Varaseðlabankastjóri hafnar ummælum sem eftir henni eru höfð í nýrri bók

Unnur Gunn­ars­dóttir vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits hafnar því að hafa látið ummæli falla sem höfð eru eftir henni í bók eftir Jared Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­anda á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Unnur Gunnarsdóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Jared Bibler fyrrverandi rannsakandi hjá FME.
Unnur Gunn­ars­dóttir vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits og Jared Bibler fyrr­ver­andi rann­sak­andi hjá FME. Mynd: Samsett

Unnur Gunn­ars­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits og áður for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hafnar því að hafa látið ummæli falla sem höfð eru eftir henni í nýrri bók eftir Jared Bibler, fyrr­ver­andi rann­sak­anda á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari frá Seðla­bank­anum við fyr­ir­spurn Kjarnans um efni bók­ar­innar, Iceland’s Secret, sem kom út í Bret­landi á dög­unum.

Samtal á stefnumótunarfundi á Flúðum

Í bók­inni vísar höf­und­ur­inn til sam­tals sem hann seg­ist hafa átt við Unni, sem þá var yfir­lög­fræð­ingur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, á stefnu­mót­un­ar­fundi stofn­un­ar­innar sem fram fór á Flúðum haustið 2011.[links]

Samkvæmt því sem Jared skrifar í bók­inni viðr­aði hann þá skoðun sína á fund­inum að setja þyrfti á fót var­an­legt eft­ir­litsteymi innan Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem gæti skoðað meint brot fjár­mála­fyr­ir­tækja með svip­uðum hætti og rann­sókn­arteymin sem sett voru á fót hjá stofn­un­inni eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hefðu gert.

„Við þurfum ekki á þér eða slíku teymi að halda lengur. Ekki vera barna­legur, fjár­mála­glæp­irnir sem áttu sér stað hérna voru allir árið 2008. Þetta mun aldrei ger­ast aftur,“ hefur Jared eftir Unni í bók­inni og lýsir því svo að hann sjálfur hafi ekki átt nein svör við þessu við­horfi, sem honum fannst vera farið að ein­kenna yfir­stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á þessum tíma.

"We don’t need you or this kind of team anymore. Don't be naïve, the financial crime that happened here, that was all back in 2008. It won't ever happen again," er orðrétt haft eftir Unni í bókinni.

Í sam­tali við Kjarnann í sept­em­ber full­yrti Jared, spurður út í þessi meintu ummæli Unnar, að hún hefði látið þau falla og að þau hefðu verið honum mikil von­brigði. Hann sagði bók­ina sann­sögu­lega og allt sem í henni stæði væri satt og rétt sam­kvæmt hans bestu vit­neskju.

[adspot]

Jared starf­aði sem rann­sak­andi á verð­bréfa­sviði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá því í apríl 2009 og þar til í nóv­em­ber 2011. Hann leiddi annað af tveimur teymum sem stóðu í því að rann­saka mál sem tengd­ust hruni bank­anna og hefur ritað bók þar sem hann lýsir reynslu sinni af því starfi og sömu­leiðis starfi í Lands­bank­anum miss­erin áður en banka­kerfið hrundi.

Unnur Gunn­ars­dóttir var ráðin sem for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins árið 2012 og var Jared sjálfur á meðal ann­arra umsækj­enda um stöð­una.

Kjarninn beindi spurn­ingu til Seðla­bank­ans um þessi orð sem Jared hefur eftir Unni í bók­inni og hvort vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits kann­að­ist við að hafa látið þessi orð, eða önnur álíka, falla í sam­tali við Jared.

Blaða­maður spurði einnig hvort að til­vitn­unin eins og hún er sett fram í bók­inni væri lýsandi fyrir þau við­horf sem vara­seðla­banka­stjór­inn hafði til rann­sókna Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á hrun­mál­unum á þessum tíma.

Í svar­inu frá Seðla­bank­anum hvað þetta varðar segir að vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits hafni því „að hafa látið nefnd ummæli falla í sam­tölum sínum við höf­und bók­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár