Síminn hefur fengið fyrirspurnir um kaup á Mílu

Íslensk fjar­skipta­fyr­ir­tæki hafa verið að aðskilja inn­viða­starf­semi þeirra frá þjón­ustu­starf­semi þeirra á und­an­förnum mán­uðum. Síminn hefur fengið óform­legar fyr­ir­spurnir um mögu­leg kaup á inn­viða­fé­lag­inu Mílu, en ekk­ert hefur verið ákveðið enn.

Orri Hauksson, forstjóri Símans
Orri Hauksson, for­stjóri Símans Mynd: Nasdaq Iceland

Fjár­festar hafa lagt fram óform­legar fyr­ir­spurnir til Símans um mögu­leg kaup á inn­viða­hluta fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins, Mílu. Síminn bendir á alþjóð­lega þróun hjá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum í aðskiln­aði á rekstri sínum, en for­stjóri Sýnar hefur einnig viðrað slíkar hug­myndir fyrir sitt fyr­ir­tæki nýlega.

Guð­mundur Jóhann­son, sam­skipta­full­trúi Símans, greindi blaða­manni Kjarnans frá áhuga fjár­festa á mögu­legum kaupum á Mílu í svari við fyr­ir­spurn. Þó bætti hann við að Síminn hafi ekki haft frum­kvæði að því að kynna sölu á inn­viða­hluta fyr­ir­tæk­is­ins og að engar ákvarð­anir hafi verið teknar um söl­una.

Aðskilnaður þegar hafinn

Síminn hefur nú þegar aðskilið inn­viða­starf­semi sína frá þjón­ustu­starf­sem­inni að ein­hverju leyti, en í síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri kynnti félagið fyr­ir­hug­aðan flutn­ing á far­síma­dreifi­kerfi og IP-neti til Mílu. Samkvæmt Símanum myndi þetta styrkja Mílu sem inn­viða­fé­lag og skerpa á hlut­verki Símans sem þjón­ustu­fyr­ir­tækis. Enn fremur sagði Orri Hauksson for­stjóri félags­ins að verið væri að skoða hvort aðskilja eigi fjár­mögnun Mílu frá fjár­mögnun Símans í til­kynn­ingu sinni til fjár­festa með­fram upp­gjör­inu.

Mögulega að bjóða hluta fjarskiptakerfisins á sölu

Samhliða mögu­legri sölu á Mílu hafa sams konar vanga­veltur verið á teikni­borð­inu hjá Sýn. Í síð­asta árs­helm­ings­upp­gjöri félags­ins segir Heiðar Guð­jóns­son for­stjóri Sýnar að verið sé að færa meiri rekstur og fjár­fest­ingar í Senda­fé­lagið, inn­viða­hluta fjar­skipta­fé­lags­ins sem er rekið með Nova. Þetta telur Heiðar munu bæta arð­semi rekstrar far­síma­kerf­is­ins.

[adspot]

„Það er svo til athug­unar að bjóða hluta far­síma­kerf­is­ins til sölu, sem myndi skila umtals­verðu fjár­magni til hlut­hafa. Alþjóð­legir aðilar hafa mik­inn áhuga á fjár­fest­ingum í innviðum sím­fyr­ir­tækja og marg­fald­arar í við­skiptum eru mun hærri en ger­ist á almennum hluta­bréfa­mark­aði,“ bætir Heiðar svo við.

Fordæmi frá Danmörku, Tékklandi og Ítalíu

Mögu­legur aðskiln­aður inn­viða­hluta og þjón­ustu­starf­semi Símans og Sýnar er ekki án for­dæma, en fjar­skipta­fyr­ir­tæki víða um Evrópu hafa farið í sams konar end­ur­skipu­lagn­ingar á síð­ustu árum. Árið 2014 skap­aði tékk­neski hluti fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins O2 sér­stakt félag fyrir inn­viða­starf­sem­ina sína, en sam­kvæmt umfjöllun ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins McKinsey um málið græddu hlut­hafar mjög á þessum aðskiln­aði.

Í fyrra lauk svo aðskiln­aði inn­viða-og þjón­ustu­hluta danska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins TDC, að frum­kvæði nýrra fjár­festa sem komu inn í félagið.

Ítalska rík­is­stjórnin hefur einnig viljað aðskilja inn­viða­starf­semi fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Telecom Italia (TIM) frá þjón­ustu­starf­semi þess, en fyrir þremur vikum síðan til­kynnti TIM sölu á þriðj­ungi land­lína fyr­ir­tæk­is­ins til hins opin­bera. Samkvæmt frétt Yahoo um málið ætti salan að leiða til þess að fjar­skipta­inn­viðir á Ítalíu séu í höndum hins opin­bera, rétt eins og orku-og raf­magns­inn­viðir lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár