Traust á ríkisstjórninni til að takast á við COVID-krísuna aldrei jafn lágt

Kvíði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur aldrei mælst minni sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Galllup. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks treysta rík­is­stjórn­inni áber­andi best til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar far­ald­urs­ins en traustið hefur almennt dalað.

Hátt í helmingur svarenda segist treysta ríkisstjórninni til þess að takast á við efnahagsleg áhrif veirufaraldurs. Hlutfall þeirra sem treystra ríkisstjórninni fyrir verkefninu hefur aldrei verið jafn lágt.
Hátt í helm­ingur svar­enda seg­ist treysta rík­is­stjórn­inni til þess að takast á við efna­hags­leg áhrif veiru­far­ald­urs. Hlutfall þeirra sem treystra rík­is­stjórn­inni fyrir verk­efn­inu hefur aldrei verið jafn lágt. Mynd: Kjarninn.

Traust á rík­is­stjórn­inni til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins hefur aldrei mælst minna en nú sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Þriðj­ungur svar­enda seg­ist treysta rík­is­stjórn­inni illa eða alls ekki til þess að takast á við efna­hags­legu áhrifin. Hátt í helm­ingur svar­enda, eða 48 pró­sent, seg­ist treysta rík­is­stjórn­inni vel eða full­kom­lega í þessu til­liti en 19 pró­sent svar­enda hvorki né.

Traust til rík­is­stjórn­ar­innar eykst með hækk­andi aldri en lít­ill munur er á afstöðu kynj­anna. Þriðj­ungur svar­enda yngri en 30 ára segj­ast treysta rík­is­stjórn­inni vel til þess að takast á við efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins. Í næsta ald­urs­flokki fyrir ofan, hjá þeim sem eru 30-39 ára mælist traustið 37 pró­sent. Traustið er komið upp í 49 pró­sent hjá þeim sem eru 40-49 ára og hjá þeim sem eru 50-59 ára mælist traustið 55 pró­sent. Traustið mælist mest hjá elsta ald­urs­hópnum en 58 pró­sent svar­enda sem eru 60 ára eða eldri segj­ast treysta rík­is­stjórn­inni til þess að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysta rík­is­stjórn­inni afger­andi best til þess að takast á við efna­hags­legu áhrifin eða 92 pró­sent. Meiri­hluti kjós­enda hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna treysta stjórn­inni til að takast á við verk­efnið, 74 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna treysta stjórn­inni vel til þess og 70 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Minnst mælist traustið hjá kjós­endum Pírata, 15 pró­sent kjós­enda flokks­ins treysta stjórn­inni en 62 pró­sent treysta henni illa.

Kvíði vegna faraldursins aldrei minni

Á dög­unum sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í við­tali við Vísi að allt benti til þess að hér hafi hjarð­ó­næmi verið náð og að Íslend­ingar gætu hrósað happi yfir stöð­unni. Samkvæmt upp­lýs­ingum á covid.is stendur nýgengni inn­an­lands­smita í 219,5 á hverja 100 þús­und íbúa en það hefur lækkað í hverri viku frá því í febr­úar þegar nýgengi fór yfir 10 þús­und.

Allt bendir til því þess að þjóðin sé að sigla hægt og rólega út úr far­aldr­inum. Frétta­flutn­ingur af far­aldr­inum gefur það einnig til kynna en dregið hefur úr umfjöllun um hann á síð­ustu vikum. Mælingar á kvíða lands­manna yfir far­aldr­inum end­ur­spegla þessa þróun en hann hefur aldrei mælst jafn lít­ill. Nú segj­ast þrír af hverjum fjórum finna fyrir litlum eða engum kvíða yfir far­aldr­inum. Í Þjóð­ar­púlsi Gallup frá því í jan­úar sögð­ust rétt rúm­lega helm­ingur svar­enda finna fyrir litlum eða engum kvíða vegna far­ald­urs­ins.

Á síð­ustu mán­uðum hafa áhyggjur fólks af því að smit­ast af COVID-19 einnig minnkað. Nú segj­ast 58 pró­sent svar­enda ótt­ast það frekar lítið eða mjög lítið að smit­ast. Einungis einu sinni áður hefur þetta hlut­fall mælst hærra en það var í júlí í fyrra þegar 68 pró­sent sögð­ust ótt­ast smit lítið eða mjög lítið.

Könnunin var fram­kvæmd þann 28. apríl til 8. maí. Í úrtaki könn­un­ar­innar voru 1654 ein­stak­lingar sem valdir voru úr við­horfa­hópi Gallup. Fjöldi sva­enda var 854 og þátt­töku­hlut­fall því 51,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár