Efsta tíundin átti 85 prósent verðbréfa í eigu einstaklinga í lok síðasta árs

Á ára­tug hefur heild­ar­virði verð­bréfa í eigu lands­manna auk­ist um 253,2 millj­arða króna. Af því heild­ar­virði hefur 88 pró­sent runnið til tíu pró­sent rík­ustu lands­manna. Á síð­ast­liðnu einu og hálfu ári hefur virði hluta­bréfa rúm­lega tvö­fald­ast.

Síðasta stóra skráning á Aðalmarkað Kauphallar Íslands var skráning Íslandsbanka í sumar. Bankastjóri hans, Birna Einarsdóttir, hringdi inn fyrstu viðskipti.
Síðasta stóra skrán­ing á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands var skrán­ing Íslands­banka í sumar. Banka­stjóri hans, Birna Ein­ars­dóttir, hringdi inn fyrstu við­skipti. Mynd: Nasdaq Iceland

Ríkustu tíu pró­sent Íslend­inga juku eign sína í verð­bréfum um 53,8 millj­arða króna í fyrra. Heild­ar­aukn­ing í eign á verð­bréfum, sem eru að uppi­stöðu hluta­bréf og skulda­bréf, á meðal allra lands­manna var upp á 69,2 millj­arða króna. Því eign­að­ist efsta tíundin, rúm­lega 22 þús­und ein­stak­lingar, í tekju­stig­anum 78 pró­sent af virði nýrra verð­bréfa á síð­asta ári.

Þetta má lesa út úr tölum Hagstofu Íslands um eignir og skuldir lands­manna sem birtar voru í síð­asta mán­uði. Þær tölur taka ekki með í reikn­ing­inn hlut­deild lands­manna í eignum líf­eyr­is­sjóða, sem eiga stóran hluta allra verð­bréfa á Íslandi.

Þrátt fyrir að eitt risa­stórt hluta­fjár­út­boð – í Icelandair Group – hafi farið fram í fyrra og litlum hlut­höfum skráðra félags hafi fjölgað mikið – úr átta í 32 þús­und – á síð­asta ári þá var staðan í árs­lok samt sem áður sú að rík­ustu tíu pró­sent lands­manna áttu enn 85 pró­sent af öllum verð­bréfum í eigu ein­stak­linga hér­lendis.

Þetta gæti hafa breyst eitt­hvað í ár, sér­stak­lega með skrán­ingu Íslands­banka á markað þar sem þús­undir ein­stak­linga skráðu sig fyrir litlum hlutum, en ólík­legt er að það hafi mikil áhrif á heild­ar­mynd­ina í ljósi þess hversu litlar upp­hæðir er um að ræða.

Nánast sama staða og 2010

Árið 2010 var heild­ar­eign þjóð­ar­innar í verð­bréfum metin á 374 millj­arða króna. Af þeirri tölu átti efsta tíundin 312 millj­arða króna í slíkum eignum, eða rúm 83 pró­sent. Uppgefið virði allra verð­bréfa í eigu Íslend­inga hafði þá dreg­ist saman um fjórð­ung síðan í árs­lok 2007, enda banka­hrun átt sér stað í milli­tíð­inni. Þar er þó ein­ungis um tap að nafn­virði að ræða þegar kemur að hluta­bréfum. Þorri þeirra var met­inn mun hærra að mark­aðsvirði og bók­halds­legt tap þeirra sem héldu á bréfum í skráðum félögum þegar þau urðu verð­laus í hrun­inu mun hærra.

[adspot][Út á þær bók­halds­legu tölur – hækk­anir á virði hluta­bréfa – höfðu margir tekið ný lán sem þeir gátu keypt sér raun­veru­lega hluti fyrir sem halda betur verð­mæti.

Níu af hverjum tíu nýjum krónum fara til efsta lagsins

Á ára­tug hefur heild­ar­virði verð­bréfa sem gefin eru upp í skatt­skýrslu lands­manna auk­ist um 253,2 millj­arða króna. Af því heild­ar­virði hafa 222,3 millj­arðar króna lent hjá efstu tíund­inni, eða 88 pró­sent.

[links]Frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst í mars í fyrra hefur úrvals­vísi­talan rúm­lega tvö­fald­ast. Virði Arion banka hefur þre­fald­ast. Virði Íslands­banka frá skrán­ingu í júní 2021 hefur auk­ist um næstum 50 pró­sent. Heild­ar­mark­aðsvirði skráðra félaga hefur farið úr því að vera 1.067 millj­arðar króna í að vera 2.288 millj­arðar króna, en vert er að taka fram að fjögur félög hafa verið skráð á hluta­bréfa­mark­að­ina tvo, Aðal­markað og First North, í milli­tíð­inni.

Sá sem átti t.d. eins millj­arðs króna hlut í Arion banka í mars í fyrra getur selt hann í dag á þrjá millj­arða króna. Þessi hækkun kemur ekki fram í verð­bréfa­eign hans eins og hún er upp­gefin hjá Hagstofu Íslands.

Þar er, líkt og áður sagði, ein­ungis miðað við kaup­verðið sem við­kom­andi greiddi fyrir hlut­inn. Í ljósi þess að efsta tíundin heldur á 88 pró­sent af nafn­virði verð­bréfa má ætla að hún taki til sín svipað hlut­fall af þeirri virð­is­aukn­ingu sem hefur orðið á hluta­bréfum vegna aðgerða stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár