Ólympíuleikar fatlaðra að hefjast þrátt fyrir brot á ólympíska vopnahléinu

Þrátt fyrir að Rússland hafi brotið frið­ar­sátt­mála Ólymp­íu­leik­anna kemur það ekki í veg fyrir setn­ingu Ólymp­íu­leika fatl­aðra í Peking í Kína í dag. Það var hins vegar ákveðið á síð­ustu stundu að Rúss­neskir kepp­endur fengju ekki að taka þátt í leik­unum.

Hér má líta úkraínsku keppendurna á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í byrjun febrúar áður en ósköpin dundu á.
Hér má líta úkra­ínsku kepp­end­urna á opn­un­ar­há­tíð Ólymp­íu­leik­anna í byrjun febr­úar áður en ósköpin dundu á. Mynd: EPA

Ólymp­íu­frið­ur­inn hefur verið hluti Ólymp­íu­leik­anna frá því þeir voru stofn­aðir í Forn-Grikk­landi, þegar þátt­tak­endur þeirra hétu því að halda vopna­hlé á meðan á leik­unum stóð til þess að tryggja öryggi þeirra sem á leik­unum kepptu sem og áhorf­enda.

Ólymp­íu­frið­ur­inn var form­lega tek­inn upp að nýju árið 1992 og kveður á um að vopna­hlé skuli ríkja á meðan á Ólymp­íu­leikum stendur, nánar til tekið frá því viku áður en Ólymp­íu­leikar eru settir og þar til vika er liðin frá því að Ólymp­íu­leikum fatl­aðra lýkur. Er þetta gert til þess að tryggja að þátt­tak­endur geti ferð­ast til og frá og tekið þátt í Ólymp­l­íu­leik­unum án þess að ótt­ast um öryggi sitt. Ólympíska vopna­hléð var ein­róma sam­þykkt, þar á meðal af Rúss­landi, fyrir Vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna í Peking á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í des­em­ber.

Ólymp­íu­leikar fatl­aðra verða settir í Peking í Kína í dag, en eins og alkunn­ugt er orðið réðst Rússland inn í Úkraínu hinn 24. febr­úar síð­ast­lið­inn og braut þar með hið ólympíska vopna­hlé. Hefur því jafn­vel verið velt upp að meðal ástæðna þess að Rússar hafi þó ekki lagt til atlögu enn fyrr hafi verið til þess að styggja ekki banda­menn sína í Kína með því að rjúfa Ólymp­íu­frið­inn á meðan á meg­in­hluta Vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna stóð í Peking, en þeim lauk form­lega 20. febr­úar.

Viðsnúningur á síðustu stundu

Framan af var talið að rúss­neskir kepp­endur fengju engu að síður að taka þátt í Ólymp­íu­leikum fatl­aðra, sem hefj­ast eins og áður segir í dag, föstu­dag­inn 4. mars. Alþjóða­ólymp­íu­nefnd fatl­aðra taldi sig ekki hafa ann­arra kosta völ en að leyfa þeim að keppa og til­kynnti það mið­viku­dag­inn 2. mars, en lét loks undan miklum þrýst­ingi frá aþjóða­sam­fé­lag­inu, sem og öðrum keppn­is­þjóðum Ólymp­íu­leik­anna, og til­kynnti í gær, 3. mars, að kepp­endum frá Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi yrði meinuð þátt­taka á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra.

Er ákvörðun Alþjóða­ólymp­íu­nefndar fatl­aðra í takt við við­brögð íþrótta­hreyf­ing­ar­innar allrar, sem keppst hefur við að for­dæma inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Þannig hefur rúss­neskum félags- og lands­liðum verið meinuð þátt­taka af alþjóða­sam­tökum flestra íþrótta, meðal ann­ars knatt­spyrnu, körfu­bolta og frjáls­í­þrótta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár