Öll kjörbréfin 63 staðfest af Alþingi

Alþingi sam­þykkti í kvöld með 42 atkvæðum gegn 5 að stað­festa gildi umdeildra kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Sextán þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Já, sögðu 42 þingmenn er tekin var afstaða til gildis kosninganna í Norðvesturkjördæmi.
Já, sögðu 42 þing­menn er tekin var afstaða til gildis kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Öll 63 kjör­bréfin sem lands­kjör­stjórn gaf út þann 1. októ­ber voru stað­fest af meiri­hluta Alþingis í atkvæða­greiðslu á tíunda tím­anum. Ríkur þing­meiri­hluti var fyrir því að stað­festa kjör­bréf þeirra sextán þing­manna sem voru kjörnir í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eða sem jöfn­un­ar­menn í öðrum kjör­dæmum.[links]

Við atkvæða­greiðslu um þessi sextán kjör­bréf fóru leikar svo að fjöru­tíu og tveir þing­menn stað­festu kjör­bréfin, fimm greiddu atkvæði gegn stað­fest­ingu þeirra og sextán þing­menn kusu að sitja hjá. Þar með var stað­fest til­lagan sem byggði á áliti meiri­hluta kjör­bréfa­nefndar, sem sam­an­stóð af full­trúm Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og Flokks fólks­ins.

Sextán vildu uppkosningu í Norðvestur

Tillaga um upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var felld með 42 atkvæðum. Einungis 16 þing­menn vildu að farið yrði að til­lögum Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur, full­trúum Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í kjör­bréfa­nefnd, um að kosið yrði að nýju í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Fjórir þing­menn greiddu ekki atkvæði.

[adspot]

Bara Píratar vildu uppkosningu um allt land

Byrjað var á að greiða atkvæði um til­lögu Björns Leví Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata, um að stað­festa ekki eitt ein­asta kjör­bréf og boða til nýrra kosn­inga um allt land. Hún var felld með yfir­gnæf­andi meiri­hluta, með 53 atkvæðum gegn 6. Fjórir þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Áður en gengið var til loka­at­kvæða­greiðslu kvölds­ins, sem laut að kosn­ing­unum umdeildu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og þau sextán kjör­bréf sem úrslit hennar snertu, voru greidd atkvæði sér­stak­lega um kjör­bréf 47 kjör­dæma­kjör­inna þing­manna, sem sitja í öðrum kjör­dæmum en Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Þau voru stað­fest sam­hljóða, með 63 atkvæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár