Ólympíueldurinn tendraður fyrir auðu húsi

Ólymp­íu­leik­arnir í Tókýó verða með tölu­vert öðru sniði í ár en áður. Fyrir utan að vera haldnir ári á eftir áætlun þá verða engir áhorf­endur leyfðir. Auðir áhorf­enda­bekkir eru lík­legir til að hafa mis­mikil áhrif á kepp­endur eftir greinum.

Engir áhorfendur verða leyfðir á Ólympíuleikunum. Flennistórir leikvangar munu standa auðir og keppendur geta ekki reitt sig á stemningu frá pöllunum til að ná sér í aukaorku.
Engir áhorf­endur verða leyfðir á Ólymp­íu­leik­unum. Flennistórir leik­vangar munu standa auðir og kepp­endur geta ekki reitt sig á stemn­ingu frá pöll­unum til að ná sér í auka­orku. Mynd: EPA

Opn­un­ar­há­tíð Ólymp­íu­leik­ana er jafnan mik­ill gleði­við­burður, spennu­þrung­inn upp­haf­s­punktur stærstu íþrótta­há­tíðar ver­aldar. Íþrótta­menn­irnir ganga fullir stolti inn á leik­vang­inn og veifa upp á áhorf­enda­pall­ana. En ekki í ár, því það verður ein­fald­lega eng­inn til að veifa á áhorf­endapöll­unum, þeir verða tómir. Ólymp­íu­leik­arnir verða haldnir og þeir hefj­ast á ein­hvers konar opn­un­ar­há­tíð en allt verður þetta - eins og svo margt á tímum heims­far­ald­urs - öðru­vísi.

Fyrr í vik­unni var til­kynnt að engir áhorf­endur yrðu leyfðir á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó. Upp­haf­lega stóð til að heima­menn, Japanir, fengju að vera á áhorf­endapöll­unum með ákveðnum tak­mörk­unum. En nú mega þeir ekki einu sinni vera við­staddir þennan stór­við­burð í heima­landi sínu sem hefur verið í und­ir­bún­ingi frá árinu 2011 þegar borgin var valin til að halda sum­ar­leik­ana 2020. Engir aðrir en kepp­endur, þjálf­arar og starfs­fólk fá að koma nálægt keppn­is­svæð­unum. En hvaða áhrif hefur áhorf­enda­leysið?

Áhorfendur stór hluti af mannlífinu á Ólympíuleikunum

Ólymp­íu­leik­arnir, sem kenndir eru við árið 2020 þótt þeir fari fram í ár, standa yfir dag­ana 23. júlí til 8. ágúst og Íslend­ingar eiga fjóra full­trúa. Anton Sveinn Mckee keppir í 200m bringu­sundi, Ásgeir Sig­ur­geirs­son keppir í skot­fimi með loft­skamm­byssu, Guðni Valur Guðnason keppir í kringlu­kasti og Snæ­fríður Sól Jór­unn­ar­dóttir keppir bæði í 100m og 200m skrið­sundi.

Aðal­far­ar­stjóri íslenska hóps­ins er Andri Stef­áns­son. Spurður um hvaða áhrif hann telji að áhorf­enda­leysi hafi á kepp­endur segir hann það ekki hafa verið rætt sér­stak­lega innan hóps­ins. Stemn­ingin sé almennt góð og allir spenntir þrátt fyrir að leik­arnir verði ólíkir öllum öðrum Ólymp­íu­leikum.

Hann segir íþrótta­menn komna með tals­verða reynslu í því að þurfa að aðlaga keppnir að heims­far­aldri. „Allt síð­asta ár hefur verið öðru­vísi. Þau eru komin með ákveðna reynslu í að vera að keppa án áhorf­enda og í ýmsum aðstæðum.“

„Það sem er kannski öðru­vísi á Ólymp­íu­leikum er að áhorf­endur eru ekki bara á sjálfum íþrótta­við­burð­unum heldur eru svo stór hluti af mann­líf­inu í kringum leik­ana. Þessir Ólymp­íu­leikar verða því ólíkir öllum öðrum í gegnum tíð­ina og við rennum svo­lítið blint í sjó­inn með hvernig þetta mun takast til. Það er mjög mis­jafnt eftir greinum hvaða áhrif áhorf­endur hafa. Í skot­fimi sem Ásgeir Sig­ur­geirs­son keppir í þá eru vana­lega fáir áhorf­endur í keppn­is­salnum, þannig að þetta hefur ekki mikil áhrif. Á meðan ertu með tugi þús­unda áhorf­enda í frjálsum íþróttum til dæmis. Áhorf­enda­leysið mun hafa mis­mun­andi áhrif á íþrótta­grein­arnar,“ segir Andri. Hann bendir einnig á að heima­þjóð hafi vana­lega verið dyggi­lega studd af áhorf­endum og því sé lík­legt að Japanir gætu liðið fyrir það að áhorf­endur vanti.

„En fyrir þjóðir sem væru hvort sem er ekki með þús­undir manna á bak­við sig þá skiptir þetta ekki öllu máli. Í okkar til­viki skiptir meira máli að vera með þjálf­ara og hóp sem styður vel við kepp­endur. Án þess að ég hafi rætt það við Ólymp­íu­far­ana þá held ég að þau muni kannski sjá þetta sem tæki­færi, þetta gæti jafnað leik­inn og við gætum þá alveg eins komið sterk­ari út en margir aðrir. Ég hef mikla trú á okkar fólki. Þetta er lít­ill en þéttur hópur og held að þau spjari sig við allar aðstæður,“ segir far­ar­stjór­inn þegar Kjarninn náði tali af honum skömmu fyrir brott­för til Tókýó.

Sjón­varps­stöðv­arnar sem sýna frá Ólymp­íu­leik­unum hafa þó tölu­verðar áhyggjur af auðum áhorf­endapöllum. Þeirra áhyggjur snúa þó ekki að and­legri líðan íþrótta­manna heldur hefur reynslan í heims­far­aldr­inum sýnt að íþrótta­keppnir án áhorf­enda njóta minni vin­sælda meðal sjón­varps­á­horf­enda en þegar pall­arnir eru pakk­aðir. Til dæmis hrap­aði áhorf á úrslita­keppni NBA-deild­ar­innar í körfu­bolta um 50% við það eitt að sleppa áhorf­endum.

Áhorfendaleysi getur virkað í báðar áttir

Ólymp­íu­leik­arnir eru miklu meira en bara íþrótta­keppni. Hugsunin á bak­við þá í grunn­inn er að sam­eina þjóðir heims, að stuðla að friði og vin­áttu þvert á þjóð­erni. Í hópi áhorf­enda eru ekki aðeins áhan­gendur og íþróttaunn­endur heldur þjóð­ar­leið­togar, kónga­fólk, fyrrum kepp­endur og svo mætti áfram telja. Mann­lífið í kringum Ólymp­íu­leik­ana er mik­il­vægt fyrir við­burð­ina. Fólkið sem horfir á staðnum tekur þátt, lifir sig inn í við­burð­ina og sú inn­lifun skilar sér heim í stofu til áhorf­enda sem fylgj­ast með á sjón­varps­skjá.

Ýmsar rann­sóknir hafa verið gerðar á áhrifum áhorf­enda á íþrótta­mótum en að sögn Viðars Hall­dórs­sonar pró­fess­ors í félags­fræði við Háskóla Íslands eru nið­ur­stöð­urnar ekki á einn veg. „Rann­sóknir á þessu hafa mest verið gerðar í hóp­í­þróttum þar sem áhorf­endur mynda oft mikla stemn­ingu og virka hvetj­andi. Ein­stak­lings­í­þróttir byggja meira á ein­stak­lings­bundnum hæfi­leikum og ein­beit­ingu. Árangur þar byggir lík­lega ekki jafn­mikið á stemn­ing­unni eins og í hóp­í­þróttum. Þú þarft mikla ein­beit­ingu á það hvað þú ert að gera, og þá getur alveg verið að það hjálpi að sleppa áhorf­endum.

Áhorf­enda­leysi getur þannig virkað í báðar áttir, ann­ars vegar leitt til verri frammi­stöðu því það dregur úr stemn­ingu og hvatn­ingu á vell­inum sjálfum. En það getur líka bætt frammi­stöðu því að sama skapi dregur það úr streitu að hafa enga áhorf­endur. Mómentið þegar á að fara að gera eitt­hvað stór­kost­legt getur verið streitu­valdur.“

Minni hávaði geti dregið úr streitu og minnkað líkur á að fólk yfir­spenn­ist. Viðar telur þó engu hægt að slá föstu um áhrif þess að hafa enga áhorf­endur á svona stórum við­burði eins og Ólymp­íu­leik­arnir eru. Áhrifin verði ólík eftir greinum og einnig eftir ein­stak­lingum.

„Þetta bitnar eflaust á þeim íþrótta­mönnum sem þríf­ast á stemn­ingu en getur aftur á móti hjálpað þeim sem eiga það til að fara yfirum í spennu. Kannski verður mun­ur­inn á milli þeirra bestu og þeirra lak­ari minni af þessum sökum, það verður bara áhuga­vert að sjá. Kenn­ingar í sál­fræði sýna að ef þú ert svaka­lega góður í ein­hverju þá hjálpa áhorf­endur, en ef þú ert óör­uggur þá draga áhorf­endur úr árangri. Áhorf­enda­leysi gæti því alveg jafnað leik­ana,“ segir Viðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár