Segir upplýsingar til um „að kosningalög hafi verið brotin á fleiri þáttum þetta síðdegi“

Fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins segir vís­bend­ingar um að „fleiri alvar­legir mis­brestir“ hafi verið til staðar við taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vísar í frá­sagnir „ein­stakra kjör­stjórn­ar­manna um atburða­rás um hádeg­is­bil á sunnu­deg­inum“.

Karl Gauti Hjaltason.
Karl Gauti Hjalta­son. Mynd: Bára Huld Beck

Karl Gauti Hjalta­son, odd­viti Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í nýliðnum kosn­ingum, segir að áreið­an­legar upp­lýs­ingar liggi fyrir um að kosn­inga­lög hafi verið brotin á fleiri þáttum en ein­ungis geymslu kjör­gagna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þegar end­ur­taln­ing átti sér stað þar eftir kosn­ing­arnar.

Í kæru hans til Alþingis vegna kosn­ing­anna, sem skilað var inn síð­ast­lið­inn föstu­dag og Kjarninn hefur undir höndum, segir að boðun og skipun umboðs­manna, umgengni ein­stakra kjör­stjórn­ar­manna um óinn­sigluð kjör­gögn og und­ir­skriftir í gerða­bók yfir­kjör­stjórnar hafi ekki verið í sam­ræmi við lög. „Loks eru vís­bend­ingar um að fleiri alvar­legir mis­brestir hafi verið til staðar og er þar helst að nefna mis­ræmi milli bók­ana í gerða­bók og frá­sagna ein­stakra kjör­stjórn­ar­manna um atburða­rás um hádeg­is­bil á sunnu­deg­inum og meintrar neit­unar á und­ir­ritun ein­stakra kjör­stjórn­ar­manna á fund­ar­gerð í gerða­bók yfir­kjör­stjórnar. Þá þætti, sem ekki eru að fullu ljósir, þarf að upp­lýsa til hlítar.“

Vill að fyrri talning standi

Karl Gauti er einn þeirra fimm fram­bjóð­enda sem hlaut jöfn­un­ar­þing­sæti eftir að upp­runa­legar loka­tölur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi voru kynntar skömmu eftir klukkan sjö að morgni 26. sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Síðar sama dag tók for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þá ákvörðun að end­ur­telja atkvæðin, sú end­ur­taln­ing skil­aði nýrri nið­ur­stöðu og fimm­menn­ing­arnir misstu þing­sæti sitt til fimm flokks­fé­laga sinna.

Allir fram­bjóð­end­urnir fimm sem misstu sæti sitt hafa kært fram­kvæmd kosn­ing­anna til Alþingis, sem mun á end­anum taka ákvörðun um hvaða þing­menn séu rétt­kjörnir.

Karl Gauti krefst þess í sinni kæru að loka­tölur, eins og þær voru til­kynntar laust upp úr klukkan sjö að morgni sunnu­dags­ins 26. sept­em­ber síð­ast­lið­ins, verði látnar standa sem end­an­legar loka­tölur úr kjör­dæm­inu. Hann krefst þess þess einnig að Alþingi úrskurði „að kjör­bréf Bergþórs Ólasonar, Gísla Rafns Ólafs­sonar, Guð­brands Ein­ars­sonar, Jóhanns Páls Jóhanns­sonar og Orra Páls Jóhanns­sonar séu ógild og að gefin verði út ný kjör­bréf af lands­kjör­stjórn til Guð­mundar Gunn­ars­sonar, Hólm­fríðar Árna­dóttur, Karls Gauta Hjalta­sonar, Lenya Rúnar Talia Karim og Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur.“

Ekki undirritað í samræmi við lög

Í rök­stuðn­ingi sem fylgir kærunni segir Karl Gauti, sem sjálfur var for­maður yfir­kjör­stjórnar í Suð­ur­lands­kjör­dæmi á árunum 1998 til 2003 og í Suð­ur­kjör­dæmi frá 2003 til 2017, að stað­fest sé að kjör­gögnin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafi legið „óinn­sigluð á víð og dreif í taln­ing­ar­salnum á hót­el­inu í Borg­ar­nesi“ eftir að fyrstu loka­tölur voru gefnar út. Hvorki gögnin né sal­ur­inn hafi verið inn­sigluð og for­maður yfir­kjör­stjórnar, Ingi Tryggva­son, hafi mætt aftur á taln­inga­stað fyrstur allra klukkan 11:46 síðar þennan dag. Þar hafi hann verið einn með kjör­gögn­unum til 12:15, eða í 29 mín­útur.

[adspot]Í kæru Karls Gauta segir að á ljós­ritum úr gerða­bók yfir­kjör­stjórnar sjá­ist að hún hafi ekki verið und­ir­rituð af yfir­kjör­stjórn líkt og kosn­inga­lög segi til um. „Þá vekur sér­staka athygli að engar bók­anir eru í fund­ar­gerðum yfir­kjör­stjórn­ar­innar. Víða í kosn­inga­lög­unum er það eitt af grund­vall­ar­rétt­indum umboðs­manna að fá skráðar athuga­semdir í gerða­bók, ef þeir hafa ein­hverjar og mun vera mjög algengt. Í því ljósi er nauð­syn­legt að fá sam­skipti þeirra og yfir­kjör­stjórn­ar­innar upp­lýst.“

Karl Gauti vísar svo í frétt sem birt­ist á DV.is 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem haft var eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­manni að þegar kjör­stjórn­ar­menn hafi mætt til fundar kl. 13:00 og áður en fundur hafi verið settur hafi með­höndlun atkvæða verið hafin. Engin til­raun hefur verið gerð til að hrekja þann frétta­flutn­ing þrátt fyrir að fund­ar­gerð yfir­kjör­stjórnar greini öðru­vísi frá mála­vöxtum.

Í frétt DV er sagt að ekki hafi verið ein­ing meðal kjör­stjórn­ar­innar um end­ur­taln­ing­una og hluti kjör­stjórn­ar­manna hafi neitað að und­ir­rita fund­ar­gerð­ina síð­degis á sunnu­deg­inum.

Karl Gauti segir í kæru sinni að upp­lýsa þurfi um sann­leiks­gildi þeirrar frá­sagnar. „Nauð­syn­legt er að upp­lýsa nákvæm­lega hver atburða­rásin var í þessu til­felli.“

Telur mikilvægt að bíða niðurstöðu lögreglu

Karl Gauti hefur einnig kært með­höndlun kjör­gagna yfir­kjör­stjórnar til lög­reglu. Það gerði hann strax dag­inn eftir að end­ur­taln­ingin átti sér stað, 27. sept­em­ber. Í kærunni til þings­ins kemur fram að engin við­brögð hafi enn borist frá lög­reglu. Hann telur þó mik­il­vægt að beðið sé nið­ur­stöðu rann­sóknar lög­reglu í mál­inu. „Í þeirri nið­ur­stöðu kunna að koma fram mik­il­vægar upp­lýs­ingar sem nauð­syn­legt er að liggi fyrir áður en kjör­bréfa­nefnd lýkur störfum og leggur til­lögur sínar fyrir Alþingi.“

Í kæru Karls Gauta til þings­ins segir að það sé mat hans að hvorki sé hægt að bjóða þjóð­inni né Alþingi upp á að leggja til grund­vallar tölur sem fengnar séu með ólög­mætri end­ur­taln­ingu. „Af hálfu lands­kjör­stjórnar er stað­fest að ef skil­yrði um geymslu kjör­gagna eru ekki upp­fyllt er end­ur­taln­ing ekki lög­leg eins og kemur skýrt fram hér að framan. Útilokað er því í ljósi atvika þessa máls að Alþingi geti stað­fest kjör­bréf fimm til­greindra ein­stak­linga sem rétt kjör­inna alþing­is­manna á grund­velli þess­arar end­ur­taln­ingar. Gagnvart umheim­inum myndi orðstír Íslands sem lýð­ræð­is­ríki bíða veru­legan hnekki. Mik­il­væg­ast af öllu er að Íslend­ingar geti treyst því að hér á landi gildi lýð­ræð­is­legar leik­reglur og að virt séu ákvæði kosn­inga­laga við kjör til Alþingis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár