Ríkjandi viðhorf í nefndinni að seinni talningin í Borgarnesi skuli gilda

„Að með­al­tali er skoð­unin nær seinni taln­ing­unni, en allir eru með fyr­ir­vara um að skoðun sín geti breyst,“ segir þing­maður Pírata, spurður út í störf und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa, sem er að ljúka vinnu sinni.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréf segir að sér heyr­ist það vera ríkj­andi skoðun hjá meiri­hluta nefnd­ar­manna að seinni taln­ing atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi skuli gilda.

Reikna má með að nefndin ljúki vinnu sinni fyrir helgi, eftir að hafa verið að störfum frá því í upp­hafi októ­ber­mán­aðar.

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins á sæti í nefnd­inni rétt eins og Björn Leví og hún sagði við Kastljós í gær­kvöldi að hún sæi ekk­ert annað í stöð­unni en að önnur taln­ing yrði tekin gild. „Eins og mín staða er akkúrat núna þá sé ég ekk­ert annað í kort­inu, ekki neitt,“ sagði Inga í Kast­ljósi, en full­trúar í und­ir­brún­ings­kjör­bréfa­nefnd hafa ekki tjáð sig með svo afger­andi hætti um skoð­anir sínar á mála­vöxtum fram til þessa.

Þessa skoðun ítrek­aði Inga í sam­tali við mbl.is í dag, engin ástæða væri til að grípa til upp­kosn­ingar.

Spurður hvort hann telji það við­horf sem kom fram hjá Ingu, að fátt komi í veg fyrir að svokölluð seinni taln­ing atkvæð­anna í Borg­ar­nesi verði látin gilda, sé ríkj­andi hjá meiri­hluta nefnd­ar­manna svarar Björn Leví því til að já, það sé hans mat.

[adspot]

Þetta segir hann þó ekki vera ein­róma álit nefnd­ar­manna, en að lín­urnar liggi á þessum slóðum sem sem stendur. „Að með­al­tali er skoð­unin nær seinni taln­ing­unni, en allir eru með fyr­ir­vara um að skoðun sín geti breyst,“ segir Björn Leví og leggur áherslu á hið síð­ar­nefnda.

„Við getum ennþá skipt um skoðun fram á síð­ustu stundu og Inga sagði það nú sjálf í Kast­ljós­inu í gær að ef það kæmi fram eitt­hvað stjarn­fræði­legt gæti þetta breyst, en ég held að lín­urnar séu dálítið þar núna,“ segir Björn Leví og vísar þá til þess að meiri­hluti nefnd­ar­innar hall­ist frekar að því að mæla með því að seinni taln­ingin gildi.[links]

Sjálfur seg­ist Björn Leví ekki vera á þeirri skoðun. Hann segir ekki alveg ljóst hvernig þeir nefnd­ar­menn sem ekki verða sam­mála meiri­hlut­anum muni koma þeirri skoðun sinni á fram­færi við þingið, en und­ir­bún­ings­nefndin er ekki að fara að skila hefð­bundnum meiri­hluta- og minni­hluta­á­litum til þings­ins, heldur verður loka­af­urð nefnd­ar­innar í formi skýrslu sem lögð verður fyrir kjör­bréfa­nefnd.

Und­ir­bún­ings­nefndin á sam­kvæmt verk­lags­reglum sínum að nálg­ast verk­efni sitt og þar með talið til­lögu­gerð á grund­velli mál­efna­legra sjón­ar­miða og lög­fræði­legs mats. Vinna nefnd­ar­innar er þó hvorki bind­andi fyrir kjör­bréfa­nefnd né þing­menn, sem hafa að end­ingu það stjórn­ar­skrár­bundna hlut­verk að skera úr um hvort að þeir og sam­þing­menn þeirra séu lög­lega kosnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár