„Það er búið að eyðileggja atkvæðin í þessu kjördæmi“

Atkvæðin í kosn­ing­unum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi „eru því miður ónýt,“ segir Karl Gauti Hjalta­son, fyrr­ver­andi sýslu­maður og „vafa­þing­maður“ Mið­flokks­ins. „Það getur eng­inn í raun og veru treyst því að ekki hafi verið átt við þessi atkvæði“.

Karl Gauti Hjaltason er oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Karl Gauti Hjalta­son er odd­viti Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Bára Huld Beck

Óinn­sigluð atkvæð geymd inni í sal sem var ólæstur að hluta til. Lyklar að læstum dyrum í höndum „ótal starfs­manna“. Kjör­stjórn­ar­maður aleinn innan um atkvæðin í um hálf­tíma. Boðun umboðs­manna í lama­sessi. Úrskurðir um ágrein­ings­at­kvæði fram­kvæmdir án umboðs­manna. „Þetta er allt brotið í þess­ari svoköll­uðu end­ur­taln­ingu. Þau ákvæði í kosn­inga­lögum sem voru brotin eru svo mörg að það tekur langan tíma að telja þau upp.“

Þetta segir Karl Gauti Hjalta­son, odd­viti Mið­flokks­ins í Suð­ur­vest­ur­kjör­dæmi, sem var gestur Krist­jáns Krist­jáns­sonar í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. Það vafð­ist fyrir Krist­jáni að titla hann í þætt­inum og sagði Karl Gauti að lík­lega væri starfs­heiti hans „vafa­þing­maður“.

Hann er fyrr­ver­andi sýslu­maður og hefur haft yfir­um­sjón með kosn­ingum marg­sinnis. Hann er auk þess einn þeirra fimm fram­bjóð­enda sem hlaut jöfn­un­ar­þing­sæti eftir að upp­runa­legar loka­tölur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi voru kynntar skömmu eftir klukkan sjö að morgni 26. sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Síðar sama dag tók for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þá ákvörðun að end­ur­telja atkvæð­in, sú end­ur­taln­ing skil­aði nýrri nið­ur­stöðu og fimm­menn­ing­arnir misstu þing­sæti sitt til fimm flokks­fé­laga sinna.

[adspot]

Allir fram­bjóð­end­urnir fimm sem misstu sæti sitt hafa kært fram­kvæmd kosn­ing­anna til Alþing­is, sem mun á end­anum taka ákvörðun um hvaða þing­menn séu rétt­kjörn­ir. Karl Gauti hefur auk þess kært málið til lög­reglu og sam­kvæmt Vísi hefur öll yfir­kjör­stjórnin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

„Það er alls kyns mis­skilnigur í gangi varð­andi taln­ingu og með­ferð atkvæða, inn­sigli og umboðs­menn og slíkt,“ sagði Karl Gauti á Sprengisandi. „En þetta er mjög mik­il­vægt í kosn­ingum, það er að segja að það sé fylgt ákveðnu ferli sem er bundið í kosn­inga­lögum, mjög strang­lega.“

Hlutverk umboðs­manna fram­boða væri t.d. veiga­mikið, þeir hafi rétt til að gera athuga­semdir, til að bóka þær sem og ágrein­ing, svo dæmi séu tekin.

[links]Karl Gauti segir að þegar ákveðið var að telja atkvæði aftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, nokkrum klukku­stundum eftir að loka­tölur höfðu verið til­kynntar, voru umboðs­menn t.d. mjög óánægðir með boðun. Hann minnir á að eitt af því sem Hæsti­réttur fann að dómi sínum um kosn­ingar til stjórn­laga­ráðs árið 2011 var að umboðs­menn voru ekki skip­aðir við taln­ing­una. „Það var tal­inn veru­legur ann­marki á fram­kvæmd taln­ingar í það skiptið. Það sama er uppi á ten­ingnum núna. Þannig að menn hafa ekki lært af þessu.“

Oft talið margsinnis á kosninganótt

Karl Gauti segir að hvernig taln­ing eigi að fara fram sé „skýr­lega bundið“ í kosn­inga­lögum. „Þarna koma atkvæða­kassar, inn­sigl­aðir, menn skoða þá, umboðs­menn og kjör­stjórnin öll.“ Síðan séu þeir opn­aðir og talið upp úr þeim og sann­reynt að það sé sama atkvæða­magn í þeim og á að vera. Í kjöl­farið séu atkvæði sam­einuð og talin.

„Ef það koma upp mis­tök, sem ger­ist oft, það kemur upp ein­hver mis­taln­ing eða töl­urnar stemma ekki, þá ger­ist það um nótt­ina og það er þess vegna sem menn lenda stundum í því að vera fram á morgun. Það er vegna þess að menn eru að telja sig til baka yfir nótt­ina. Þetta ger­ist í hverri ein­ustu taln­ingu og margoft. Stundum tekur þetta stuttan tíma en stundum langan. En menn hætta ekki fyrr en þeir finna vill­una í það skiptið. Það hefur tek­ist hingað til, alltaf. Það eru engin dæmi um það að eftir að loka­tölur hafa verið kynntar að það sé talið upp á nýtt. Engin dæmi úr Alþing­is­kosn­ingum.“

[adspot]

Hann segir því allt tal um „ein­hverja end­ur­taln­ingu“ ekki eiga sér stoð í kosn­inga­lög­unum. „Menn eru að telja og telja sig til baka alla nótt­ina. Menn hætta ekki fyrr en villan finnst.“

Hins vegar, ef menn ætli að byrja að telja aftur seinna, vegna þess að þeir þurfi hvíld eða eitt­hvað slíkt, „sem hefur aldrei gerst, aldrei gerst“, gefi lögin „engan afslátt“. Í þeim komi nákvæm­lega fram hvernig taln­ing eigi að fara fram. Eigi hún að vera lög­leg eigi hún að fara nákvæm­lega eins fram og hin upp­runa­lega taln­ing.

Varðandi hvers vegna ákveðið var að telja aftur í kjör­dæm­inu bendir Karl Gauti á að eng­inn hafi gert athuga­semd við taln­ing­una að morgni sunnu­dags­ins. Hvorki umboðs­menn né kjör­stjórn­ar­menn. „Hún stemmir, menn eru ánægðir og gefa út þessar loka­tölur.“

Eitthvað gerist

Karl Gauti segir að „síðan ger­ist eitt­hvað“ og mönnum hafi „allt í einu dottið í hug að fara að telja“ og jafn­vel aðeins einn eða tveir menn mætt í fyrstu. „Þetta er ekki svona ein­falt í lög­unum. Í þeim er taln­ing strang­lega lög­bundið ferli.“

Auglýsa þurfi taln­ingu, boða til hennar alla kjör­stjórn­ina, alla umboðs­menn og ef þeir ekki mæta þurfi að skipa þá. Einnig þurfi að telja fyrir opnum dyrum svo almenn­ingur geti fylgst með. „Síðan koma atkvæðin, inn­sigluð.“ En þannig var það ekki í þessu til­viki. Atkvæðin voru ekki inn­sigluð í „ein­hverja fjóra til fimm tíma“.

Lögin segja hins vegar að þau eigi sam­kvæmt lög­unum að vera það og vera svo opnuð á taln­ing­ar­stað undir „vök­ulu augna­ráði“ allra við­staddra, þau tekin upp og talin að nýju. „Auðvitað þarf að taka lögin og fylgja þeim. Sem ekki var gert þarna.“

Karl Gauti undr­ast að menni haldi að það sé „bara leyfi­legt, eðli­legt“ að kjör­stjórn­ar­maður sé „einn með atkvæð­unum“ áður en kjör­stjórn mætir á sama tíma og „atkvæðin liggja þarna um sal­inn, óinn­sigluð, óvarin“. Um þetta sé fjallað með skýrum hætti í lögum. Þegar kosn­inga­at­höfn byrji í sveit­ar­fé­lögum sé „bók­staf­lega bannað“ að færri en tveir séu innan um atkvæða­seðla. „Hvað segir þetta okkur um anda lag­anna? Þetta leyfir ekk­ert kæru­leysi.“

Hlustuðu menn ekki?

Hann bendir einnig á að gerða­bók gegni mik­il­vægi hlut­verki. Í hana skuli t.d. færa athuga­semdir og bók­anir frá bæði kjör­stjórn­ar­mönnum og umboðs­mönnum. Í hana eigi að skrá „allt sem ger­ist“. En því hafi ekki verið að heilsa í gerða­bók­inni í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Það hafi ekki heldur verið gert í seinni taln­ing­unni þrátt fyrir aug­ljósan ágrein­ing að minnsta kosti eins umboðs­manns líkt og fram hefur komið í fjöl­miðlum. „Hlustuðu menn ekk­ert eða heyrðu menn ekk­ert eða sögðu menn ekki neitt?“

Þegar loka­tölur séu gefnar út að morgni, eins og gert hefur verið í kosn­ingum í tugi ára, „þá eru það loka­tölur. Og þú gefur þær ekki út nema að kjör­stjórn og allir við­staddir sam­þykki það athuga­semda­laust.“

Hugtakið „end­ur­taln­ing“ sé hins vegar ekki til í lög­unum. Eina „end­ur­taln­ingin“ sem geti kall­ast svo er það sem ger­ist yfir nótt­ina á taln­ing­ar­stað, þar sem leitað er að villum sem upp koma.

Vissu­lega sé hægt að telja að nýju en þá vegna þess að ein­hver krefst þess, líkt og t.d. var raunin í Suð­ur­kjör­dæmi eftir kosn­ing­arnar í sept­em­ber. „Þá ganga menn að atkvæð­unum þar sem þau eru inn­sigluð í geymslu og byrja ferlið upp á nýtt.“

Hann minnir á að inn­sigli gegni gíf­ur­lega mik­il­vægu hlut­verki. Þau séu „eins og rauður þráður í gegnum alla athöfn­ina“ – alveg frá því að atkvæðin eru prentuð.

„Auðvitað játa ég það að það sé hægt að telja að nýju en þá þarf líka að fylgja lög­unum,“ segir Karl Gauti. „Og þá þurfa atkvæðin að vera trygg. Til hvers er verið að tryggja atkvæðin, alveg frá prent­smiðj­unni, í gegnum hendur yfir­kjör­stjórnar, til sveit­ar­fé­lag­anna, aftur til yfir­kjör­stjórnar og telja þau en síðan slitnar þessi keðja á milli, eftir loka­taln­ingu í Borg­ar­nesi. Því skyldum við leyfa það að öll þessi sterka keðja sé slitin á einum stað? Það er ekki boð­legt.“

Atkvæði sem ekki séu inn­sigluð og liggi frammi eins og gerð­ist í Borg­ar­nesi „eru því miður ónýt. Það er búið að eyði­leggja atkvæðin í þessu kjör­dæmi.“ Eftir að loka­töl­urnar voru gefnar út á sunnu­dags­morgun og þess fer­ils sem þá hófst við með­ferð atkvæða sé búið að „eyði­leggja, ónýta, þessi gögn. Það getur eng­inn í raun og veru treyst því að ekki hafi verið átt við þessi atkvæði“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár