Líklegt að yfir 60 prósent íbúa Afríku hafi fengið COVID-19

Nýjar rann­sóknir benda til þess að tveir þriðju Afr­íku­búa hafi fengið COVID-19 og að dauðs­föll af völdum sjúk­dóms­ins séu þrisvar sinnum fleiri en opin­berar tölur segja til um.

Bestu gögnin um stöðu faraldursins í Afríku koma frá Suður-Afríku.
Bestu gögnin um stöðu far­ald­urs­ins í Afríku koma frá Suður-Afríku. Mynd: EPA

Yfir tveir þriðju Afr­íku­búa hafa að lík­indum fengið COVID-19 á síð­ustu tveimur árum eða 97 sinnum fleiri en opin­berar smit­tölur segja til um. Þetta er nið­ur­staða skýrslu Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO.

Samkvæmt nið­ur­stöðum úr sýna­tökum hafa 11,5 millj­ónir smita og 252 þús­und dauðs­föll orðið vegna sjúk­dóms­ins í Afríku. En WHO telur að um gríð­ar­legt van­mat sé að ræða og að í sept­em­ber á síð­asta ári hafi mögu­lega um 800 millj­ónir manna í heims­álf­unni verið búnar að sýkj­ast. Opin­berar tölur séu því aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum, að mati WHO. „Þetta bendir til að yfir tveir þriðju allra Afr­íku­búa hafi sýkst af veirunni sem veldur COVID-19,“ segir Mats­hi­diso Moeti, yfir­maður WHO í Afríku.

[adspot]

Við grein­ing­una voru bornar saman meira en 150 rann­sóknir sem gerðar voru í álf­unni á tíma­bil­inu jan­úar 2020 og des­em­ber 2021. Samkvæmt þeim þá jókst raun­veru­legur fjöldi smita úr 3 pró­sentum í júní 2020 í 65 pró­sent í sept­em­ber í fyrra.

„Þetta þýðir að í sept­em­ber hafi smitin ekki verið orðin 8,2 millj­ónir, líkt og opin­berar tölur sýndu, heldur 800 millj­ónir,“ segir Moeti.

Skýr­ingin á þessu mikla van­mati á sýk­ingum er sú að í flestum Afr­íku­löndum hefur aðgengi að sýna­tökum verið mjög tak­markað. Flestar sýna­tökur hafa verið teknar af fólki sem sýnt hefur sjúk­dóms­ein­kenni eða af ferða­mönnum sem heim­sótt hafa álf­una og þurft að gang­ast undir PCR-próf.

Moeti segir að reynst hafi flókið að finna út hversu margir hafi raun­veru­lega sýkst í Afríku, ekki aðeins vegna þess að aðgengi að sýna­tökum hefur verið mjög lítið heldur vegna þess að svo virð­ist sem að meiri­hluti sýktra hafi ekki fundið fyrir ein­kennum. Á sama tíma og kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft miklar afleið­ingar á mörgum svæðum heims­ins virt­ist sem Afríka hefði sloppið mun betur. Í álf­unni er heil­brigð­is­þjón­ustu víða ábóta­vant og því ótt­uð­ust sér­fræð­ingar hið versta.

[adspot]

Margar rann­sóknir hafa verið gerðar á þessu og benda sumar til þess að með­al­aldur fólks í Afr­íku­ríkjum, sem er lægri en ann­ars staðar, hafi orðið til þess að draga úr áhrifum far­ald­urs­ins. Ungt fólk sýk­ist síður alvar­lega en það sem eldra er.

Gríðarleg fjölgun dauðsfalla

En tölur yfir and­lát af völdum COVID-19 í Afríku eru ekki áreið­an­legar frekar en í far­öldrum ann­arra sjúk­dóma sem herjað hafa á þjóðir álf­unnar.

Flest smit, 3,7 millj­ónir, hafa greinst í Suður-Afríku enda sýna­tökur þar verið mun fleiri en ann­ars staðar í álf­unni. Þar er heil­brigð­is­kerfið líka betra en í nágranna­ríkj­unum.

Engu að síður er talið lík­legt að dán­ar­tíðni vegna COVID-19 sé umtals­vert hærri en opin­berar tölur sýna. Rúmlega 100 þús­und dauðs­föll vegna sjúk­dóms­ins hafa verið skráð í Suður-Afríku en ný rann­sókn heil­brigð­is­yf­ir­valda í land­inu bendir til að þrisvar sinnum fleiri hafi lát­ist. Sú nið­ur­staða byggir m.a. á því að í far­aldr­inum voru dauðs­föll almennt tæp­lega 303 þús­und umfram með­al­tal síð­ustu ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár