Þórólfur með jóla- og áramóta minnisblað í smíðum

Kúrfan marg­um­tal­aða er ekki á þeirri nið­ur­leið sem von­ast var eftir með hertum inn­an­lands­að­gerðum. Ef eitt­hvað er virð­ist hún á upp­leið. Sótt­varna­læknir er að skrifa nýtt minn­is­blað. Í því verða til­lögur að aðgerðum sem við þurfum að sæta yfir hátíð­irnar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Minn­is­blað fer frá mér til ráð­herra á næstu dögum,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvenær ljóst verður hvaða inn­an­lands­að­gerðir munu gilda yfir jól og ára­mót. Þórólfur heldur oft­ast spil­unum þétt að sér þegar minn­is­blöðin eru í smíðum. Á því hefur engin breyt­ing orðið miðað við stutt og laggott svar hans til Kjarnans.

Núver­andi reglu­gerð um tak­mark­anir á sam­komum fólks vegna far­sóttar tóku gildi 12. nóv­em­ber og gilda til 22. des­em­ber. Samkvæmt þeim mega 50 manns koma saman í sama rými en heim­ilt er að hafa allt að 500 manns í rými á við­burðum gegn því að fólk fram­vísi nei­kvæðu hrað­prófi og að 1 metra nálægð­ar­mörk séu tryggð. Ef það er ekki hægt skal fólk bera grímu fyrir vitum.

Eins metra nálægð­ar­reglan er svo almenn, t.d. á vinnu­stöðum og í annarri starf­semi, eins og segir í regl­unum. Það sama á við um grímu­skyldu. Hana skal virða þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra bil milli ótengdra ein­stak­linga.

Þegar þessar hertu tak­mark­anir voru settar á voru að grein­ast um 200 smit á dag. Þrýst­ingur var á þjón­ustu Land­spít­ala og þar sem alvar­leg veik­indi og sjúkra­húsinn­lagnir vegna COVID-19 koma í ljóst 1-2 vikum eftir að smit ná hámarki, voru engir sénsar teknir og tak­mark­anir hertar til að draga úr líkum á slíkri þróun.

Eftir að regl­urnar voru settar hefur svo nýtt afbrigði veirunnar, ómíkron, skotið upp koll­inum. Það virð­ist meira smit­andi en delta-afbrigðið en að sama skapi eru vís­bend­ingar um að það valdi ekki jafn alvar­legum veik­indum þótt enn eigi margt í því sam­bandi eftir að skýr­ast.

Upp, upp

Víða í lönd­unum í kringum okkur hafa aðgerðir verið hertar umtals­vert. Þannig er því t.d. farið í Danmörku og Noregi. Smit­tölur rísa þar hátt sem og í flestum Evr­ópu­ríkjum. Hættan sem sótt­varna­læknar vara við er sú að þótt ómíkrón valdi mild­ari ein­kennum hjá flestum gæti smit­fjöld­inn, yrði hann gríð­ar­legur, engu að síður aukið álagið á heil­brigð­is­kerfið.

Svo virt­ist um tíma sem að hinar hertu aðgerðir hér væru að skila þeim árangri að nið­ur­sveifla væri í smit­töl­unum. En síð­ustu daga hefur smitum fjölgað dag frá degi á ný.

Frá 1. júlí hafa 232 þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna COVID-19. 41 hefur þurft á gjör­gæslu­með­ferð að halda. Af þeim sem greinst hafa með sjúk­dóm­inn hér á landi hafa 36 lát­ist frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Tveir á gjörgæslu

Í dag liggja ell­efu á sjúkra­húsi vegna COVID og tveir eru á gjör­gæslu og báðir eru í önd­un­ar­vél. Með­al­aldur inniliggj­andi COVID-sjúkra á Lan­spít­al­anum er 75 ár. Meira en þriðj­ungur þeirra sem eru í ein­angrun í augna­blik­inu og í þjón­ustu hjá COVID-göngu­deild­inni eru börn. Það er mik­ill munur frá því í fyrri bylgjum far­ald­urs­ins.

Heil níu­tíu pró­sent lands­manna, 12 ára og eldri, eru full­bólu­sett. Það er með hæsta hlut­falli þjóðar sem þekk­ist í heim­inum. Tæplega 150 þús­und hafa að auki þegið örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Bólu­setn­ing barna á aldr­inum 5-11 ára hefur verið boðuð í byrjun næsta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár