20 af 50 stærstu vogunarsjóðum heims komu til Íslands til að hagnast á hruninu

Sjóðir sem keyptu kröfur á íslenska banka á hrakvirði högn­uð­ust margir hverjir gríð­ar­lega á fjár­fest­ingu sinni. Arðurinn kom m.a. úr hækk­andi virði skulda­bréf og skulda­jöfnun en mestur var ágóð­inn vegna íslensku krón­unnar.

Svein Har­ald Øygard.
Svein Har­ald Øygard. Mynd: RÚV/Skjáskot

20 af 50 stærstu vog­un­ar­sjóðum heims komu til Íslands eftir hrun til að hagn­ast á þeirri stöðu sem var komin upp eftir að banka­kerfið féll nán­ast allt á örfáum dögum. Að mestu er um banda­ríska sjóði að ræða.

[links]Flestir þeirra hafa hagn­ast gríð­ar­lega á aðkomu sinni enda hækk­aði virði eigna þrota­búa Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans úr því að vera að með­al­tali fjögur pró­sent strax eftir hrun í að vera um 24 pró­sent. Virðið eft­ir­stand­andi eigna hækk­aði síðan enn meira eftir að nauða­samn­ingar voru hand­sal­aðir við íslenska ríkið árið 2015, í sumum til­fellum um 65 pró­sent. Arður kröfu­haf­anna kom úr ýmsum áttum. Hann lá í verð­gildi skulda­bréfa sem jókst, í greiðslum í reiðufé og í skulda­jöfnun. En efst á blaði var ágóð­inn af gengi gjald­miðla. Styrking krón­unnar færði þeim sem komu til Íslands til að hagn­ast á óförum íslenska banka­kerf­is­ins, og íslensks sam­fé­lags, stór­auk­inn ágóða.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri bók eftir Norð­mann­inn Svein Har­ald Øygard, sem var Seðla­­banka­­stjóri á Íslandi frá febr­­ú­­ar­lokum 2009 og fram til 20. ágúst sama ár, sem ber heitið „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“ og kom nýverið út á íslensku.

Frá Óskarsverðlaunum í rútu á leið til Reykjavíkur

Í bók­inni fer Øygard yfir það að þann 7. októ­ber 2008, dag­inn eftir að neyð­ar­lögin voru sett á Íslandi og þegar Lands­banki Íslands og Glitnir voru fallnir, hafi farið fram nokk­urs konar Ósk­arsverð­launa­há­tíð skuld­setn­ingar hjá lög­mönnum sem sér­hæfa sig í upp­gjöri þrota­búa í London. Allir sem þar voru höfðu fylgst með fréttum frá Íslandi.

[adspot]Viku síðar, þegar Kaupþing var líka fall­inn, voru allir helstu hákarl­arnir úr þeirri veislu komnir saman á Íslandi í rútu á leið til Reykja­víkur til að taka stöð­una. Þeir heim­sóttu höf­uð­stöðvar allra föllnu bank­anna, Seðla­bank­ann og fjár­mála­ráðu­neytið, þar sem fund­ur­inn sner­ist fljótt upp í rifr­ildi. Øygard greinir frá því að einn lán­ar­drott­inn hafi þar verið mjög ákafur og sagt: „Látið okkur bara fá fjár­magns­flæðið úr fisk­vinnsl­unni og orku­ver­unum.“ Honum varð ekki að ósk sinni.

Upp­runa­legir kröfu­hafar seldu snemma kröfur sínar á hrakvirði, frá rúmu einu pró­senti af skráðu virði þeirra og upp í um sex pró­sent. Þeir sem höfðu keypt skulda­trygg­ingar leystu þær sömu­leiðis út og selj­endur þeirra sátu uppi með stór­tap. Øygard metur það sem svo að þegar allt sé talið hafi fjár­festar tapað 40 millj­örðum evra (rúm­lega 5.500 millj­arðar króna á núvirði) vegna hruns­ins á Íslandi. Sú tala er fengin út frá efna­hags­reikn­ingum bank­anna og hlut­falli end­ur­heimta. Hlut­hafar töp­uðu öllu sínu. Það gerðu líka þeir sem veittu lánin sem farið var með sem eigið fé, svokölluð afleidd lán. Alls var tap þess­ara aðila 12 millj­arðar evra. Tap lán­ar­drottna bank­anna nam svo 28 millj­örðum evra.

Kröfuhafar og íslenska ríkið verðlaunuð

Í stað þessara aðila mættu sjóðir sem oft eru kallaðir hrægammasjóðir. Þeir eru tilbúnir að taka mikla áhættu í flóknum stöðum þar sem ávinningurinn, ef veðmálið gengur upp, getur verið feykilega mikill. Á meðal þeirra allra fyrstu sem mættu til Íslands voru fulltrúar frá stórbankanum Goldman Sachs. Alls komu hingað tæpur helmingur stærstu áhættusjóða heims, alls 20 af 50, og flestir þeirra eru frá Bandaríkjunum.

Áhættusjóðirnir sáu möguleika á miklum ágóða, sérstaklega í Kaupþingi og Glitni, þar sem innlán, sem voru orðin að forgangskröfum vegna neyðarlaganna, höfðu verið svo lítill hluti af fjármögnun þeirra og markaðsbréf svo stór hluti hennar. Veikleikinn í bankastarfseminni varð spennandi fyrir hrægamma.

í bók Øygard er rætt við umsjónarmann eins sjóðanna sem vildi ekki láta nafn síns getið né fyrir hvaða sjóð hann var að starfa. Hann segir þar: „Við keyptum svolítið síðla árs 2011 og sóttum í okkur veðrið í ársbyrjun 2012[...]Árið 2012 keyptum við í nafni aðalsjóðsins okkar. Árið 2013, stofnuðum við sjóð þar sem fjárfestar gátu fjárfest beint í þrotabúum Glitnis og Kaupþings. Árið 2016 bættist við sjóður sem átti hluta af ábatanum af uppgjörinu. Árið 2017 bættum við enn einum sjóði við, hann átti einn nýju bankanna að hluta.“

[adspot]Nauðasamningarnir sem voru gerðir við þrotabú föllnu bankanna árið 2015 hleypti kröfuhöfunum svo beint að eignunum. Það gerði þeim kleift að vinna enn betur úr þeim og auka hagnað sinn umtalsvert frá því sem áður var áætlað, um allt að 65 prósent. Það útskýrir að þessir aðilar voru enn að bæta við nýjum sjóðum á Íslandi á árinu 2017, tæpum tveimur árum eftir að nauðasamningar voru handsalaðir.

Sami viðmælandi segir síðar í sama kafla að hans sjóður hafi ráði um 40 prósent í einu þrotabúanna snemma árs 2018. Líklegt verður að telja að sjóðstjórinn sem um ræðir starfi hjá Taconic Capital, sem átti 46 prósent í Kaupþingi ehf. í byrjun árs í fyrra og 47,7 prósent í byrjun yfirstandandi árs.

Í bókinni er greint frá því að árið 2016 hafi tímaritið The Ameican Lawyer valið vinningshafa í árlegri verðlaunaafhendingu fyrir lögfræðistörf. Átján fyrirtæki sem komu fram fyrir fjögur þrotabú, handhafar skuldabréfa, þrotabússtjórar og íslenska ríkið hrepptu verðlaunin í flokknum Endurskipulagning alþjóðlegra fjármála einkaaðila fyrir endurreisn íslensku bankanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár