Vildi láta elta uppi peninga sem eigendur bankanna höfðu tekið út rétt fyrir hrun

Svein Harald Øygard, sem var seðla­banka­stjóri í nokkra mán­uði, lét færa það álit sitt í fund­ar­gerð að hann teldi að það ætti að hafa uppi á sjóðum eig­enda og stjórn­enda föllnu bank­anna sem væru í felum.

Norð­mað­ur­inn Svein Harald Øygard, sem var Seðla­banka­stjóri á Íslandi frá febr­ú­ar­lokum 2009 og fram til 20. ágúst sama ár, taldi það á meðal margra brýnna mála sem Ísland stóð frammi fyrir „að elta uppi þá pen­inga sem helstu eig­endur og stjórn­endur bank­anna kynnu að hafa tekið út úr bönk­unum rétt fyrir hrun.“ Frá þessu greinir hann í bók sinni „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“ sem kom nýverið út á íslensku.

[links]Í bók­inni rekur Øygard efna­hags­sögu Íslands síð­asta rúma ára­tug­inn og hvernig landið breytti djúpri kreppu í efna­hags­lega vel­sæld frá sjón­ar­horni Norð­manns sem dvaldi um tíma í Seðla­banka Íslands.

Þar segir hann að allir íslensku bank­arnir hafi fyrir hrun verið sýktir af lána­starf­semi út á vensl. Mörg lán hafi verið veitt fag­mann­lega og sam­kvæmt bestu starfs­háttum, en sann­ar­lega ekki öll. „Ef banki, ríkið eða þrotabú á að end­ur­heimta slíka fjár­muni þarf afskap­lega margt að koma til. Gífurleg aðföng þarf til, ein­beitni og fag­legan stuðn­ing sér­fræð­inga sem hafa reynslu af því að end­ur­heimta fjár­muni. Oft hafa pen­ing­arnir verið sendir í skatta­skjól í löndum þar sem eign­ar­hald er ógagn­sætt með öllu.“

[adspot]Engin von sé um end­ur­heimtur nema að kall­aðir séu til aðilar með sér­tæka þekk­ingu sem njóta við­ur­kenn­ingar að lögum og bera fram kröfur sem taldar séu rétt­mætar. „Að mínu mati voru þrotabú hrundu bank­anna í kjörað­stöðu til þess að elta uppi fjár­magnið á flótta[...]Ég mælti með því að allt yrði reynt,“ segir Øygard í bók­inni.

„Þegar ég mætti mót­spyrnu lét ég bók­færa álit mitt í fund­ar­gerð. Ég er enn þeirrar skoð­unar að þrota­búin hefðu átt að gera meira til þess að hafa uppi á sjóðum sem voru lík­lega í felum.“

Hundruð milljarða á aflandseyjum

Fyrir liggur að það varð stökk­breyt­ing á flæði fjár frá Íslandi til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili.

Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 var, sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­ar 2017, ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­arðar króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 talið nema um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári var tapið vegna van­tal­inna skatta talið vera á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

[adspot]Þegar Panama­skjölin voru opin­beruð kom skýrt í ljós að flestir aðal­eig­endur Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans, auk ýmissa lyk­il­stjórn­enda, áttu félög á aflandseyjum þar sem digrir sjóðir voru geymdir í vari frá kröfu­höfum og skatta­yf­ir­völdum. Sömu sögu er að segja um ýmsa stóra við­skipta­vina bank­anna. Allir höfðu þessir aðilar fengið gríð­ar­lega há lán hjá íslensku bönk­unum fyrir banka­hrun sem þurfti að afskrifa af stóru eða öllu leyti. Hluti þess­arra sjóða hafa verið ferjaður aftur til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands þar sem þeir öðl­uð­ust nýtt lög­mæti, opn­uðu leið til að leysa út geng­is­hagnað og nýtt­ust til að kaupa upp eignir, oft á hrakvirði, innan fjár­magns­hafta.

Hvað varð um peninganna sem teknir voru að láni?

Øygard er ekki sá eini sem kallað hefur eftir því að pen­ingar helstu eig­enda og stjórn­enda íslensku bank­anna yrðu eltir uppi.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrif­aði til að mynda um þetta í grein sem hann birti í Vís­bend­ingu í sept­em­ber 2018. Þar sagði Gylfi: „„Sú spurn­ing kom fram hvað hefði orðið um þá þús­undir millj­arða sem teknir voru að láni af íslensku bönk­un­um. Í ljós kom að ekki hefur verið gerð til­raun til þess að finna þessa pen­inga. Það sem liggur fyrir er að eig­endur bank­anna lán­uðu sjálfum sér og eigin eign­ar­halds­fé­lögum óspart en ekki liggur fyrir hversu mikið af láns­fénu tap­að­ist í erlendum fjár­fest­ingum og hversu miklu var komið undan í skatta­skjól.“

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um bók Øygard á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár