Fullyrðir að gjaldeyri hafi verið stolið úr Seðlabankanum með fölskum reikningum

„Mér fannst ótrú­legt að Íslend­ingar væru að halda áfram að plata og svíkja,“ segir Jared Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­andi á verð­bréfa­sviði FME. Hann segir að fölskum reikn­ingum hafi verið beitt til að ná í gjald­eyri á afslætti árin 2008 og 2009.

Jared Bibler er að fara að gefa út bók um hrun íslensku bankanna og eftirmála í upphafi októbermánaðar.
Jared Bibler er að fara að gefa út bók um hrun íslensku bank­anna og eft­ir­mála í upp­hafi októ­ber­mán­aðar. Mynd: Aðsend

Fyrr­ver­andi rann­sak­andi á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að gjald­eyri hafi verið stolið út úr Seðla­banka Íslands í stórum stíl í kjöl­far þess að banka­kerfið á Íslandi hrundi í fangið á almenn­ingi og gjald­eyr­is­höft voru sett á haustið 2008.

Þetta segir rann­sak­and­inn fyrr­ver­andi, Jared Bibler, að hafi verið gert með upp­setn­ingu skúffu­fyr­ir­tækja úti í Evrópu sem gáfu út falska reikn­inga, til dæmis fyrir ráð­gjafa­þjón­ustu, til íslenskra fyr­ir­tækja. Íslensku fyr­ir­tækin fram­vís­uðu þessum sömu reikn­ingum til Seðla­bank­ans og fengu að kaupa gjald­eyri á kjörum sem voru allt önnur en voru í boði fyrir utan Ísland. Síðan var féð flutt aftur til Íslands með veru­legum geng­is­hagn­aði og gróð­inn sem varð til í reynd nið­ur­greiddur af íslenskum almenn­ingi.[links]

Jared segir við Kjarnann að hann viti til þess að það hafi verið „smá teymi innan FME að skoða þetta árið 2009“ og eitt­hvað hafi verið sent til Seðla­bank­ans vegna þess­ara mála, en hann viti ekki hvernig þessum málum lauk. Sjálfur lauk hann störfum hjá FME undir lok árs 2011.

Hann segir fyrr­ver­andi banka­starfs­menn vera á meðal þeirra sem hafi nýtt sér þessa leið til þess að verða sér úti um gjald­eyri með veru­legum afslætti hjá íslenska rík­inu á tímum hafta.

„Það virk­aði þannig að Seðla­bank­inn borg­aði alltaf reikn­inga ef þeir komu frá til dæmis Bret­landi í pundum eða frá Sviss í frönkum. Menn gátu bara stillt upp ein­hverju dummy fyr­ir­tæki í Sviss og það gat selt ráð­gjafa­þjón­ustu til Íslands, fyrir kannski 100 þús­und franka. Svo er hægt að setja upp skúffu­fyr­ir­tæki á Íslandi og fyr­ir­tækið mitt í Sviss sendir fyr­ir­tæk­inu þínu á Íslandi reikn­ing fyrir 100 þús­und franka ráð­gjafa­þjón­ustu. Það voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi og ekki hægt að kaupa franka nema maður væri með reikn­ing. Þú gast farið með reikn­ing­inn í Seðla­bank­ann og sagt: „Getið þið greitt þessa 100 þús­und franka út til Sviss?“

[adspot]

Seðla­bank­inn sagði bara: „Já, ekk­ert mál. Here you go. Hér eru 100 þús­und frankar frá þjóð­inni út til Sviss.“ Og ég í Sviss fæ 100 þús­und franka frá þér, frá Íslandi. Núna er ég með 100 þús­und franka úti í Sviss og get núna keypt rík­is­skulda­bréf og sent aftur til þín. Og þú ert að tvö­falda pen­ing­inn þinn í krónum á Íslandi. Og þjóðin er að borga það, Seðla­bank­inn er að borga það. Þetta var mikið í gangi á Íslandi árið 2009,“ sagði Jared, sem ræddi um efni vænt­an­legrar bókar sinnar um banka­hrunið og eft­ir­mála þess í ítar­legu við­tali sem birt­ist í Kjarn­anum á sunnu­dag.

Hann sagði frá því að þessi mis­notkun á gjald­eyr­is­við­skipt­unum við Seðla­bank­ann hafi komið honum á óvart. „Þetta var svo erfitt á þessum tíma og maður varla átti fyrir mat. Ástandið var svo slæmt á Íslandi. Mér fannst ótrú­legt að Íslend­ingar væru að halda áfram að plata og svíkja,“ sagði Jared, sem leiddi annað af tveimur teyma sem feng­ust við rann­sóknir á hrun­mál­unum innan FME um rúm­lega tveggja ára skeið.

Ekki hans hlutverk að vera vinsæll

Af lestri bókar Jareds, sem ber heitið Iceland’s Secret og kemur út á vegum bresku útgáf­unnar Harriman House í byrjun októ­ber, er ljóst að hann hefur miklar mætur á Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara, sem gegndi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara frá 2009-2015.

Aðspurður segir hann þá tvo hafa átt gott vinnu­sam­band, hvor í sinni stofn­un­inni, en í bók­inni ræðir hann tölu­vert um gagn­rýni sem Ólafur Þór sem sér­stakur sak­sókn­ari fékk frá ákveðnum kreðsum á Íslandi.

„Það var ekki starfið hans að vera vin­sæll,“ segir Jared og hlær, spurður út í gagn­rýn­ina sem sett var fram á störf sér­staks sak­sókn­ara. Hann seg­ist raunar hafa farið með þessa sömu mön­tru er hann starf­aði hjá FME. „Ég sagði oft við sjálfan mig, það er ekki mitt hlut­verk að vera vin­sæll. Ef ég er vin­sæll hjá þeim hjá Arion er ég ekki að vinna vinn­una mína.“

Hann segir sér­stakan sak­sókn­ara alltaf hafa verið opinn fyrir nýjum upp­lýs­ingum, for­vit­inn og til­bú­inn að læra nýja hluti í sínu starfi, sem hafi hjálpað Jared sjálfum í starfi sínu hjá FME.

„Ég vissi aldrei hversu mikið pláss ég var með til þess að gera eitt­hvað innan FME en þegar ég hitti Ólaf í fyrsta skipti þá vissi ég að þarna væri maður sem ég gæti talað við,“ segir Jared.

Hann nefnir að Ólafur Þór hafi ekki komið inn í starfið með mikla sér­þekk­ingu á efna­hags­brota­málum eins og emb­ætti hans var falið að rann­saka, en áður en Ólafur Þór var skip­aður sér­stakur sak­sókn­ari hafði hann verið sýslu­maður á Akranesi og þar áður á Hólmavík.

„Hann var alltaf for­vit­inn og vildi læra og skilja. Hann var einn af þeim bestu sem ég hef starfað með á ævinni,“ segir Jared.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár