Fimmtungur tók til sín 67 prósent af allri aukningu á eigin fé vegna fasteigna á áratug

Tvær af hverjum þremur krónum sem urðu til af nýjum auð á Íslandi frá 2010 og fram til síð­ustu ára­móta runnu til 20 pró­sent rík­ustu lands­manna. Aukn­ingin á eigin fé hóps­ins er van­metin þar sem virði hluta­bréfa er metið á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði.

Í lok árs 2010 átti íslenska þjóðin 1.565 millj­arða króna í eigið fé. Ríkasta tíund lands­manna átti 1.350 millj­arða króna á þessum tíma eða 86,2 pró­sent af öllu eigið fé þjóð­ar­innar. Þegar næstu tíund var bætt við fór eigið fé upp í 1.778 millj­arða króna, sem þýddi að sá fimmt­ungur lands­manna sem átti mest átti 114 pró­sent af öllu eigin fé ein­stak­linga í land­inu.

Hvernig er það hægt? Það var hægt vegna þess að stór hluti lands­manna var að glíma við for­dæma­lausan skulda­vanda á þessum tíma, meðal ann­ars vegna hús­næð­is­lána sem höfðu hækkað mikið vegna geng­is­falls eða verð­bólgu og fallandi eigna­verðs. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem átti minnst var með nei­kvætt eigið fé upp á 504 millj­arða króna.

Um síð­ustu ára­mót hafði staðan breyst umtals­vert. Íslenska þjóðin hafði skapað 3.951 nýja millj­arða króna á um ára­tug og heildar eigið fé hennar, eins og það er upp­gefið í tölum Hagstofu Íslands, stóð í 5.516 millj­örðum króna.

Af þessum 3.951 millj­arði króna sem orðið hefur til í sam­fé­lag­inu síðan 2010 fóru 2.517 millj­arðar króna til þeirra 20 pró­sent lands­manna sem eiga mest, eða næstum tvær af hverjum þremur krónum sem urðu til af nýjum auð. Sá helm­ingur ein­stak­linga sem búa á Íslandi sem átti minnst bætti stöðu sína sam­tals úr því að skulda 504 millj­arða króna umfram eignir 2010 í að skulda ein­ungis tæp­lega 67 millj­arða króna umfram eignir.

Hækkanir á fasteignaverði rata að mestu til þeirra ríkustu

Af þeirri upp­hæð sem Íslend­ingar áttu í eigið fé árið 2010 var 1.146 millj­arðar króna bundnir í steypu, eða 73,2 pró­sent. Á þeim tíma sem er lið­inn síðan þá hefur fast­eigna­bóla verið blásin upp á Íslandi og fast­eigna­verð hækkað gríð­ar­lega. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði það til að mynda um 126 pró­sent frá 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum.

[adspot]Þetta hefur skilað því að eigið fé sem bundið er í fast­eignum hefur auk­ist um 3.020 millj­arða króna, eða næstum þre­fald­ast. Af þess­ari aukn­ingu á virði fast­eigna sem skráðar eru á Íslandi lentu 2.040 millj­arðar króna hjá þeim fimmt­ungi lands­manna sem á mest fé, eða 67 pró­sent af allri aukn­ingu sem varð á virði fast­eigna á tíma­bil­inu.

Ef ein­ungis er skoðað hvað rík­ustu tíu pró­sent lands­manna, hópur sem telur 22.683 ein­stak­linga, þá sýna tölur Hag­stof­unnar að virði fast­eigna hans hafi auk­ist um 1.341 millj­arða króna á ára­tug og að 44 pró­sent allrar hækk­unar á fast­eigna­verði hafi farið til þessa hóps.

Tölurnar sýna ekki raunverulega stöðu

Síðasta ár var afar sér­stakt vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til marg­hátt­aðra aðgerða sem hleyptu súr­efni inn í hag­kerfið. Afleið­ing­arnar hafa verið meðal ann­ars verið þær að fast­eigna­verð og virði verð­bréfa hefur hækkað mikið, og eig­endur slíkra eigna á sama tíma ávaxtað fé sitt vel.

[links]Í tölum Hagstofu Íslands um eigið fé lands­manna er ekki tekið til­lit til eigna þeirra í líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem sam­eig­in­lega halda á 6.152 millj­örðum króna af eignum lands­manna, og eiga stóran hluta af öllum verð­bréfum sem gefin eru út hér­lendis. Þar er virði hluta­bréfa í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum líka reiknað á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði. Það þýðir t.d. að ef ein­stak­lingur keypti hlut í skráðu félagi sem hefur tífald­ast í verði fyrir ein­hverjum árum á 100 milljón króna þá er það virðið sem reiknað er inn í tölur Hag­stof­unnar, ekki einn millj­arður króna, sem er verðið sem við­kom­andi myndi fá ef hann seldi hluta­bréfin. Þetta skekkir eðli­lega mjög allar upp­gefnar tölur um eigið fé, enda verð­bréf að meg­in­uppi­stöðu í eigu þess hluta þjóð­ar­innar sem á mestar eignir. Í lok árs 2019 áttu til að mynda um átta þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf hér­lendis, en sá hópur telur nú um 32 þús­und manns.

Í tölum sem birt­ust í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2020 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrifar, kom auk þess fram að það eitt pró­sent lands­manna sem var með hæstu tekj­urnar á árinu 2019 hafi aflað 44,5 pró­sent allra tekna sem urðu til vegna ávöxt­unar á fjár­magni það árið. Alls var um að ræða 58 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár