Stjórnarandstaðan sameinast um að láta kanna loforð ráðherra í aðdraganda kosninga

Öll stjórn­ar­and­staðan á Alþingi hefur lagt fram skýrslu­beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­unar, með ósk um að skoðað verði hvernig ráð­herrar úthlutu eða lof­uðu fé í sumar, þegar þingið var ekki starf­andi og kosn­inga­bar­átta í gangi.

Helga Vala Helgadóttir er fyrsti skýrslubeiðandi.
Helga Vala Helga­dóttir er fyrsti skýrslu­beið­andi. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á þingi hafa óskað eftir því að fá skýrslu frá Rík­is­end­ur­skoðun, þar sem tekin verði saman öll fram­lög, styrkir, vilja­yf­ir­lýs­ingar, fyr­ir­heit og samn­ingar ráð­herra í rík­is­stjórn­inni frá því að Alþingi fór í sum­ar­frí 13. júní og þar til það sett­ist á ný 23. nóv­em­ber.

Fyrsti skýrslu­beið­andi er Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, en allir þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fimm, alls 25 tals­ins, eru skrif­aðir fyrir skýrslu­beiðn­inni.

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni segir að í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna í haust hafi borið á því að „ráð­herrar hefji úthlut­anir til ein­stakra mála í stórum stíl til að vekja athygli á sér og sínu fram­boði“ og sömu­leiðis að ráð­herrar hafi lofað „fjár­veit­ingum sem ekki hafa komið til form­legrar umræðu á Alþingi“ og eru lof­orð um fjár­veit­ingar til bygg­ingar geð­deilda, nem­enda­garða og þyrlu­skýrla sér­stak­lega nefnd í því sam­hengi.[links]

Stjórn­ar­and­staðan segir „ólýð­ræð­is­legt að svo sé farið með almannafé“ segja enn­fremur að með þessum hætti séu ráð­herrar jafn­vel að mis­nota aðstöðu sína.

„Skýrslu­beið­endur telja nauð­syn­legt að gagn­sæi og aðhald sé með fjár­veit­ingum sem þessum og til þess að það sé tryggt þarf að liggja fyrir óháð úttekt á þeim. Skýrslu­beiðnin er einnig gerð þannig að ekki megi efast um til­gang fjár­veit­inga ráð­herra og til að jafn­ræðis sé gætt milli mót­tak­enda hins opin­bera fjár­magns úr hendi ráð­herra,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Ráðherrar með veskið á loftið

Stundin greindi nýlega frá aðgerðum ráð­herra á síð­ustu dög­unum fyrir kosn­ing­ar, en margar þeirra fólu í sér tölu­verð fjár­út­lát fyrir rík­is­sjóð. Þar má nefna 25 millj­óna króna styrk­veit­ingu Svan­dísar Svav­ars­dóttur fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra til Píeta sam­tak­anna, auk 13 millj­óna króna styrks til Sjúkra­húss­ins á Akur­eyri.

Þá stofn­aði Ásmundur Einar Daða­son, fyrrum félags- og barna­mála­ráð­herra, styrkt­ar­sjóð sem mun greiða 10 millj­ónir króna árlega til Íþrótta­sam­bands fatl­aðra næstu þrjú árin. Hann gerði einnig þriggja ára samn­ing við Píeta sam­tökin um 25 millj­óna króna fram­lög á næstu þremur árum, auk þess sem hann sagði að 134 millj­óna króna stofn­fram­lag yrði veitt til Lýð­há­skól­ans á Flat­eyri fyrir bygg­ingu stúd­enta­garða.

[adspot]

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, fyrrum dóms­mála­ráð­herra, til­kynnti einnig að Land­helg­is­gæslan hefði fest kaup á nýju varð­skipi, Freyju, í sept­em­ber, en kaup­virði þess nam rúmum 1,7 millj­örðum króna. Þar að auki til­kynnti hún á svip­uðum tíma að bygg­ing nýs flug­skýlis fyrir Land­helg­is­gæslu Íslands myndi hefj­ast í vet­ur, en hún er talin munu kosta 696 millj­ónir króna.

Hversu miklum útgjöldum lofaði hver og einn ráðherra?

En hvað vill stjórn­ar­and­staðan fá að vita, varð­andi þau fyr­ir­heit sem ráð­herrar veittu um fjár­út­lát á meðan þingið var ekki starf­andi, frá júní og fram í nóv­em­ber?

Í fyrsta lagi er óskað eftir því að fram komi í skýrsl­unni í hverra þágu fram­lög, styrkir, vilja­yf­ir­lýs­ingar, fyr­ir­heit og samn­ingar sem kunna að fela í sér fjár­út­lát úr rík­is­sjóði voru í hverju til­viki fyrir sig og hvaða fjár­heim­ildir eða sam­þykktir Alþingis var stuðst við í hverju til­viki fyrir sig.

Einnig vill stjórn­ar­and­staðan að Rík­is­end­ur­skoðun fái á hreint hvaða fjár­hæðir er um að ræða, sund­ur­greint eftir ráð­herrum, og rök­semdir fyrir veit­ingu ein­stakra styrkja og sömu­leiðis að stofn­unin taki saman tíma­setn­ingar, skil­yrði, fyr­ir­vara eða annað sem geti haft áhrif á fram­vindu ein­stakra mála.

Stjórn­ar­and­staðan vill líka að rík­is­end­ur­skoð­andi upp­lýsi hvernig hafi verið gætt að skil­yrðum 42. gr. laga um opin­ber fjár­mál varð­andi styrk­veit­ingar, en sam­kvæmt þeirri laga­grein er ráð­herrum heim­ilt að veita til­fallandi styrki og fram­lög til verk­efna á mál­efna­sviðum sem þeir bera ábyrgð á. Gera þarf grein fyrir útgjöldum slíkra styrkja í fylgi­riti með fjár­laga­frum­varpi og í árs­skýrslu ráð­herra, auk þess sem að við úthlutun þarf að gæta almennra reglna stjórn­sýslu­réttar um jafn­ræði, hlut­lægni og gagn­sæi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár