Fimm pólitískar uppákomur á Ólympíuleikunum

Nokkrir íþrótta­menn not­uðu tæki­færið til að láta skoð­anir sínar á ýmsum mál­efnum í ljós á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó. Slíkt kann að vera bannað sam­kvæmt reglum Alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar.

Hvít-Rússi neit­aði að fara heim, banda­rískir skylm­inga­menn settu upp bleikar grímur, Taívani ítrek­aði þjóð­erni sitt, banda­rískur kúlu­varp­ari mynd­aði tákn með hönd­unum á verð­launa­palli og kín­verskir hjól­reiða­menn báru barmnælur með and­liti Maós Zedong.

Alþjóða ólymp­íu­nefndin hefur haft í nógu að snú­ast á leik­unum í Tókýó við að rann­saka atvik sem mögu­lega gætu brotið í bága við bann við póli­tískum og trú­ar­legum áróðri. Nokkuð var slakað á þess­ari reglu áður en leik­arnir hófust. Kepp­endur mega t.d. tjá skoð­anir sínar á blaða­manna­fundum í tengslum við leik­ana en áróður má ekki við­hafa á verð­launa­palli.

[adspot]

Nokkur atvik af póli­tískum toga, þótt ólík séu, hafa komið upp á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó og hér verður farið í stuttu máli yfir fimm þeirra.

Hvítrússneski spretthlauparinn

Krysts­ina Tsimanouskaja átti að keppa í 200 metra hlaupi í Tókýó. En þegar á leik­ana var komið til­kynnti þjálf­ar­inn henni með stuttum fyr­ir­vara að hún ætti einnig að keppa í boð­hlaupi sem hún hafði ekki æft fyrir. Þessu mót­mælti Tsimanouskaja og birti m.a. færslu um það sem hún sagði „van­rækslu“ þjálf­ar­ans á Instagram. Færslan olli reiði í hví­trúss­nesku ólymp­íu­nefnd­inni sem ákvað að senda hana þegar í stað heim – dag­inn áður en hún átti að keppa í 200 metra hlaup­inu.

Tsimanouskaju var hótað og að auki ráð­lagði fjöl­skyldan í Hvít-Rúss­landi henni frá því að snúa til baka. Það væri ein­fald­lega ekki óhætt enda fjöl­mörg dæmi um að íþrótta­fólki hafi verið refsað fyrir mót­mæli, það jafn­vel fang­elsað. Hún neit­aði því að fara um borð í flug­vél­ina og bað um aðstoð alþjóða ólymp­íu­nefnd­ar­innar sem kom henni í öruggt skjól. Daginn eftir fór hún í pólska sendi­ráðið í Tókýó og bað um vernd. Hana fékk hún og um miðja síð­ustu viku var hún komin til Póllands þar sem hún hefur fengið dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Alþjóð­lega ólymp­íu­nefndin hefur í kjöl­farið rekið tvo hví­trúss­neska þjálf­ara úr ólymp­íu­þorp­inu í Tókýó fyrir að reyna að þvinga Tsimanouskaju til að snúa til Hvíta-Rúss­lands. Málið allt er svo enn í rann­sókn hjá nefnd­inni.

Taívanski badmintonleikarinn

Eftir að Taívan hafði betur gegn Kína í tví­liða­leik karla í bad­minton á leik­unum í Tókýó skrif­aði gull­verð­launa­haf­inn Wang Chi-Lin á Facebook: „Ég er Taívani.“ Það kann að hljóma nokkuð sjálf­sögð yfir­lýs­ing en er hins vegar hápóli­tísk. Taívanir keppa undir nafn­inu Kín­verska Tapei að kröfu kín­verskra stjórn­valda sem segja Taívan hluta af „sam­ein­uðu Kína“.

Taívan hefur aldrei staðið sig jafn­vel á ólymp­íu­leikum og nú. Taí­vönsku íþrótta­menn­irnir hafa þegar unnið til tíu verð­launa. Þessi góði árangur hefur enn og aftur vakið upp deilur um þá stefnu alþjóð­legra stofn­anna á borð við ólymp­íu­nefnd­ina að flokka Taívan sem kín­verskt svæði. Í frétt Reuters segir að aðeins fimmtán ríki við­ur­kenni Taívan sem sjálf­stætt ríki.

Wang hefur fengið yfir milljón „læk“ á færsl­una og í athuga­semdum við hana má sjá yfir­lýs­ingar á borð við „Taívan er Taívan“ og „Team Taivan“.

Bandarísku skylmingamennirnir

Þegar banda­ríska karla­liðið í skylm­ingum mætti til keppni á ólymp­íu­leik­vang­inum í lok júlí báru þrír af fjórum kepp­endum þess bleikar and­lits­grímur. Sjá fjórði var með svarta.

Með þessu vildu þre­menn­ing­arnir sýna stuðn­ing við þrjár konur sem ásakað hafa liðs­fé­laga þeirra, Alen Hadzic, um kyn­ferð­is­brot. Upp um málið komst rétt eftir að hann var val­inn í liðið en hin meintu brot áttu sér stað á árunum 2013-2015. Að minnsta kosti tvær kvenn­anna stund­uðu skylm­ingar.

Hadzic neitar sök. Óháð rann­sókn­ar­nefnd, U.s. Center for SafeSport, komst að þeirri nið­ur­stöðu að vísa ætti Hadzic úr keppni en hann áfrýj­aði þeirri nið­ur­stöðu og hafði betur.

Jackie Dubrovich, sem keppti í kvenna­liði Banda­ríkj­anna í skylm­ingum á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó, fagn­aði mót­mæla­að­gerð þre­menn­ing­anna og gagn­rýndi harð­lega kerfi og fólk sem hlífi ger­endum svo þeir þurfi ekki að taka ábyrgð á gerðum sínum. „Kvenkyns íþrótta­menn nutu ekki verndar og öryggi okkar var ekki talið mik­il­vægt.“

Þrátt fyrir að banda­ríska ólymp­íu­nefndin hafi ákveðið að leyfa Hadzic að keppa greip hún til alls konar kúnsta til að halda honum frá öðrum kepp­endum. Hann flaug t.d. ekki í sama liði og þeir til Tókýó og fékk ekki að dvelja í ólymp­íu­þorp­inu líkt og hinir. Í frétta­skýr­ingu New York Times um málið segir að þessar aðgerðir ólymp­íu­nefnd­ar­innar varpi ljósi á „vand­ræða­gang“ hennar við að takast á við ásak­anir um kyn­ferð­is­brot innan íþrótta eftir að læknir fim­leika­lands­lið­anna til fjölda ára, Lawrence Nassar, var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að brjóta á hópi fim­leika­stúlkna og kvenna.

Bandaríski kúluvarparinn

Þegar banda­ríski kúlu­varpar­inn Raven Saunders steig á verð­launa­pall í Tókýó til að taka við silf­ur­verð­launum í grein­inni mynd­aði hún X með hönd­unum yfir höfði sér. Saunders er svört og sam­kyn­hneigð og hefur auk þess glímt við geð­ræna van­heilsu. Hún sagði merkja­send­ing­una tákna „gatna­mótin þar sem allt kúgað fólk kemur saman“.

Upp­á­koman vakti mikla athygli og alþjóð­lega ólymp­íu­nefndin hóf að skoða hvort að hún bryti í bága við bann við póli­tískum áróðri á verð­launapöll­unum. Nið­ur­staðan kom nokkrum dögum seinna: Atvikið mun engar afleið­ingar hafa fyrir Saunders.

Sjálf seg­ist hún hafa viljað sýna ólíkum sam­fé­lögum sem hún til­heyrir sam­stöðu og að hún vilji nota árangur sinn og þá athygli sem honum fylgi til að vekja athygli á mál­staðnum. „Við vitum að það er margt fólk sem lítur upp til okkar og það vill sjá hvort að við höfum eitt­hvað að segja og hvort að við tölum máli þeirra.“

Kínversku hjólreiðakonurnar

Lið Kína í einni af hjól­reiða­keppnum Ólymp­íu­leik­anna í Tókýó bar brjóst­nælur með Maó Zedong, fyrr­ver­andi leið­toga Kína og stofn­anda kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins, er það tók við gull­verð­launum sínum. Konurnar tvær, Bao Shanju and Zhong Tianshi, rétt mörðu þýska liðið í sprett­hjól­reiðum inn­an­húss. Er þær komu á verð­launa­pall­inn mátti sjá skugga­mynd af Maó for­manni nælda í treyjur þeirra.

Alþjóð­lega ólymp­íu­nefndin sagð­ist þegar í stað ætla að skoða hvort að upp­á­tækið bryti í bága við bann við póli­tískum áróðri á verð­launa­palli leik­anna. Óskað var eftir svörum frá kín­versku ólymp­íu­nefnd­inni. „en þeir hafa líka sagt að þetta muni aldrei ger­ast aftur,“ hefur Reuters-frétta­stofan eftir tals­manni alþjóð­legu nefnd­ar­innar.

Í frétt Guardian í gær kom fram að ákveðið hefði verið að sleppa hjól­reiða­kon­unum með áminn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár