Transparency lýsir yfir áhyggjum af viðbrögðum formanns yfirkjörstjórnar

Íslands­deild Transparency International segir í yfir­lýs­ingu að áhyggjur af fram­kvæmd kosn­inga og taln­ingu bygg­ist hvorki á sam­sær­is­kenn­ingum né óþarfa upp­hlaupi heldur stað­reyndum um klúður og lög­brot við taln­ingu atkvæða.

Íslandsdeild TI gagnrýnir Inga Tryggvason formann yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi í dag.
Íslands­deild TI gagn­rýnir Inga Tryggva­son for­mann yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í dag. Mynd: Skjáskot: RÚV

Íslands­deild Transparency International lýsir yfir von­brigðum með brota­löm og mögu­legt lög­brot við taln­ingu atkvæða í nýliðnum alþing­is­kosn­ingum og lýsir yfir sér­stökum áhyggjum af við­brögðum Inga Tryggva­sonar, for­manns yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, eftir að ljóst var að lögum um fram­kvæmd taln­ingar var ekki fylgt.

„For­mað­ur­inn hefur ítrekað gert lítið úr mál­inu í fjöl­miðlum og gefið til kynna opin­ber­lega að hann telji skoð­anir sínar og ákvarð­anir ekki þurfa að byggja á lögum. Ljóst er að gáleys­is­leg og ólög­mæt með­ferð kjör­gagna við taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi getur ein og sér verið ástæða til að krefj­ast end­ur­tekn­ingar kosn­ing­anna þar,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Íslands­deild Transparency í dag.[links]

Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig að atburða­rás und­an­far­inna daga hafi „varpað ljósi á þá sér­kenni­legu og frá­leitu máls­með­ferð að nýkjörið Alþingi hafi end­an­legt úrskurð­ar­vald um rétt­mæti kosn­ing­anna“.

Þetta segir Transparency að geti „leitt til geð­þótta­á­kvarð­ana þing­manna sem hags­muna eiga að gæta“ og sé úrelt fyr­ir­komu­lag, sem Mann­rétt­inda­stóll Evrópu (MDE) hafi úrskurðað gegn. Segist Transparency á Íslandi taka undir sjón­ar­mið um að þessu verði að breyta svo fljótt sem auðið verður.

Í yfir­lýs­ingu Íslands­deild­ar­in­anr segir að kjör­stjórn­ar­full­trúar verði að „umgang­ast þá ábyrgð sem þeim er falin af virð­ingu, “ bæði hvað fram­kvæmd­ina sjálfa varðar og svo fram­komu og svör til almenn­ings ef upp koma spurn­ingar.

[adspot]

„Vert er að nefna að við setn­ingu laga um kosn­ingar til Alþingis þótti lög­gjaf­inn ástæðu til þess að leggja refs­ingu við því ef kjör­stjórn van­rækir fyr­ir­skip­aða fram­kvæmd laga um kosn­ingar til alþingis, sbr. 124. gr. lag­anna. End­ur­speglar það þá miklu ábyrgð sem fylgir störfum við fram­kvæmd kosn­inga,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Formgallar áður ógilt kosningar

Íslands­deild Transparency segir að ekki verði fram­hjá því litið „að Hæsti­réttur hefur áður úrskurðað kosn­ingar ógildar vegna form­galla við fram­kvæmd þeirra, jafn­vel þótt svo að þeir gallar hafi ekki haft áhrif á úrslit eða nið­ur­stöðu umræddrar kosn­ingar,“ en það gerð­ist árið 2012 er kosn­ingar til stjórn­laga­þings voru ógiltar.

„Fordæmi um ógild­ingu kosn­inga af hálfu Hæsta­réttar eru því fyrir hendi bæði er varðar áhrif eða áhrifa­leysi á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Þótt ekki hafi komið fram rök­studdur grunur um kosn­inga­svindl vill Íslands­deild TI taka fram að brota­löm við fram­kvæmd kosn­inga og taln­ingu er næg ástæða fyrir van­þóknun kjós­enda og áhyggjum þeirra af því að ekki sé betur að verki staðið. Þessar áhyggjur byggj­ast hvorki á sam­sær­is­kenn­ingum né óþarfa upp­hlaupi heldur efn­is­legum stað­reyndum um klúður og lög­brot við taln­ingu atkvæða í þing­kosn­ingum á Íslandi 2021,“ segir í yfir­lýs­ingu Íslands­deildar Transparency, sem segir ekk­ert mik­il­væg­ara en traust almenn­ings á lýð­ræð­is­legum kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár