Afkoma ríkissjóðs batnar um 120 milljarða króna milli ára

Bjartari sviðs­myndir um afkomu rík­is­sjóðs eru að raun­ger­ast. Peningar verða settir í við­bót­ar­hækkun á bótum örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega og fram­lög til heil­brigð­is­mála aukast mest. Ef mark­aðs­á­stæður eru góðar verður ráð­ist í frek­ari sölu á banka.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, við kynningu á fjárlagafrumvarpi ársins 2022 í morgun
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við kynn­ingu á fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2022 í morgun Mynd: Bára Huld Beck

Halli rík­is­sjóðs í ár stefnir nú í að verða um 288 millj­arða króna, en í vor var því spáð að hann yrði 320 millj­arðar króna. Áætlanir gera ráð fyrir að afkoman á næsta ári verði nei­kvæð um 169 millj­arða króna en fyrri spá gerði ráð fyrir að hall­inn yrði 223 millj­arðar króna.

Stærstu ástæður þess að þetta á sér stað er að dregið verður veru­lega úr stuðn­ingi vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19, sem veldur afkomu­bata hjá rík­is­sjóði upp á 68 millj­arða króna, og bættar efna­hags­horfur upp á 52 millj­arða króna. Það þýðir afkomu­bata um 120 millj­arða króna milli ára. Gert er ráð fyrir því að heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs verða 955 millj­arðar króna á næsta ári.

Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2022 sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í morgun.

Mest aukning í heilbrigðismál

Á útgjalda­hlið­inni er gert ráð fyrir að fram­lög til heil­brigð­is­mála auk­ist um 16,3 millj­arða króna en það er stærsta ein­staka hækkun útgjalda sam­kvæmt frum­varp­inu.

[adspot]Þá má nefna að fram­lög til lofts­lags­mála verða aukin um einn millj­arð króna og 800 millj­óna króna við­bót­ar­hækkun á bætur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega til við­bótar við almennar pró­sentu­hækk­anir.

Þá fara 540 millj­ónir króna í að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krónur skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hækka þótt heild­ar­fram­lagið til mála­flokks­ins lækki.

Búist er við að end­ur­greiðslur vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar verði sama upp­hæð og í ár, eða um 10,4 millj­arðar króna. Það er rúm­lega tvö­föld sú upp­hæð sem greidd var út árið 2020 vegna þessa. Þá eiga 5,2 millj­arðar króna að fara í bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila og 1,5 millj­arðar króna í fjár­fest­ingu í Stafrænu Íslandi.

Stefnt að bankasölu

Tekjur á næsta ári eru áætl­aðar 66 millj­örðum króna hærri en gert hafði verið ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun. Þetta skýrist einkum af veru­legri aukn­ingu tekna af tekju­skatti ein­stak­linga og trygg­inga­gjaldi, auk þess sem tekju­skattur lög­að­ila skilar 16 millj­örðum króna umfram það sem gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun. Veltu­skattar skila einnig tals­vert meiru og er nú reiknað með að tekjur af virð­is­auka­skatti verði til að mynda 10 millj­örðum króna ​meiri en fyrri áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Í fjár­laga­frum­varp­inu kemur einnig fram að verði mark­aðs­að­stæður ákjós­an­legar sé fyr­ir­hugað að draga enn frekar úr eign­ar­haldi í fjár­mála­kerf­inu með sölu á hlutum í Íslands­banka, en ríkið á sem stendur 65 pró­sent hlut í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár