Hótuðu hlaupakonunni – „Eins og fluga föst í kóngulóarvef“

Hví­trúss­neski sprett­hlaupar­inn Krysts­ina Tsimanouskaya hefur fengið vernd af mann­úð­ar­á­stæðum í Póllandi og eig­in­maður hennar hefur flúið Hvíta-Rússland. Tugir íþrótta­manna hafa verið hand­teknir í land­inu fyrir að mót­mæla for­set­anum.

Krystsina Tsimanouskaya fer ekki aftur heim til Hvíta-Rússlands. Hún hefur sótt um hæli í Póllandi.
Krysts­ina Tsimanouskaya fer ekki aftur heim til Hvíta-Rúss­lands. Hún hefur sótt um hæli í Póllandi. Mynd: EPA

Mál hví­trúss­neska sprett­hlauparans, sem þvinga átti til heim­farar af Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó, þykir til marks um það tang­ar­hald sem Alex­ander Lukashenko for­seti hafi á öllum kimum sam­fé­lags­ins og að íþrótta­hreyf­ingin sé þar engin und­an­tekn­ing.

Hann hefur stjórnað með harðri hendi frá árinu 1994 er hann sett­ist á for­seta­stól. Undir hans stjórn voru fjölda­mót­mæli í kjöl­far vafa­samra úrslita í for­seta­kosn­ing­unum á síð­asta ári brotin á bak aftur með ofbeldi. Þekktir ein­stak­lingar sem tóku þátt í mót­mæl­unum hafa verið látnir finna fyrir því. Í þeirra hópi voru afrek­s­í­þrótta­menn sem voru fang­els­aðir, reknir úr lands­liðum og sviptir styrkjum frá hinu opin­bera.

Hin 24 ára gamla Krysts­ina Tsimanouskaya hefur nú fengið vega­bréfs­á­ritun af mann­úð­ar­á­stæðum í Póllandi og hefur þegar sótt um hæli þar í landi. „Pólland mun gera hvað sem það getur til að styðja við hana á íþrótta­braut­inni,“ sagði aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Póllands í dag. Hún er nú í pólska sendi­ráð­inu í Japan en þess er vænst að hún fljúgi til Póllands í næstu viku. Hún er sögð hafa það ágætt miðað við það álag sem hún hefur þurft að þola síð­ustu daga.

Eig­in­maður hennar, Arseniy Zdanevich, er flú­inn frá Hvíta-Rúss­landi. Hann er nú staddur í Kiev í Úkraínu. „Mér datt ekki í hug að þetta yrði svona alvar­legt,“ sagði hann í sam­tali við Sky-frétta­stof­una. „Ég tók ákvörðun um að flýja án þess að hugsa mig tvisvar um.“ Hann stefnir að því að hitta eig­in­konu sína í Póllandi á næstu dögum.

Krysts­ina Tsimanouskaya seg­ist hafa verið flutt nauðug út á flug­völl eftir að hafa gagn­rýnt þjálf­ara sinn og sagst ótt­ast um öryggi sitt. Hví­trúss­neska ólymp­íu­nefndin segir hins vegar að ákveðið hafi verið að taka hana úr lið­inu vegna and­legrar van­heilsu hennar.

Til stóð að Tsimanouskaya keppti í 200 metra hlaupi í dag, mánu­dag. Um helg­ina var henni hins vegar til­kynnt að hún ætti að keppa í 4 x 400 boð­hlaupi með mjög stuttum fyr­ir­fara eftir að í ljós kom, að því er virð­ist, að gögn úr lyfja­prófum hlaupara sem skráðir voru til leiks í því reynd­ust ekki til staðar. Þessu and­mælti hún og sak­aði þjálf­ar­ann um van­rækslu.

[adspot]

Í gær, sunnu­dag, var Tsimanouskaya skyndi­lega tekin úr keppni og gef­inn klukku­tími til að pakka niður áður en hún var flutt út á flug­völl. Þar neit­aði hún að fara um borð í vél­ina sem átti að flytja hana aftur til Minsk, höf­uð­borgar Hvíta-Rúss­lands. Þess í stað bað hún um lög­reglu­vernd og sagð­ist ætla að sækj­ast eftir hæli á Vest­ur­löndum. Hún var að því er virð­ist af fréttum í nánu sam­bandi við alþjóða ólymp­íu­nefnd­ina sem og Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna á meðan þessu stóð og fór í kjöl­farið í fylgd lög­reglu á hótel á flug­vell­inum þar sem hún dvaldi í skjóli yfir nótt. Í morgun, mánu­dag, fór hún svo í pólska sendi­ráðið.

Birtar hafa verið hljóð­upp­tökur þar sem talið er að heyra megi þjálf­ar­ann og menn úr hví­trúss­nesku ólymp­íu­nefnd­inni hóta Tsimanouskaya. „Ef þú vilt ein­hvern tím­ann keppa aftur fyrir Hvíta-Rússland þá skaltu hlusta á það sem ég mæli með: Farðu heim, til for­eldra þinna eða hverra sem er,“ heyr­ist sagt á upp­tök­unni og talið er vera rödd manns úr ólymp­íu­nefnd­inni. „Slepptu þessu. Ef ekki, þeim mun meira sem þú berst um, þá verður það eins og fluga föst í kóngu­ló­ar­vef. Því meiri vef sem hún spinnur því meiri verður flækjan.“

Nokkur Evr­ópu­lönd hafa boð­ist til að taka Tsimanouskaya undir sinn vernd­ar­væng og veita henni hæli. Meðal þeirra fyrstu til að gera það voru Pólland og Tékkland en stjórn­völd þar í landi hafa verið mjög gagn­rýnin á stjórn Lukashen­kos. Hví­trúss­neskur blaða­maður segir í sam­tali við The Guardian að hún hafi einnig íhugað að sækja um vernd í Aust­ur­ríki eða Þýska­landi. Hót­el­nótt­inni eyddi hún svo í að gera upp huga sinn. „Við vitum að dyr margra Evr­ópu­ríkja stóðu opnar fyrir henni en á end­anum ákvað hún að fara til Varsjár.“

Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur fagnað þeirri ákvörðun Póllands að veita Tsimanouskaya vernd. Fram­kvæmda­stjóri utan­rík­is­mála hjá sam­band­inu, segir að til­raun Hvít-Rússa til að færa sprett­hlaupa­kon­una nauð­uga úr landi sé „enn eitt dæmið um grimmi­lega und­ir­okun stjórnar Lukashen­kos“.

Yfir sex­tíu hví­trúss­neskir íþrótta­menn og þjálf­arar hafa misst störf sín eða stöður eftir að hafa tekið þátt í mót­mæl­unum í fyrra. Fleiri en tutt­ugu hafa verið hand­teknir, m.a. þekktur körfu­bolta­leik­maður. Sér­stakur stuðn­ings­hópur íþrótta­mann­anna hefur verið stofn­aður og segir tals­maður hans í sam­tali við BBC að Tsimanouskaya ótt­ist um líf fjöl­skyldu sinnar í Hvíta-Rúss­landi. „Það er hennar helsta áhyggju­efni núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár