Gistináttaskattur ekki innheimtur fyrr en árið 2024

Vegna áfram­hald­andi sam­dráttar og óvissu í ferða­þjón­ustu leggur rík­is­stjórnin til að gistin­átta­gjald verði ekki inn­heimt út árið 2023. Til stendur að útfæra gistin­átta­gjaldið upp á nýtt á kjör­tíma­bil­inu og láta sveit­ar­fé­lög njóta góðs af því.

Lagt er til að greiðsla og innheimta gistináttaskatts verði felld niður til og með 31. desember 2023, í bandormsfrumvarpi sem fylgdi fjárlagafrumvarpinu í dag.
Lagt er til að greiðsla og inn­heimta gistin­átta­skatts verði felld niður til og með 31. des­em­ber 2023, í band­orms­frum­varpi sem fylgdi fjár­laga­frum­varp­inu í dag. Mynd: Pexels

Gistin­átta­skattur, sér­stakt gjald sem leggst ofan á hverja selda ein­ingu næt­ur­gist­ingar, verður ekki inn­heimtur fyrr en árið 2024, sam­kvæmt því sem fram kemur í svoköll­uðum band­ormi – frum­varpi til breyt­inga á ýmsum lögum vegna fjár­laga­frum­varps næsta árs.[links]

Skatt­ur­inn var fyrst tek­inn upp árið 2012 og hefur þann til­gang að afla tekna til að stuðla að upp­bygg­ingu, við­haldi og verndun fjöl­sóttra ferða­manna­staða, frið­lýstra svæða og þjóð­garða. Skatt­ur­inn er nú 300 krónur fyrir hverja selda ein­ingu næt­ur­gist­ingar á Íslandi. Áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í upp­hafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatt­ur­inn skil­aði yfir 1,2 millj­örðum króna í rík­is­sjóð.

En svo kom veiran og lét á sér kræla. Skatt­ur­inn var felldur niður tíma­bundið í einum af fyrstu aðgerða­pökk­unum til þess að mæta efna­hags­legum áhrifum veirunnar. Skatt­ur­inn átti hins vegar að óbreyttu að taka gildi á ný þann 1. jan­úar 2022, en það mun ekki ger­ast, sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum rík­is­stjórn­ar­innar.

[adspot]

„Þar sem enn er mik­ill sam­dráttur í ferða­þjón­ustu og ófyr­ir­séð er hve lengi sam­drátt­ur­inn muni standa yfir er lagt til að bráða­birgða­á­kvæðið verði fram­lengt tíma­bundið og greiðsla og inn­heimta gistin­átta­skatts verði felld niður til og með 31. des­em­ber 2023. Fram­leng­ing á tíma­bund­inni nið­ur­fell­ingu gistin­átta­skatts mun skipta fyr­ir­tæki í hótel- og gisti­þjón­ustu í land­inu veru­legu máli,“ segir um þetta efni í nýju laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Gistináttaskattur til sveitarfélaga í stjórnarsáttmála

Fjallað er stutt­lega um gistin­átta­gjaldið í nýjum stjórn­ar­sátt­mála Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, sem kynntur var á sunnu­dag. Þar segir að stefnt sé að því að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lag gjald­töku í ferða­þjón­ustu heilt yfir, sam­hliða end­ur­reisn ferða­þjón­ust­unnar eftir far­ald­ur­inn.

Stefnt er að því að „breikka skatt­stofn­inn“ í ferða­þjón­ustu og „tryggja jafn­ræði aðila á mark­aði“ auk þess að breyta fyr­ir­komu­lagi gistin­átta­gjalds.

Þetta á að gera í sam­vinnu við grein­ina og sveit­ar­fé­lög lands­ins, „með það að mark­miði að sveit­ar­fé­lögin njóti góðs af gjald­tök­unni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár