Segir peningamarkaðssjóði ekki svikamyllu heldur form af skammtímafjármögnun

Fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Glitnis neitar því að pen­inga­mark­aðs­sjóðir bank­anna hafi verið not­aðir til að „redda“ eig­endum þeirra fyrir hrun. Rík­is­bankar þurftu að setja 130 millj­arða króna inn í sjóð­ina en samt tap­aði venju­legt fólk stórum fjár­hæðum.

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Mynd: Skjáskot/Kveikur

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, athafna­maður og sem var einn fyr­ir­ferða­mesti fjár­festir Íslands fyrir banka­hrun, þver­tekur fyrir að pen­inga­mark­aðs­sjóðir föllnu bank­anna hafi verið ein­hvers­konar svika­mylla. Um hafi verið að ræða form af skamm­tíma­fjár­mögnun fyrir fyr­ir­tæki. „Var það svika­mylla? Menn voru að kaupa skulda­bréf af fyr­ir­tækjum og þeir sem áttu í sjóð­unum fengu fína ávöxtun. Þegar við komum að þessum enda­punkti að eigna­bólan springur þá verður ákveðið tjón. Það er ekki bara hérna heldur gleymum því ekki að í Banda­ríkj­unum gekk alrík­is­stjórnin í ábyrgð fyrir öllum pen­inga­mark­aðs­sjóðum.“ Þetta kom fram í við­tali við Jón Ásgeir í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV í kvöld, en bók um Jón Ásgeir, Málsvörn, er vænt­an­leg í versl­anir bráð­lega.

Í við­tal­inu segir Jón Ásgeir það rangt að pen­inga­mark­aðs­sjóðir bank­anna sem féllu haustið 2008 hafi verið not­aðir til að fá koma pen­ingum til fjár­fest­inga­fé­laga sem hann stýrði, Baugs og FL Group (síðar Stoðir), þegar þau gátu ekki fengið lán ann­ars­staðar. „Pen­inga­mark­aðs­sjóðir voru að fjár­festa mjög víða[...]Þetta var ekki leið til að redda okkur.“

Sjálfstæð kerfisleg áhætta

Á árunum fyrir hrun ráku allir stóru bank­arn­ir, og mörg minni fjár­mála­fyr­ir­tæki, pen­inga­mark­aðs­sjóði. Þeir fjár­festu í verð­bréf­um, að mestum hluta íslenskum skulda­bréf­um, og hart var lagt að almenn­ingi í land­inu að geyma sparnað sinn í þessum sjóð­um, oft með ræðum um að þeir væri jafn öruggir og inn­lán. Eini mun­ur­inn væri sá að ávöxtun pen­inga­mark­aðs­sjóða væri mun meiri en á inn­láns­reikn­ing­um. Jón Ásgeir var á þessum árum afar fyr­ir­ferða­mik­ill í íslensku við­skipta­lífi. Þegar umsvifin voru sem mest átti hann í 84 fyr­ir­tækjum og sam­stæða hans skuld­aði íslensku bönk­unum svo mikið fé að hún var talin sjálf­stæð kerf­is­leg áhætta fyrir íslenska fjár­mála­kerfið.

[adspot]Ef Baugur og tengd félög myndu falla og ekki geta greitt skuldir sínar gætu stóru bank­arnir þrír fallið með þeim. Við hrunið var talið að félög tengd Jóni Ásgeiri hafi skuldað íslenskum bönkum yfir eitt þús­und millj­arða króna. Hann hefur sjálfur ætið dregið þá tölu í efa. Á meðal eigna Jóns Ásgeirs og við­skipta­fé­laga hans fyrir hrun var ráð­andi eign­ar­hlutur í Glitni.

Yfir helmingur eigna sjóða voru bréf frá FL Group og Baugi

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna, sem kom út í apríl 2010, kom fram að tveir sjóðir í eigu rek­star­fé­lags Glitn­is, Sjóður 1 og Sjóður 9, voru að jafn­aði með yfir 50 pró­sent af heild­ar­eign sjóð­anna í bréfum frá tveimur útgef­end­um, Stoðum/FL Group og Baugi. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að þessir tveir sjóðir hafi verið látnir kaupa upp heilu skulda­bréfa­flokk­anna frá þessum tveimur aðil­um. Þegar Glitnir féll nam virði bréfa frá Baugi í Sjóði 9 til dæmis 12,9 pró­sent af heild­ar­sam­setn­ingu hans, eða 12,5 millj­arða króna. Um 22 millj­arðar voru þar í bréfum frá Stoð­um/FL Group.

Þá voru dæmi um að sjóðir innan Glitnis sjóða hafi átt við­skipti sín á milli með „óskráð og illselj­an­leg bréf“. Eitt slíkt dæmi voru við­skipti með Baugs­bréf þann 28. des­em­ber 2007, þegar Sjóður 9 var lát­inn selja bréf frá Baugi á nokkra millj­arða króna til fag­fjár­festa­sjóðs í eigu Glitn­is. Strax eftir ára­mótin keypti Sjóður 9 síðan bréfin til baka. Ástæðan var sú að sjóð­irnir birtu eigna­safn sitt opin­ber­lega líkt og það var í árs­lok. Til að risa­eign Sjóðs 9 í Baugs­bréfum myndi ekki sjást á yfir­lit­inu voru þau geymd í nokkra daga í öðrum sjóði en síðan færð til baka.

Sjóður 9 var því stút­fullur af skulda­bréfum útgefnum af félögum sem annað hvort tengd­ust helstu eig­endum Glitnis eða stærstu skuld­urum bank­ans. Hann hefur verið kall­aður rusla­kista sem var síðan seld almenn­ingi sem sparn­að­ar­leið með mik­illi ávöxt­un.

Bréf keypt út fyrir 130 milljarða

Það var þó ekki bara Sjóður 9 og Glitnir sem voru á gráu svæði með starf­semi sína. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að pen­inga­mark­aðs­sjóðum rekstr­ar­fé­laga gömlu bank­anna hafi öllum verið stýrt af stjórn­endum bank­anna sjálfra, þeir keypt heilu útgáfur verð­bréfa af félögum tengdum bönk­un­um, beitt blekk­ingum í mark­aðs­setn­ingu og end­ur­fjár­magnað nán­ast alltaf skulda­bréfa­flokka þannig að „starf­semi pen­inga­mark­aðs­sjóða virð­ist fremur hafa svipað til hefð­bund­innar útlána­starf­semi banka.“

[adspot]Að end­ingu keyptu nýju bank­arnir þrír, þá í eigu rík­is­ins, skulda­bréf úr sjóðum föllnu bank­anna þriggja á miklu yfir­verði. Glitnir greiddi um 56,7 millj­arða króna fyrir bréf úr sínum sjóð­um, Lands­bank­inn greiddi 66,2 millj­arða króna fyrir bréf úr sínum sjóðum og Kaup­þing á sjö­unda millj­arð króna fyrir bréf úr sínum sjóð­um. Alls greiddu nýju bank­arnir því um 130 millj­arða króna fyrir verð­lítil eða verð­laus skulda­bréf út úr pen­inga­mark­aðs­sjóð­un­um. Sjóðs­fé­lagar fengu eignir sínar greidd­ar, sem voru ekki með neinum hætti tryggðar með lögum eða yfir­lýs­ing­um, að hluta, en end­ur­greiðslur voru á bil­inu 60,2-85,3 pró­sent.

Því töp­uðu þeir ein­stak­lingar sem fjár­festu í sjóð­unum allt að 40 pró­sent af eign sinni, þrátt fyrir að rík­is­bankar hafi sett 130 millj­arða króna inn í þá til að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fallið.

Fjár­mála­eft­ir­litið harð­lega gagn­rýnt

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis fær Fjár­mála­eft­ir­litið harðar ákúrur vegna eft­ir­lits­leysis með pen­inga­mark­aðs­sjóð­um. Þar var meðal ann­ars bent á að eitt til tvö stöðu­gildi hafi átt að fylgj­ast með alls 94 sjóðum bank­anna, eft­ir­litið hafi ekki beitt þeim vald­heim­ildum sem það gat og hefði ekki brugð­ist við brotum á lögum og reglum um starf­semi sjóð­anna. Einn starfs­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sagði fyrir nefnd­inni það ekki „hafa tíðkast“ að beita við­ur­lögum og að „for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins [Jónas Fr. Jóns­son] hafi verið mjög áhuga­laus um allt sem við kom eft­ir­liti með sjóð­u­m.“

Þá segir í skýrsl­unni að eini starfs­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins „í eft­ir­liti með sjóðum fór í langt leyfi í nóv­em­ber 2006 [...]og fram í maí 2007. Eng­inn var ráð­inn í hans stað í heilt ár og voru sjóð­irnir því í raun sem næst án eft­ir­lits á því tíma­bili. Slíkt verður að telj­ast alvar­leg van­ræksla af hálfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.“ Í ljós þess hversu atkvæða­lítið Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var „gagn­vart sjóð­unum má spyrja hvort að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafi gert sér grein fyrir þeirri áhættu sem fólst í starf­semi þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár