Þrír valkostir þingsins

Rannsókn kjör­bréfa, umræður og atkvæða­greiðsla er á dag­skrá Alþingis í dag. Fjögur nefnd­ar­á­lit koma út úr kjör­bréfa­nefnd, sem fela í sér þrjá ólíka val­kosti um hvernig leyst verði úr kosn­inga­klúðr­inu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Alþingismenn munu í dag taka afstöðu til þess hvort þeir teljist rétt kjörnir.
Alþing­is­menn munu í dag taka afstöðu til þess hvort þeir telj­ist rétt kjörnir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrjár til­lögur verða teknar til umfjöll­unar á Alþingi í dag, við atkvæða­greiðslu um gildi kjör­bréfa sem útgefin voru af lands­kjör­stjórn 1. októ­ber, en þing­fundur, sem raunar er fram­hald á þing­setn­ing­ar­at­höfn­inni á þirð­ju­dag­inn, hófst kl. 13.

Í fyrsta lagi verður lagt til, af hálfu meiri­hluta kjör­bréfa­nefndar sem er skip­aður sex full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins, að öll útgefin kjör­bréf, 63 tals­ins, verði stað­fest. Þá yrði ekki gripið til neinnar upp­kosn­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Í öðru lagi verður lagt til að ein­ungis 47 kjör­bréf verði sam­þykkt, eða öll nema kjör­bréf þing­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi auk jöfn­un­ar­þing­manna. Þá þyrfti að grípa til upp­kosn­ingar í einu kjör­dæmi. Svandís Svav­ars­dóttir og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir full­trúar Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar í kjör­bréfa­nefnd munu mæla fyrir minni­hluta­á­litum um þessa til­lögu.

Í þriðja lagi verður mælt fyrir til­lögu um að engin kjör­bréf verði sam­þykkt og boðað verði til nýrra alþing­is­kosn­inga í öllum kjör­dæmum lands­ins. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata leggur þetta til í sínu minni­hluta­á­liti.

Atkvæði verði fyrst greidd um stórtækustu tillöguna

Birgir Ármanns­son for­maður kjör­bréfa­nefndar sagði við Vísi fyrr í dag að í nefnd­inni hefði verið gert ráð fyrir því að fyrst yrðu greidd atkvæði um til­lögu Björns Levís, því næst yrði gengið til atkvæða um sam­þykkt 47 kjör­bréfa og upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

[adspot]

Síðan yrðu atkvæði greidd um sam­þykkt allra kjör­bréf­anna, sem þýddi stað­fest­ingu þings­ins á svo­kall­aðri „seinni taln­ingu“ atkvæða í Borg­ar­nesi.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar og starf­andi for­seti Alþingis á þó loka­orðið um í hvaða röð til­lög­urnar verða teknar fyrir. Á þing­fund­inum í dag er ekk­ert annað á dag­skránni en rann­sókn kjör­bréfa, umræður og atkvæða­greiðslur.

Deilt um túlkun og sönnunarbyrði

Und­an­farna daga hafa línur skýrst um það hvernig hugur þing­manna liggur til þeirra kosta sem eru uppi eftir þá snúnu stöðu sem kom upp eftir að ljóst varð að með­ferð kjör­gagna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var ekki í sam­ræmi við lög.

Hins vegar er deilt um það bæði innan þings og utan hvaða áhrif það skuli hafa á gildi alþing­is­kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi að ann­markar hafi verið til staðar á með­ferð kjör­gagna. Þingmenn standa frammi fyrir tveimur spurn­ingum:

Er rétt að stað­festa öll kjör­bréfin í ljósi þess að ekki þykir sannað að slæ­leg með­ferð kjör­gagna hafi valdið því að úrslit kosn­ing­anna tóku breyt­ingum?

Eða er rangt að stað­festa öll kjör­bréfin, í ljósi þess að ekki er hægt að sýna fram á það með óyggj­andi hætti að ekki hafi með ein­hverjum hætti verið átt við atkvæðin á milli þess sem fyrri og seinni taln­ing atkvæða fór fram?

Þetta verður rætt á Alþingi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár