Sýn heldur áfram að tapa á meðan að Síminn greiddi út 8,5 milljarða króna til hluthafa

Tvö fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæki eru skráð í Kauphöll Íslands. Annað þeirra hefur skilað tapi í átta af síð­ustu níu árs­fjórð­ungum á meðan að hitt hefur hagn­ast um millj­arða króna á sama tíma­bili.

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Sýn tap­aði 117 millj­ónum króna á öðrum árs­fjórð­ungi og tap­aði alls 348 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2021. Fyr­ir­tækið hefur nú skilað tapi í átta af síð­ustu níu árs­fjórð­ungum og alls tapað rúm­lega 2,6 millj­örðum króna á því tíma­bili.

Eina skiptið sem það hefur skilað hagn­aði frá byrjun apríl 2019 er á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra, þegar hagn­að­ur­inn var átta millj­ónir króna.

Í nýjasta árs­hluta­reikn­ingi Sýnar, sem var birtur á mið­viku­dag, kemur fram að afkoma fyr­ir­tæk­is­ins fyrir fjár­magns­gjöld og skatta (EBIT) var nei­kvæð um 58 millj­ónir króna á síð­asta árs­fjórð­ungi og alls nei­kvæð um 16 millj­ónir króna það sem af er ári. Rekstr­ar­tekjur drag­ast lít­il­lega saman á milli ára, alls um 129 millj­ónir króna, og fram­legð á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021 var 3,8 pró­sent minni en á sama tíma í fyrra.

Fjár­magns­gjöld, það sem Sýn þarf að borga af þeim 14,1 millj­arði króna af vaxta­ber­andi lánum sem fyr­ir­tækið skuldar, eru nei­kvæð um 210 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

[adspot]Tekjur Sýnar af fjöl­miðla­hluta rekst­urs­ins (Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðvar, útvarps­stöðvar og Vísi.is) juk­ust um 225 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2021, eða um sex pró­sent. Í fjár­festa­kynn­ingu kemur fram að það sé að miklu leyti vegna auk­innar sölu á áskriftum innan fjöl­skyldu­pakka fyr­ir­tæk­is­ins og EM karla í knatt­spyrnu, sem Sýn átti sýn­ing­ar­réttin að og lauk í júlí. Þar segi enn fremur að aug­lýs­inga­tekjur hafi hækkað um 19 pró­sent á fyrri helm­ingi árs 2021 sam­an­borið við fyrra ár, og að þar skipti mestu „EM og góð tekju­aukn­ing á Vísi en tekjur þar juk­ust um 43 pró­sent á milli árs­helm­inga.“ Frétta­vef­ur­inn Vísir hefur náð því að verða mest lesni vefur lands­ins oftar en helsti sam­keppn­is­að­ili hans, mbl.is, það sem af er ári. RÚV greindi frá því í vik­unni að HBO Max, ein stærsta streym­isveita heims, yrði aðgengi­leg hér­lendis í haust en Stöð 2 hefur haft sýn­ing­ar­rétt­inn að sjón­varps­efni frá HBO.

Þá juk­ust tekjur af far­síma­þjón­ustu um 15 pró­sent á sama tíma­bili en vöxtur var í fjar­skipta­tekjum í heild í fyrsta sinn frá árinu 2018.

Tekjur dótt­ur­fé­lags Sýnar, Endor, sem sér­hæfir sig í hýs­ingar- og rekstr­ar­lausnum dróg­ust hins vegar saman um 650 millj­ónir króna milli árs­helm­inga. Í fjár­festa­kynn­ingu er sagt að lækk­unin sé til­komin vegna „minni bún­að­ar­sölu vegna heims­far­ald­urs­ins og þró­unar á gengi evr­unnar gagn­vart íslensku krón­unni.“

Selja eignir til að greiða niður skuldir og kaupa eigin bréf

Sýn seldi 49,9 pró­sent hlut sinn í fær­eysku hlut­deild­ar­fé­lagi sem áður hét Hey þann 31. mars síð­ast­lið­inn. Kaup­verðið var greitt 21. apríl og reynd­ist 179 millj­ónum krónum lægra en bók­fært virði hlut­ar­ins. Það sölu­tap var bók­fært á síð­asta árs­fjórð­ungi. Hluta af sölu­and­virð­inu, um 500 millj­ónum króna, var ráð­stafað inn á lán félags­ins og hluta inn á lána­línu félags­ins.

Þá skrif­aði Sýn undir samn­inga um sölu á því sem fyr­ir­tækið kallar óvirka far­síma­inn­viði í eigu þess. Með óvirkum innviðum er átt við t.d. raf­kerfi og senda­turna í far­síma­kerfi fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Virki bún­að­ur­inn er svo fal­inn í því sem send­arnir á turn­unum bjóða upp á. Gangi kaupin eftir mun Sýn svo leigja hina óvirku inn­viði til baka.

Væntur sölu­hagn­aður er 6,5 millj­arðar króna og Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, segir í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands að and­virðið verði „að hluta notað til að greiða niður skuldir en einnig til end­ur­kaupa hluta­bréfa og nýfjár­fest­inga.“

Í til­kynn­ing­unni segir Heiðar einnig að grunn­rekstur Sýnar sé að batna og bendir í því til­liti á að svo­kallað frjálst fjár­flæði hafi auk­ist. Það sé að hans „dómi besti mæli­kvarð­inn á rekstur.“ Frjálst fjár­flæði sam­anstendur af hand­bæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekju­skatt að frá­dregnum fjár­fest­inga­hreyf­ingum.

Frjálst fjár­flæði Sýnar hefur hækkað úr 1.597 millj­ónum króna á fyrri hluta árs 2020 í 1.611 millj­ónir króna á fyrri hluta yfir­stand­andi árs. Handbært fé frá rekstri lækk­aði hins vegar um 429 millj­ónir króna það sem af er ári, eða um 52 pró­sent. Það var 402 millj­ónir króna í lok júní síð­ast­lið­ins.

Eigið fé Sýnar hefur lækkað um 465 millj­ónir króna á árinu.

Stærstu eig­endur Sýnar eru Gildi líf­eyr­is­sjóður með 12,39 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður vezlunarmanna með 10,73 pró­sent hlut og Kvika banki sem er skráður fyrir 9,25 pró­sent hlut, en þar er að öllum lík­indum um fram­virka samn­inga að ræða og raun­veru­legir eig­endur þeirra aðrir. Líf­eyr­is­sjóðir eiga að minnsta kosti um helm­ing hluta­fjár Sýnar sam­an­lagt. Félagið Ursus ehf., í eigu Heiðars for­stjóra Sýnar, á 9,16 pró­sent hlut. Hluta­bréf í Sýn hafa hækkað um 54 pró­sent und­an­farið ár.

Greiddi út 8,5 milljarða til hluthafa

Helsti sam­keppn­is­að­ili Sýnar, Síminn sem rekur einnig fjar­skipta- og fjöl­miðla­þjón­ustu, skil­aði sínum árs­hluta­reikn­ingi í byrjun viku. Hagnaður þess var 618 millj­ónir króna á öðrum árs­fjórð­ungi og rúm­lega 3,5 millj­arðar króna á fyrri hluta árs. Inni í þeirri tölu er þó sala á dótt­ur­fé­lag­inu Sensa sem skilað rúm­lega tveggja millj­arða króna sölu­hagn­aði. Frá byrjun apr­íl­mán­aðar 2019 hefur Síminn hagn­ast alls um 8,9 millj­arða króna. Síminn greiddi alls 8,5 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs og end­ur­kaupa á síð­asta árs­fjórð­ungi.

Afkoma fyr­ir­tæk­is­ins fyrir fjár­magns­gjöld og skatta (EBIT) var jákvæð um 1.126 millj­ónir króna á öðrum árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs og alls jákvæð um 2.248 millj­ónir króna það sem af er ári. Rekstr­ar­tekjur juk­ust á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra, alls um 237 millj­ónir króna, og fram­legð á fyrstu sex mán­uðum árs 2021 var tæpu einu pró­sent meiri en á sama tíma í fyrra.

[adspot]Orri Hauksson, for­stjóri Símans, bendir þó á í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands að stór hluti aukn­ing­ar­innar hafi komið til vegna sér­stakra atburða á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra. Þá hlaut Síminn sekt af hálfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins auk þess sem umtals­verður upp­sagn­ar­kostn­aður kom til. „Sé leið­rétt fyrir þessum þáttum er þó áfram jákvæð þróun í öllum und­ir­liggj­andi rekstr­ar­þáttum.“

Skuldir Símans hafa hækkað umtals­vert það sem af er ári. Um síð­ustu ára­mót voru lang­tíma­skuldir fyr­ir­tæk­is­ins 20 millj­arðar króna en í lok júní var sú upp­hæð komin upp í 30 millj­arða króna. Sam­stæðan tók sex millj­arða króna lán hjá Arion banka á síð­asta árs­fjórð­ungi og Míla, dótt­ur­fé­lags Símans, tók lang­tíma­lán upp á 20 millj­arða króna frá Íslands­banka auk þess sem því sam­komu­lagi fylgdi eins millj­arðs króna lána­lína. Þá gaf Síminn út skamm­tíma­víxla upp á 1,5 millj­arða króna í lok júní.

Náðu að halda enska boltanum

Tekjur Símans af sjón­varps­þjón­ustu juk­ust um 95 millj­ónir króna á fyrri hluta árs­ins 2021, eða um 3,5 pró­sent. Vöxt­ur­inn er drif­inn áfram af sölu á Síminn Premium áskrift­inni, og fyr­ir­tæk­is­ins segir að vel hafi gengið að halda á „áskrif­endum þrátt fyrir minna fram­boð af efni frá erlendum fram­leið­endum vegna COVID og áherslu­breyt­inga margra þeirra.“ Sú áherslu­breyt­ing snýst um að efn­is­fram­leið­endur eru í auknum mæli að setja upp efn­isveitur og selja fram­leiðslu sína beint til not­enda, í stað þess að selja til sjón­varps­stöðva.

Í fjár­festa­kynn­ingu kemur fram að haustið sé besti sölu­tím­inn fyrir Símann og að nýj­ungar í sjón­varps­þjón­ustu, sala hennar yfir net Gagna­veitu Reykja­víkur og „stöð­ug­leiki til næstu ára í sýn­ing­ar­rétti enska bolt­ans“ myndi gott und­ir­lag fyrir sölu­að­gerðir hausts­ins. Siminn náði sam­komu­lagi um áfram­hald­andi sýn­ing­ar­rétt á enska bolt­anum, verð­mæt­ustu sjón­varps­vöru sinni, til árs­ins 2025 fyrr á þessu ári. Ekki hefur verið greint frá því hvað sá samn­ingur kostar.

Þá juk­ust tekjur af far­síma­þjón­ustu um 3,5 pró­sent á fyrri hluta árs miðað við sama tíma­bili í fyrra og tekjur af gagna­flutn­ingi juk­ust um 1,7 pró­sent.

Míla, dótt­ur­fé­lag Símans, keypti far­síma­dreifi­kerfis og IP nets af móð­ur­fé­lag­inu um síð­ustu ára­mót. Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að fjár­festar hefðu lagt fram óform­legar fyr­ir­spurnir til Sím­ans um mögu­leg kaup á Mílu en að engar ákvarð­anir hefðu verið teknar um söl­una. Ljóst er að ef Míla yrði seld væri hægt að skila enn meiri fjár­munum úr rekstri Símans til hlut­hafa félags­ins.

Í fjár­festa­kynn­ingu Símans segir að fram­tíð­ar­mögu­leikar Mílu séu áfram til skoð­unar. „Eins og til­kynnt var um í apríl síð­ast­liðnum koma eig­enda­breyt­ingar á félag­inu til greina, en ekk­ert hefur enn verið ákveðið í þeim efnum. Erlendir og inn­lendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir hafa sýnt félag­inu áhuga og verður rætt nánar við hluta þeirra í fram­hald­inu. Veturinn verður nýttur til að ljúka stefnu­mörkun um félagið.

Stærsti ein­staki hlut­hafi Símans er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem á 15,41 pró­sent hlut í félag­inu. Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Stoða, er einnig stjórn­ar­for­maður Símans. Aðrir helstu eig­endur Símans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Hluta­bréf í Símanum hafa hækkað um 65 pró­sent síð­ast­liðið ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár