Allt að tíu þúsund áhorfendur á hverjum keppnisstað Ólympíuleikanna

Ákvörðun hefur verið tekin um að leyfa áhorf­endum að horfa á keppn­is­greinar Ólymp­íu­leik­anna á keppn­is­stað en Japönum einum mun verða hleypt á áhorf­enda­pall­ana. Ólymp­íu­leik­arnir í Tókýó hefj­ast þann 23. júlí.

Neyðarástandi vegna faraldurs kórónuveiru var aflétt í Tókýó í gær.
Neyð­ar­á­standi vegna far­ald­urs kór­ónu­veiru var aflétt í Tókýó í gær. Mynd: EPA

Samþykkt hefur verið að leyfa áhorf­endum að mæta til að fylgj­ast með keppni á Ólymp­íu­leik­unum sem hefj­ast þann 23. júlí næst­kom­andi í Tókýó. Hámarks­fjöldi á áhorf­endapöll­unum verður tíu þús­und og á smærri keppn­is­stöðum verður hámarkið tak­markað við helm­ing af hámarks­sæta­nýt­ingu.

Áhorf­endur munu þurfa að nota grímur allan þann tíma sem þeir eru á keppn­is­stað og þá verður bann lagt við hrópum og köllum úr áhorf­enda­stúk­unum. Japanir einir munu geta fylgst með keppni á keppn­is­stað.

Ákvörðun um hámarks­fjölda áhorf­enda á ólymp­íu­móti fatl­aðra verður til­kynnt fyrir 16. júlí en mótið hefst þann 24. ágúst.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu Alþjóða­ólymp­íu­nefnd­ar­innar, Alþjóða­ólymp­íu­hreyf­ingu fatl­aðra, skipu­lags­nefndar Ólymp­íu­leik­anna 2020, borg­ar­yf­ir­valda í Tókýó og stjórn­valda í Japan sem fjallað er um í frétt BBC. Komi til þess að kór­ónu­veirusmitum fari fjölg­andi í land­inu munu aðil­arnir fimm end­ur­skoða ákvörð­un­ina um að leyfa áhorf­endur á leik­unum.

Íþróttaviðburðir með áhorfendum nú þegar haldnir víða

Sér­fræð­ingar í heil­brigð­is­málum höfðu sagt það æski­legt að banna áhorf­endum að mæta til að fylgj­ast með keppni. Í skýrslu sem birt var fyrir helgi var til að mynda varað við því að erill­inn sem fylgdi móts­haldi með áhorf­endum myndi lík­lega breiða út smit sem gæti lagst hart á heil­brigð­is­kerfi lands­ins.

Haft er eftir Seiko Has­himoto að nú þegar væru mörg for­dæmi fyrir því að halda íþrótta­við­burði með áhorf­endum, bæði innan Japan og um víða ver­öld. Með mark­vissum aðgerðum sem sam­ræm­ast kröfum stjórn­valda sé hægt að halda leik­ana með áhorf­endum. „Allur heim­ur­inn glímir nú við sömu hindr­an­irnar og við verðum að vinna saman til að kom­ast yfir þær.“

Japanir hvattir til að horfa á leikana í sjónvarpinu

Líkt og áður segir getur þróun far­ald­urs­ins haft áhrif á það hvort áhorf­endum verður leyft að mæta á leik­ana og þá hversu margir mega koma saman á hverjum keppn­is­stað. Japanir eru að stíga út úr stórri bylgju far­ald­urs­ins og neyð­ar­stigi vegna far­ald­urs­ins var aflétt í Tókýó í gær. Áhyggjur eru uppi um að ákvörð­unin um að leyfa áhorf­endur geti hru­bdið af stað nýrri bylgju. Til að mynda hvatti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Yos­hi­hide Suga, lands­menn til þess að halda sig heima og horfa á leik­ana í sjón­varp­inu frekar en að mæta í stúk­urnar.

Nú þegar er íþrótta­fólk sem mun keppa á leik­unum byrjað að leggja leið sína til Japan til að hefja und­ir­bún­ing fyrir leik­ana. Greint var frá því í gær á vef BBC að einn úr keppn­is­sveit frá Úganda hafi greinst með kór­ónu­veiruna við kom­una til Japan á laug­ar­dag. Í sveit­inni voru níu manns, meðal ann­ars hnefa­leika­menn og þjálf­arar, en búið var að full­bólu­setja alla í hópnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár