Vísbendingar um að öflug samkeppni skiptir meira máli en hver á fyrirtækin

Skýrsla sem var til­búin í fyrra, en ekki birt fyrr en nýverið, færir rök fyrir því að það skipti ekki endi­lega máli hver eigi fyr­ir­tæki. Neyslu­verð á Íslandi er 54 pró­sent yfir með­al­tali ESB en raf­orku­verð hér er 35 pró­sent lægra en innan sam­bands­ins.

Íslendingar borga miklu meira fyrir mat, föt og skó en íbúar ESB en miklu minna fyrir rafmagn til heimila þar sem seljandinn er í opinberri eigu.
Íslend­ingar borga miklu meira fyrir mat, föt og skó en íbúar ESB en miklu minna fyrir raf­magn til heim­ila þar sem selj­and­inn er í opin­berri eigu. Mynd: Anton Brink

Margt mælir með því að inn­leiða sam­keppni þar sem henni verður komið við á Íslandi. Því fylgir aðhald, nýjar fram­leiðslu­leiðir eru reyndar og nýjar vörur boðnar fram á mörk­uðum sem hafa staðnað. Vís­bend­ingar eru um að öflug sam­keppni skipti meira máli en hver á fyr­ir­tækin en ef sam­keppnin á að blómstra þá verða aðstæður fyr­ir­tækja að vera jafnar. Þannig hafði afnám einka­leyfis fyr­ir­tækja í eigu hins opin­bera ekki skýr áhrif á verð á póst­þjón­ustu, raf­magni til almenn­ings eða síma­þjón­ustu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um mat áhrifum sam­keppn­is­rekstrar hins opin­vera á virka sam­keppni og heil­brigði atvinnu­lífs hér­lendis, sem unnin var af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Tvö ár eru síðan að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið samdi við Hag­fræði­stofnun um að vinna skýrsl­una, en til­efnið var fyr­ir­spurn tíu þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Alþingi um málið.

Skýrslan var unnin af Sigurði Jóhann­essyni, for­stöðu­manni stofn­un­ar­innar, og tveimur hag­fræð­ingum. Hún var auk þess rýnd af tveimur óháðum sér­fræð­ingum.

Þrátt fyrir að hafa verið til­búin í októ­ber 2020 og skilað til ráðu­neyt­is­ins var hún ekki birt á þeim tíma. Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins um málið, sem birt­ist um síð­ustu helgi, var það vegna þess að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið vildi það ekki. Hag­fræði­stofnun tók ein­hliða ákvörðun um birt­ingu hennar fyrir skemmstu og er skýrslan nú aðgengi­leg á heima­síðu stofn­un­ar­innar. Hún hefur hins vegar ekki verið birt á vef atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Neysluverð 54 prósent yfir meðaltali ESB

Í upp­hafi skýrsl­unnar er spurt af hverju ríki og sveit­ar­fé­lög reki fyr­ir­tæki. Þátttaka í atvinnu­líf­inu sé áhættu­söm og skatt­borg­arar hafi ekki allir jafn­mik­inn áhuga á að taka slíka áhættu.

[adspot]Rök fyrir atvinnu­rekstri hins opin­bera séu þó af ýmsu tagi. Stundum þurfi að leið­rétta mark­aðs­bresti. Stundum á rekst­ur­inn að stuðla að jöfn­uði. Atvinnu­stefna kemur við sögu. Sums staðar virð­ast sögu­legar ástæður vega þungt.

Í skýrsl­unni er rakið að neyslu­verð á Íslandi sé með því hæsta í Evrópu og að árið 2019 hafi það verið 54 pró­sent yfir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB). Matur og drykkur er til að mynda 40 pró­sent dýr­ari hér en að með­al­tali innan sam­bands­ins og föt og skór eru sömu­leiðis 35-40 pró­sent dýr­ari.

Það er þó ekki allt dýr­ara hér. Raf­magns­verð til heim­ila er til að mynda 35 pró­sent undir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ins og í skýrsl­unni er farið yfir að fyrir því geti verið ýmsar ástæður. „ Ein er ódýrt opin­bert fjár­magn, sem nýtt hefur verið til þess að byggja upp flest fyr­ir­tæki á mark­aði með raf­magn og önnur er hag­stæðar aðstæður af hendi nátt­úr­unnar. Þriðja ástæðan gæti verið að íslensk orku­fyr­ir­tæki – sem flest eru í eigu hins opin­bera – séu svona vel rekin.“

Þá er rakið að fjar­skipti séu álíka dýr hér og í Evr­ópu­sam­band­inu en hið opin­bera hefur dregið sig með öllu úr úr öllum síma­rekstri. Í ljós­leið­ara­þjón­ustu keppir hins vegar eitt einka­rekið fyr­ir­tæki, Míla í eigu Símans, við Gagna­veit­una (í eigu Orku­veitu Reykja­víkur sem er að uppi­stöðu í eigu Reykja­vík­ur­borgar).

Tækifæri til að taka frekari skref

Skýrslu­höf­undar segja að ýmis­legt hafi verið gert á und­an­förnum árum til að jafna leik­inn í sam­keppni fyr­ir­tækja ríkis og sveit­ar­fé­laga og einka­fyr­ir­tækja en að stíga megi frek­ari skref.

Á meðal leiða sem þeir nefna er að æski­legt þyki að starfs­svið opin­berra fyr­ir­tækja sé almennt betur afmarkað og þeim sett skýr­ari afkomu­mark­mið. Fengur yrði að eig­anda­stefnu fyrir orku­fyr­ir­tæki lands­ins og skilja mætti á milli eign­ar­halds á orku­fram­leiðslu og einka­sölu á raf­magni. Þar er helst nefnt að kljúfa raf­magns­fram­leiðslu utan Þjórsár og Fljóts­dals­stöðvar frá Lands­virkjun og skipta henni milli nokk­urra fyr­ir­tækja. „Þannig yrði þess freistað að efla sam­keppni á almennum raf­magns­mark­aði. Sem stendur er Lands­virkjun eina fyr­ir­tækið sem getur boðið raf­magn í heild­sölu hér á landi sem nokkru nemur. Það hamlar gegn því að skap­ast geti virkur heild­sölu­mark­aður. Ekki yrði hróflað við sölu Lands­virkj­unar til stór­kaup­enda.“

Þá telja skýrslu­höf­undar að bjóða ætti alþjón­ustu í póst­flutn­ingum út í stað þess að binda hana við Íslands­póst og að skoða mætti betur hvort rétt sé að draga Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár