Ostrur ógna róðrarkeppni Ólympíuleikanna

Keppn­is­svæði fyrir róðr­ar­keppni á Ólymp­íu­leik­unum var til­búið í júní árið 2019, rúmu ári áður en að leik­arnir áttu upp­haf­lega að hefj­ast. Nú er komið babb í bát­inn því ostrur hafa hreiðrað um sig á sér­stökum öldu­vörnum á svæð­inu og fært þær í kaf.

Keppni í róðri á Ólympíuleikunum mun fara fram á keppnissvæðinu Sea Forest Waterway í næsta nágrenni við miðborg Tókýó
Keppni í róðri á Ólymp­íu­leik­unum mun fara fram á keppn­is­svæð­inu Sea Forest Waterway í næsta nágrenni við mið­borg Tókýó Mynd: EPA

Skammt frá mið­borg Tókýó hefur keppn­is­svæði fyrir róður á kom­andi Ólymp­íu­leikum, bæði róður á róðra­bátum og á kanóum en gerður er grein­ar­munur á þessu tvennu. Fram­kvæmdir við Sea Forest Waterway keppn­is­svæðið gengu vonum framar og var svæðið til­búið til notk­unar í júní árið 2019. Þá var rúmt ár í að leik­arnir áttu upp­haf­lega að hefj­ast en sökum kór­ónu­veiru­far­ald­urs var þeim frestað um ár og hefj­ast þeir í þess­ari viku.

Stjórn­endur keppn­is­svæð­is­ins standa nú frammi fyrir nýrri áskorun. Ostrur hafa í stórum stíl komið sér fyrir á sér­stökum flekum sem ætlað er að koma í veg fyrir að öldur mynd­ist á keppn­is­svæð­inu. Svo vel líkar ostr­unum við dvöl­ina á flek­unum að þyngd þeirra er farin að reyn­ast þeim um of, flek­arnir hafa sumir hverjir færst í kaf. Frá þessu er sagt á vef BBC. [adspot]

Óvæntur kostnaður upp á 160 milljónir

Vanda­málið hefur reynst bæði dýrt og tíma­frekt að leysa. Flek­arnir hafa verið dregnir á land til við­gerða auk þess sem þeir hafa verið þrifnir af flokki kaf­ara. Nú þegar hafa um 14 tonn af ostrum verið fjar­lægðar af bún­aði sem not­aður er á keppn­is­svæð­inu. Kostn­að­ur­inn sem hlot­ist hefur af þess­ari óvæntu dvöl ostr­anna nemur hátt í 160 millj­ónum króna. [links]

Ostr­urnar sem um ræðir eru svo­kall­aðar magaki ostrur. Þær eru ákaf­lega vin­sæll matur á borðum Japana á vet­urna en ekki hefur verið talið skyn­sam­legt að koma þess­ari óvæntu upp­skeru á markað.

Keppn­is­svæðið Sea Forest Waterway er það eina í Japan sem stenst alþjóð­lega staðla fyrir róðr­ar­keppnir. Upp­haf­lega stóð til að svæðið myndi verða keppn­is­staður fyrir róðr­ar­keppnir eftir að Ólymp­íu­leik­unum lýkur. Áætlanir gera ráð fyrir að árlegur kostn­aður við rekstur svæð­is­ins nemi um 1,5 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða tæpum 190 millj­ónum króna. Því ríður á að yfir­völd finni far­sæla fram­tíð­ar­lausn á þessu dýra vanda­máli.

Leikarnir hefjast í vikunni

Setn­ing­ar­at­höfn Ólymp­íu­leik­anna í Tókýo fer fram klukkan 11 að íslenskum tíma á föstu­dags­morgun. Keppni í fót­bolta og mjúk­bolta, íþróttar sem svipar mjög til hafna­bolta, hefst að vísu á mið­viku­dag. Keppt er á leik­unum til 8. ágúst og fer loka­há­tíð leik­anna fram þann sama dag, klukkan 11 fyrir hádegi að íslenskum tíma.

Enginn kepp­andi í íslenska hópnum mun þurfa að hafa áhyggjur af ostr­unum í Tókýó en Íslend­ingar eiga fjóra full­trúa á Ólymp­íu­leik­unum. Anton Sveinn Mckee keppir í 200m bringu­sundi, Ásgeir Sig­ur­geirs­son keppir í skot­fimi með loft­skamm­byssu, Guðni Valur Guðnason keppir í kringlu­kasti og Snæ­fríður Sól Jór­unn­ar­dóttir keppir bæði í 100m og 200m skrið­sundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár