Stendur við orð sín um að Seðlabankinn hafi verið misnotaður

Fyrr­ver­andi rann­sak­andi hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu segir Seðla­bank­ann annað hvort reyna að snúa út úr eða opin­bera umhugs­un­ar­vert skiln­ings­leysi með svörum sínum til Kjarnans um svik sem áttu sér stað á tímum gjald­eyr­is­hafta.

Jared Bibler, fyrrverandi rannsakandi hjá FME.
Jared Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­andi hjá FME. Mynd: Aðsend

Jared Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­andi á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, seg­ist standa að fullu við full­yrð­ingar sínar þess efnis að Seðla­bank­inn hafi verið mis­not­aður á fyrstu miss­er­unum eftir hrun, er íslenskir aðilar urðu sér úti um erlendan gjald­eyri með því að fram­vísa til­hæfu­lausum reikn­ingum hjá við­skipta­bönk­unum.

Þetta segir hann í yfir­lýs­ingu vegna fréttar Kjarnans um svör Seðla­bank­ans um þetta efni, sem birt­ist á mánu­dag­inn. Í svörum Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði að það væri „lang­sótt“ að tala um mis­notkun á Seðla­bank­anum hvað þetta varðar og áhersla var lögð á að úttektir á gjald­eyri hefðu farið fram í við­skiptum við við­skipta­bank­ana, en ekki í beinum við­skiptum við Seðla­bank­ann.

Í yfir­lýs­ingu sinni segir Jared að svör Seðla­bank­ans sem Kjarninn sagði frá beri með sér ýmist vilj­andi útúr­snún­inga eða umhugs­un­ar­vert skiln­ings­leysi á alþjóð­legri greiðslu­miðlun.

Svik sem settu þrýsting á gengi krónunnar

Hann tekur dæmi af við­skiptum þar sem íslenskur aðili notar til­hæfu­lausan reikn­ing fyrir til þess að senda 50.000 sterl­ingspund til ráð­gjafa­fyr­ir­tækis í Bret­landi á tímum gjald­eyr­is­hafta. Jared segir að slík við­skipti hefðu sett þrýst­ing á gengi íslensku krón­unnar, sem Seðla­bank­inn hafi brugð­ist við með því að grípa inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn og selja brot af gjald­eyr­is­vara­forða sínum fyrir íslenskar krónur.

[adspot]

Í kjöl­farið á þessu hafi gjald­eyr­is­vara­forði Íslands minnkað og svika­hrapp­ur­inn sem seldi krónur til að kaupa pund fengið mun meira af pundum fyrir krón­urnar en honum hefði getað látið sig dreyma um að fá á hinum óform­lega mark­aði með krónur sem hafði mynd­ast í Evrópu.[links]

„Stað­hæf­ing mín er sú að reikn­inga­svik á árunum 2008-2010 hafi leitt til skerð­ingar á gjald­eyr­is­vara­forða Seðla­bank­ans, og þar með þeirri upp­hæð í skipt­an­legum gjald­miðlum (e. hard currency) sem Íslend­ingar gátu nýtt sér. Ég stend við orð mín við Kjarnann og þær stað­hæf­ingar mínar í Iceland’s Secret að erlendum gjald­eyri Seðla­bank­ans hafi verið stolið með þessum svikum – og að fórn­ar­lömbin hafi verið íslenskur almenn­ingur,“ skrifar Jared.

Hann segir pen­inga hafa flætt frá Íslandi með þessum hætti, óháð því hvaða banki hafi ann­ast við­skiptin, en að Seðla­bank­inn hafi á end­anum átt að bera end­an­lega ábyrgð.

„Sú stað­reynd að Seðla­bank­inn hafi útvi­stað eft­ir­liti með svikum til við­skipta­bank­anna og ekki varið gjald­eyr­is­vara­forða sinn með full­nægj­andi hætti á meðan að gjald­eyr­is­höft voru við lýði ætti að vera áhyggju­efni,“ segir í yfir­lýs­ingu Jareds.

Seðla­bank­inn sagði í svörum sínum til Kjarnans að tekið hefði verið á brotum af þessu tagi á sínum tíma og að þau hefðu verið tekin alvar­lega – enda hefðu þau grafið undan mark­miðum bank­ans um að koma á stöð­ug­leika og takast á við vand­ann sem skap­ast hafði vegna efna­hags­á­falls­ins sem hér reið yfir árið 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár