Jóla- og áramóta minnisblað rætt á ráðherrafundi og ríkisstjórnarfundi

Sótt­varna­ráð­staf­anir sem gilda munu yfir jól og ára­mót verða kynntar að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi á morgun.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fékk minnisblað frá sóttvarnalækni í morgun þar sem má finna tillögur að sóttvarnaráðstöfunum sem gilda munu yfir jól og áramót.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra fékk minn­is­blað frá sótt­varna­lækni í morgun þar sem má finna til­lögur að sótt­varna­ráð­stöf­unum sem gilda munu yfir jól og ára­mót. Mynd: Bára Huld Beck

Minn­is­blað sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skil­aði Willum Þór Þórssyni heil­brigð­is­ráð­herra í morgun með til­lögum að inn­an­lands­að­gerðum um jól og ára­mót verður rætt á fundi ráð­herra­nefndar síð­degis. Þá verður efni minn­is­blaðs­ins rætt á rík­is­stjórn­ar­fundi í fyrra­málið. Að honum loknum verða breyt­ingar á sótt­varna­ráð­stöf­unum, ef ein­hverjar verða, kynntar.

Um 200 smit hafa greinst hér á landi síð­ustu daga. Nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar, ómíkron, hefur einnig verið að sækja í sig veðrið hér á landi. Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­ala, telur að með áfram­hald­andi þróun megi búast við um sex hund­ruð smitum dag­lega. Í við­tali á Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun bar hann stöð­una hér á landi saman við stöð­una í Danmörku og Noregi. Már segir að með þessu áfram­haldi gætu sex lagst inn á spít­ala vegna Covid-19 dag­lega og segir hann að spít­al­inn muni ekki ráða við það ofan á það álag sem þar er fyrir.

Frá því að fjórða bylgjan hófst í lok júní hafa 233 lagst inn á spít­ala. Í dag liggja 11 sjúk­lingar á Land­spít­ala með Covid-19, tveir þeirra eru á gjör­gæslu og annar í önd­un­ar­vél. Sjötugur karl­maður lést á spít­al­anum af völdum Covid-19 um helg­ina.

[links]Líkt og fyrr segir verður efni minn­is­blaðs sótt­varna­læknis rætt á fundi ráð­herra­nefndar í dag og á rík­is­stjórn­ar­fundi í fyrra­málið. Að þeim fundi loknu ætti að skýr­ast hvaða sótt­varna­að­gerðir verða í gildi yfir jóla­há­tíð­ina.

Núver­andi reglu­gerð um tak­mark­anir á sam­komum fólks vegna far­sóttar tóku gildi 12. nóv­em­ber og gilda til 22. des­em­ber. Sam­kvæmt þeim mega 50 manns koma saman í sama rými en heim­ilt er að hafa allt að 500 manns í rými á við­burðum gegn því að fólk fram­vísi nei­kvæðu hrað­prófi og að 1 metra nálægð­ar­mörk séu tryggð. Ef það er ekki hægt skal fólk bera grímu fyrir vit­um.

Eins metra nálægð­ar­reglan er svo almenn, t.d. á vinnu­stöðum og í annarri starf­semi, eins og segir í regl­un­um. Það sama á við um grímu­skyldu. Hana skal virða þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra bil milli ótengdra ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár