Allir nefndarmenn sammála um að „fyrri talning“ geti ekki gilt

Und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa slær mögu­leik­ann á því að láta „fyrri taln­ing­una“ í Borg­ar­nesi gilda út af borð­inu í grein­ar­gerð sinni í dag. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata stendur ekki að grein­ar­gerð­inni.

Birgir Ármannson þingmaður Sjálfstæðisflokksins leiðir kjörbréfanefndina.
Birgir Ármann­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins leiðir kjör­bréfa­nefnd­ina. Mynd: Bára Huld Beck

Alþing­is­menn virð­ast flestir ætla að velja á milli tveggja kosta í stöð­unni síðar í vik­unni, sam­kvæmt grein­ar­gerð und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa, sem birt­ist á vef þings­ins síð­degis í dag. Lík­leg­ast er að annað hvort verði ákveðið að láta seinni taln­ingu atkvæða í Borg­ar­nesi gilda og stað­festa þar með kjör­bréf þau sem gefin voru út af lands­kjör­stjórn 1. októ­ber – eða boða til upp­kosn­ingar í kjör­dæm­inu.[links]

Mögu­leik­inn á að láta fyrri taln­ingu atkvæða gilda er nefni­lega sleg­inn út af borð­inu í grein­ar­gerð nefnd­ar­innar. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata ákvað að standa ekki að grein­ar­gerð nefnd­ar­innar, en hann tekur þó líka undir þessa skoðun ann­arra nefnd­ar­manna.

Hin eig­in­lega kjör­bréfa­nefnd, sem kjörin var í dag og er skipuð sömu þing­mönnum og und­ir­bún­ings­nefndin, mun skila meiri­hluta- og minni­hluta­á­litum sem þing­menn munu taka afstöðu til við atkvæða­greiðslu á fimmtu­dag.

Segja útilokað að láta fyrri talningu gilda

Bæði Karl Gauti Hjalta­son og Lenya Rún Taha Karim, sem voru við það að verða þing­menn sam­kvæmt fyrstu kynn­ingu loka­talna að morgni sunnu­dags­ins 26. sept­em­ber settu fram þá kröfu að sú nið­ur­staða ætti að fá að standa sem end­an­legar loka­tölur. Það fellir und­ir­bún­ings­nefndin sig þó ekki við, sam­kvæmt grein­ar­gerð­inni.

Bent er á að lands­kjör­stjórn hafi talið sér skylt að byggja úthlutun þing­sæta á skýrslu yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi um úrslit kosn­ing­anna, sem fór eftir „seinni taln­ingu“, en nokkur mis­munur var á atkvæða­fjölda flokka á milli fyrstu taln­ingar og þeirrar seinni.

[adspot]

Það að láta fyrri taln­ing­una gilda, segir und­ir­bún­ings­nefndin, kæmi fyrst til greina ef litið væri svo á að slíkur ann­marki hefði verið á varð­veislu kjör­gagna á umræddum tíma að ætla mætti að hann hefði áhrif á úrslit kosn­ing­anna.

„Jafnvel þó svo kom­ist væri að slíkri nið­ur­stöðu er ekki sjálf­gefið að þar með skuli nið­ur­stöður fyrri taln­ingar standa enda ómögu­legt að sann­reyna þær tölur út frá þeim kjör­gögnum sem fyrir liggja,“ segir í grein­ar­gerð nefnd­ar­innar, þar sem segir að úrlausn slíks álita­máls verði ekki jafnað til þess þegar Alþingi úrskurði um ein­staka vafa­at­kvæði sem geti haft áhrif á úthlutun þing­sæta.

Nefndin segir að það beri að „líta til þess að ann­marki af fram­an­greindum toga varðar gildi kosn­inga í heilu kjör­dæmi“ og að slík mál fari sam­kvæmt skýrum laga­fyr­ir­mælum:

„Úrskurði Alþingi kosn­ing­una í Norð­vest­ur­kjör­dæmi ógilda skal upp­kosn­ing fara fram.[...] Ekki verður séð sam­kvæmt til­vitn­uðum ákvæðum eða öðrum laga­reglum að við slíkar aðstæður komi til álita að láta fyrri tölur standa,“ segir í grein­ar­gerð nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár