„Ólýðræðislegt“ að ráðherrar úthluti stórum fjárhæðum rétt fyrir kosningar

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar vilja banna úthlut­anir ráð­herra á til­fallandi styrkjum og fram­lögum til þeirra mála­flokka sem þeir bera ábyrgð á þegar kosn­ingar nálg­ast með nýju frum­varpi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrum dómsmálaráðherra kynnir uppbyggingu nýs flugskýlis Landhelgisgæslu Íslands í september.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir fyrrum dóms­mála­ráð­herra kynnir upp­bygg­ingu nýs flug­skýlis Land­helg­is­gæslu Íslands í sept­em­ber. Mynd: Stjórnarráðið

Nýtt frum­varp frá þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar kveður á um að ráð­herrum verði óheim­ilt að veita styrki og fram­lög til þeirra mála­flokka sem þeir bera ábyrgð á allt að átta vikum fyrir kosn­ingar. Að mati flutn­ings­manna frum­varps­ins er slík ráð­stöfun ólýð­ræð­is­leg og felur hún í sér mis­notkun á aðstöðu ráð­herr­anna.

Borið á miklum fjárveitingum fyrir kosningar

Helga Vala Helga­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, en allir hinir þing­menn flokks­ins eru einnig flutn­ings­menn. Samkvæmt grein­ar­gerð­inni sem fylgdi frum­varp­inu hefur borið á því að ráð­herrar hefji úthlut­anir til ein­stakra mála í stórum stíl allt fram að kjör­degi til að vekja athygli á sér og sínu fram­boði.

Stundin greindi frá aðgerðum ráð­herra á síð­ustu dögum fyrir kosn­ingar, en margar þeirra fólu í sér tölu­verð fjár­út­lát fyrir rík­is­sjóð. Þar má nefna 25 millj­óna króna styrk­veit­ingu Svan­dísar Svav­ars­dóttur fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra til Píeta sam­tak­anna, auk 13 millj­óna króna styrks til Sjúkra­húss­ins á Akureyri.

Þá stofn­aði Ásmundur Einar Daðason, fyrrum félags- og barna­mála­ráð­herra, styrkt­ar­sjóð sem mun greiða 10 millj­ónir króna árlega til Íþrótta­sam­bands fatl­aðra næstu þrjú árin. Hann gerði einnig þriggja ára samn­ing við Píeta sam­tökin um 25 millj­óna króna fram­lög á næstu þremur árum, auk þess sem hann sagði að 134 millj­óna króna stofn­fram­lag yrði veitt til Lýð­há­skól­ans á Flateyri fyrir bygg­ingu stúd­enta­garða.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fyrrum dóms­mála­ráð­herra, til­kynnti einnig að Land­helg­is­gæslan hefði fest kaup á nýju varð­skipi, Freyju, í sept­em­ber, en kaup­virði þess nam rúmum 1,7 millj­örðum króna. Þar að auki til­kynnti hún á svip­uðum tíma að bygg­ing nýs flug­skýlis fyrir Land­helg­is­gæslu Íslands myndi hefj­ast í vetur, en hún er talin munu kosta 696 millj­ónir króna.

Ráðherrar nýti sér forréttindastöðu

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýna þessar úthlut­anir stuttu fyrir kosn­ingar, en í grein­ar­gerð­inni sem fylgdi frum­varp­inu sögðu þeir það vera „ólýð­ræð­is­legt að svo sé farið með almannafé og aðstaða sé mis­notuð með þessum hætti.“ Samkvæmt þeim er hætta á því að sitj­andi ráð­herrar nýti sér for­rétt­inda­stöðu sína til að afla sér hylli kjós­enda, bæði með aðgangi að fjöl­miðlum og opin­beru fjár­magni.

Því ætti ráð­herr­unum að vera óheim­ilt að veita til­fallandi styrki og fram­lög til verk­efna sem varða þá mála­flokka sem þeir beira ábyrgð á átta vikum fyrir aug­lýstan kjör­dag. Samkvæmt þing­mönn­unum er til­gang­ur­inn með þessum laga­breyt­ingum þrí­þættur. Í fyrsta lagi er þeim ætlað að koma í veg fyrir að hægt sé að efast um til­gang fjár­veit­inga ráð­herr­anna rétt fyrir kosn­ingar, en í öðru lagi ættu þær einnig að sjá til þess að jafn­ræðis sé gætt á milli mót­tak­enda hins opin­bera fjár­magns. Þar að auki ættu þær að tak­marka misvægi aðstæðna fram­bjóð­enda til Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár