Viðskiptabankarnir misnotaðir, ekki Seðlabankinn

Seðla­bank­inn segir að þau meintu svik sem lutu að úttektum á gjald­eyri fyrir til­hæfu­lausa reikn­inga á tímum gjald­eyr­is­hafta hafi varðað við­skipti við við­skipta­bank­ana, en ekki Seðla­bank­ann, líkt og ráða mátti af nýlegri umfjöllun Kjarnans.

Seðlabanki Íslands segir það langsótt að tala um að tiltekin brot gegn gjaldeyrislögum eftir hrun sem nokkurs konar misnotkun á Seðlabankanum.
Seðla­banki Íslands segir það lang­sótt að tala um að til­tekin brot gegn gjald­eyr­is­lögum eftir hrun sem nokk­urs konar mis­notkun á Seðla­bank­anum. Mynd: Seðlabanki Íslands.

Seðla­bank­inn segir að þau meintu svik sem lutu að úttektum á gjald­eyri fyrir til­hæfu­lausa reikn­inga á tímum gjald­eyr­is­hafta hafi varðað við­skipti við við­skipta­bank­ana, en ekki Seðla­bank­ann, líkt og ráða hafi mátt af frá­sögn af inni­haldi bók­ar­innar Iceland’s Secret og við­tali við Jared Bibler höf­und bók­ar­innar, sem birt­ist í Kjarn­anum undir lok sept­em­ber.

Bankinn segir, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um efni bók­ar­innar og orð Jareds, sem er fyrr­ver­andi rann­sak­andi á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, að mik­il­vægt sé að halda því til haga að Seðla­bank­inn hafi ekki selt við­skipta­bönkum erlendan gjald­eyri með afslætti á milli­banka­mark­aði á þessum tíma, ekki frekar en í dag. Það sé því lang­sótt að tala um mis­notkun á Seðla­bank­anum, í þessu sam­hengi.

Í svari bank­ans segir að eftir setn­ingu fjár­magns­hafta haustið 2008 hafi hlut­verk Seðla­bank­ans verið að hafa eft­ir­lit með brotum gegn höft­unum og til­kynna grun um brot til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem hafði svo það hlut­verk að rann­saka brot og eftir atvikum beita stjórn­sýslu­við­ur­lögum.[links]

„Sum þeirra mála sem komu til athug­unar í upp­hafi fjár­magns­hafta og til­kynnt voru til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vörð­uðu það sem stundum var kallað „hringrásun fjár­muna“ þar sem erlendur gjald­eyrir var keyptur hjá inn­lendum við­skipta­bönkum fyrir íslenskar krónur á „álands­gengi“ og hann síðan fluttur til útlanda og nýttur þar til að kaupa krónur á „aflands­gengi“ sem síðan fluttar voru til lands­ins,“ segir í svari bank­ans.

Einnig segir Seðla­bank­inn að hagn­að­ur­inn af þessum við­skiptum hafi falist í mis­mun á gengi gjald­miðla á þessum tveimur mörk­uðum og að hann hafi getað verið „umtals­verður.“ „Í þessum málum var grunur um að heim­ildir til þess að kaupa erlendan gjald­eyri hjá inn­lendum við­skipta­bönkum, s.s. vegna inn­flutn­ings á vöru og þjón­ustu, hafi verið mis­not­aðar m.a. með því að leggja fram til­hæfu­lausa reikn­inga hjá við­skipta­bönkum,“ segir í svari Seðla­bank­ans.

[adspot]

„Í slíkum til­vikum var um brot á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál að ræða sem tekið var á. Brotin kunna auð­vitað að hafa haft áhrif á nauð­syn inn­gripa á gjald­eyr­is­mark­aði, en það er lang­sótt að tala um þau sem mis­notkun á Seðla­bank­anum. Slík inn­grip eru hluti af eðli­legri starf­semi Seðla­bank­ans og í sam­ræmi við mark­mið hans um að stuðla að stöð­ugu verð­lagi, fjár­mála­stöð­ug­leika og traustri og öruggri fjár­mála­starf­semi. Þar með er þó ekki sagt að slík brot á fjár­magns­höft­unum og önnur snið­ganga þeirra hafi ekki verið tekin alvar­lega enda grófu þau undan mark­miði þeirra að koma á stöð­ug­leika og takast á við vand­ann sem hafði skap­ast vegna efna­hags­á­falls­ins,“ segir í svari bank­ans.

Seðla­bank­inn tekur einnig fram að í júní árið 2010 hafi verið gerðar breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál í þá veru að rann­sóknir á ætl­uðum brotum á fjár­magns­höftum voru færðar til Seðla­bank­ans. Þá flutt­ust þau mál sem enn voru til rann­sóknar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu til bank­ans.

Vísa í blaðamannafund um uppgjör hrunmála

Blaða­maður beindi einnig spurn­ingu til bank­ans um þá full­yrð­ingu Jareds að ein­ungis hefði verið ráð­ist í rann­sóknir á hluta þeirra mála sem hægt hefði verið að ráð­ast í af hálfu FME eftir hrun banka­kerf­is­ins árið 2020.

Jared segir í bók sinni að af mögu­legum saka­málum sem FME hefði getað ráð­ist í sam­kvæmt lögum og hlut­verki sínu, telji hann FME hafi ein­ungis fram­kvæmd alvar­legar rann­sóknir á undir 10 pró­sentum heild­ar­mála­fjöld­ans. „Til að gera afgang­inn hefðum við þurft 30-40 manna teymi og fimm ár til við­bótar, tíma­skala sem er algjör­lega eðli­legur í málum sem varða hvít­flibbasvindl,“ skrif­aði Jared í bók­inni.

Spurn­ingar blaða­manns hljóð­uðu svo: „Er þetta mat Jareds á mála­fjölda sem FME hefði getað ráð­ist í að rann­saka eftir hrun rétt áætlað að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins? Var gengið í burtu frá veru­legum fjölda mála án rann­sókna? Ef svo er, hvað réði því?“

Í svari frá bank­anum um þetta barst ekk­ert efn­is­legt svar við orðum Jareds um þetta efni, heldur var ein­ungis vísað til glæru­sýn­ingar- og frétta­til­kynn­ingar um efni blaða­manna­fundar FME um lyktir hrun­rann­sókn­anna, sem fram fór 14. febr­úar árið 2013.

„Alls lauk Fjár­mála­eft­ir­litið rann­sóknum á 205 málum. Þar af hafa 66 mál tengd aðdrag­anda hruns­ins verið kærð til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra eða emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Jafn­framt hefur 37 málum þar sem um er að ræða meint brot á almennum hegn­ing­ar­lögum verið vísað til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Samtals eru þessi mál 103,“ sagði meðal ann­ars í frétta­til­kynn­ing­unni frá FME á þeim tíma.

Ljóst er þó að Jared, sem stýrði öðru af tveimur rann­sókn­arteymum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eftir hrun, telur að rétt hefði verið að ráð­ast í rann­sóknir fleiri mála sem vörð­uðu fjár­mála­af­brot og sagði hann í við­tali við Kjarnann að það hefðu til dæmis ef til vill verið 20, 30 eða 50 inn­herj­a­mál sem hægt hefði verið að rann­saka, en ekki hefði verið farið í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár