Börn bíða þess óttaslegin að vera send aftur á flótta á meðan við hin njótum „gjafa, matar, friðar og öryggis“

Þing­maður Pírata hvetur Alþingi og inn­an­rík­is­ráð­herra að veita börnum á flótta og fjöl­skyldum þeirra þá jóla­gjöf að fá taf­ar­laust hæli hér á landi af mann­úð­ar­á­stæðum.

Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata.
Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Í ár eru 200 börn og ung­menni sem eru á flótta stödd á Íslandi yfir hátíð­irnar. Þau eiga það öll sam­eig­in­legt að hafa sótt um vernd á Íslandi.“

Þannig hóf Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata mál sitt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hann hélt áfram og sagði að mörg þess­ara barna væru á bil­inu núll til tveggja ára og sum hver ættu ófædd systk­ini. „Sum þeirra hafa ekki enn fengið úrlausn sinna mála og bíða því í óvissu og óör­yggi yfir hátíð­irnar á meðan allt lokar. Öðrum hefur verið neitað um vernd og þau bíða þess ótta­slegin að vera vísað úr landi og send aftur á flótta á meðan við hin komum saman og njótum hvert ann­ars, gjafa, matar, friðar og öryggis.“

Nú höfum við öll gleymt Alan og öðrum börnum á flótta

Rifjaði Gísli upp að fyrir sex árum hefði heims­byggðin öll vaknað upp við skelfi­lega mynd af tveggja ára barni á strönd­inni sem hafði drukknað eftir að hafa reynt að flýja til Evrópu.

„Heims­byggðin grét Alan litla og þjóð­ar­leið­togar víðs vegar um Evrópu opn­uðu hjarta sitt og leyfðu mannúð að ráða för um stund. Nú, sex árum síðar, höfum við öll gleymt Alan og öðrum börnum á flótta. Við höfum látið ósann­gjarnar og ómann­úð­legar reglur ráða för.

Þess gjalda þau 200 börn sem þegar eru komin til lands­ins. Nú yfir hátíð­irnar njóta þessi börn stuðn­ings, verk­efnis sjálf­boða­liða Solaris og vel­vildar stuðn­ings­að­ila þeirra, og veita við­töku lít­illi vetr­ar­gjöf sem ætlað er að gleðja hjarta þeirra örlítið yfir hátíð­irnar,“ sagði hann.

Hvatti Gísli að lokum Alþingi og Jón Gunn­ars­son inn­an­rík­is­ráð­herra til að fylgja for­dæmi Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, heiðra minn­ingu Alan Kurdi, sýna alvöru­kær­leika í verki og veita þeim börnum sem hingað eru komin og fjöl­skyldum þeirra þá jóla­gjöf að fá taf­ar­laust hæli hér á landi af mann­úð­ar­á­stæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár