Fyrrverandi þingmaður Samfylkingar biðst afsökunar á sínum hlut í Landsdómsmálinu

Einn þeirra sem greiddi atkvæði með því að ákæra þrjá ráð­herra árið 2010 vegna van­rækslu þeirra í starfi í aðdrag­anda hruns­ins sér eftir ákvörðun sinni. Hann seg­ist hafa beðið þau öll afsök­unar en vilji líka gera það opin­ber­lega.

Geir H. Haarde, fyrrverrandi forsætisráðherra, á sakamannabekk í Landsdómi.
Geir H. Haarde, fyrr­verr­andi for­sæt­is­ráð­herra, á saka­manna­bekk í Lands­dómi. Mynd: EPA

„Ég vil biðj­ast afsök­unar á mínum hlut í Lands­dóms­mál­inu. Fyrir tólf árum ákvað meiri­hluti Alþingis að vísa máli Geirs H. Haarde til lands­dóms. Á þeim tíma sat ég á Alþingi og í nefnd þing­manna sem fjall­aði um Rann­sókn­ar­skýrsl­una og hvernig ætti að taka á lögum um ráð­herra­á­byrgð. Mín afstaða var þá að rétt væri að vísa málum Geirs H. Haarde, Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur og Árna M. Mathiesen til Lands­dóms. Þeirri ákvörðun sé ég eftir.“

Svona hefst færsla sem Magnús Orri Mar­ín­ar­son Schram, sem sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una á árunum 2009 til 2013, birti á Facebook í kvöld.

Magnús segir þar að í dag vildi hann óska þess að hann hefði haft hug­rekki til að tala fyrir því að umfjöllun um ábyrgð ráð­herra hefði lokið á vett­vangi þing­nefndar sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­u rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem komst að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í apríl 2010 að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu í sept­­­­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ing­i­­­­björgu Sól­­­­rúnu Gísla­dóttur og Björg­vin G. Sig­­­­urðs­­­­son, fyrir Lands­­­­dómi vegna þess­­­­arar van­rækslu.

[adspot]Þegar þing­­­­­menn kusu um málið varð nið­­­­ur­­­­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var ákærð­­­­ur. Nokkrir þing­­­­menn Sam­­­­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins en hlífa sínum flokks­­­­mönn­­­­um.

Lands­­­­dóms­­­­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­­­­haf­­­­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­­­­með­­­­­­­ferð­ina til Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls Evr­­­­ópu. Það mál tap­að­ist í nóv­­­em­ber 2020.

Stýrðist af andanum í þjóðfélaginu

Magnús segir í færsl­unni að hann hafi á sínum tíma látið „and­ann í þjóð­fé­lag­inu“ hafa áhrif á sína afstöðu, þegar það hefði verið rétt ákvörðun að vísa engum málum til Lands­dóms. „Ég er sann­færður um að þau sem voru til umfjöll­unar – Geir H. Haarde, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Árni M. Mathiesen og Björgvin G. Sig­urðs­son, hafa unnið að heil­indum við erfið störf í yfir­þyrm­andi aðstæðum. Ég hef per­sónu­lega beðið þau afsök­unar á ábyrgð minni og vil einnig gera það hér, með opin­berum hætti.“

Magnús segir að nýlega hafi hann verið spurður hvort hvort hann væri enn sömu skoð­unar varð­andi ákvörðun nefnd­ar­innar og Alþingis, um að vísa málum ráð­herr­anna til Lands­dóms og svarið sé að það sé hann ekki. „Málið hefur lengi hvílt þungt á mér og þótt ekki sé hægt að taka aftur þessi mis­tök þá er mik­il­vægt að gang­ast við þeim.“

Magnús greiddi atkvæði með því að ákæra þrjá ráð­herra en gegn því að Björgvin G. Sig­urðs­son, sam­flokks­maður hans, yrði ákærður.

Nokkrir núverandi ráðherrar á meðal þeirra sem samþykktu

Á meðal þeirra sem sam­­­þykktu ákæruna á hendur Geir í þing­inu í sept­­­em­ber 2010 voru nokkrir ráð­herrar sem nú sitja í rík­­­is­­­stjórn með Sjálf­­­stæð­is­­­flokkn­­­um.

Þeir eru Katrín Jak­obs­dóttir for­­­sæt­is­ráð­herra, Sig­­­urður Ingi Jóhanns­­­son, Svan­­­dís Svav­­­­­ar­s­dóttir og Ásmundur Einar Daða­­­son. Sig­urður Ingi var raunar einn flutn­ings­manna þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar um máls­höfð­un­ina gegn ráð­herr­um. Þau kaus Stein­grímur J. Sig­­­fús­­­son, fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna og for­­­seti Alþing­is á síð­asta kjör­tíma­bili, einnig með ákærunni.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga ýmissa þing­manna, úr Mið­flokki og Sjálf­stæð­is­flokknum, um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni hefur nokkrum sinnum verið lögð fram á und­an­förnum árum, en ekki hlotið afgreiðslu. Hún snýst um að þing­­­menn­irnir vilja að Alþingi álykti að „rangt hafi verið að leggja til máls­höfðun á hendur ráð­herrum vegna póli­tískra aðgerða eða aðgerða­leys­is, sbr. til­lögu til þings­á­lykt­unar á 138. lög­gjaf­ar­þing­i[...], að rang­lega hafi verið staðið að atkvæða­greiðslu um til­lög­una og að rangt hafi verið að sam­þykkja hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár