voru sett á Íslandi og Geir H. Haarde, þáver­andi for­­­­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland. Þann dag lán­aði Seðla­­­­banki Íslands líka Kaup­­­­þingi 500 millj­­­­ónir evra í neyð­­­­ar­lán.

[adspot]Lánið til Lindsor var aldrei borið undir lána­­­nefnd Kaup­­­þings. Það var notað til að kaupa skulda­bréf af Kaup­­­þingi í Lúx­em­borg, ein­­­stökum starfs­­­mönnum þess banka og félagi í eigu vild­­­ar­við­­­skipta­vinar Kaup­­­þings.

Þegar Kaup­­­þing féll þremur dögum eftir kaupin á bréf­unum var ljóst að Lindsor gat ekki greitt lánið til baka, enda eina eign félags­­­ins verð­litlu skulda­bréfin sem félagið hafði keypt á yfir­­­verði þremur dögum áður. Engar trygg­ingar voru veittar fyrir lán­inu og tap kröf­u­hafa Kaup­­­þings vegna þess því umtals­vert. Þeir sem seldu bréfin los­uðu sig hins vegar undan ábyrgðum og, ef grun­­­semdir rann­sak­enda eru rétt­­­ar, tryggðu sér um leið mik­inn ágóða.

Fjórir ein­stak­lingar gætu verið ákærðir

Lindsor-­málið er stærsta hrun­málið sem hefur ekki enn verið klárað með ákæru þrátt fyrir að hafa verið til rann­sóknar í á tólfta ár, bæði hjá lög­reglu­yf­ir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg. Þeir sem eru grun­aðir um lög­­­brot í mál­inu, fyrr­ver­andi helstu stjórn­­­endur Kaup­­­þings og vild­­­ar­við­­­skipta­vinur þeirra, hafa ávallt harð­­­neitað að nokkuð sak­­­næmt hafi átt sér stað.

Rann­­sókn máls­ins er enn opin hjá yfir­­völdum í báðum lönd­unum þótt engar ákærður hafi verið gefnar út í því.

Í frétta­til­kynn­ingu sem var send út frá sak­sókn­aremb­ætt­inu í Lúx­em­borg í ágúst í 2020 sagði að á meðan að rann­­sóknin stóð yfir hafi fimm ein­stak­l­ing­­ar haft stöðu grun­aðra.

[links]Fjórir af þeim verða ákærð­ir, sam­­kvæmt nið­­ur­­stöðu rann­­sókn­­ar­inn­­ar, ef ákæra verður gefin út. Ekki er greint frá því um hvaða fjóra ein­stak­l­inga er að ræða.

Dóms­­kerfið í Lúx­em­borg er ólíkt því sem Íslend­ingar eiga að venj­­ast. Ákæra sak­sókn­ara er send til svo­­kall­aðs „council chamber“ hér­­aðs­­dóms­­stigs Lúx­em­borgar sem mun taka ákvörðun um hvort að málið fái efn­is­­með­­­ferð eða verði vísað frá. Sak­­born­ingar í mál­inu munu á þeim tíma­­punkti fá tæki­­færi til að setja fram varnir í mál­in­u.

Kjarn­inn fjall­aði með afar ítar­­legum hætti um Lindsor-­­málið í frétta­­skýr­ingu sem birt­ist 9. júlí 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár