Ólympíufimleikar ekki lengur unglingakeppni

Þegar elsta fim­leika­konan sem skráð er til leiks í Tókýó fór á sína fyrstu Ólymp­íu­leika voru flestar sem hún keppir við nú ekki fæddar. Í fyrsta sinn í ára­tugi eru tán­ingar ekki í meiri­hluta í fim­leika­keppni kvenna og með­al­aldur er nærri 22 ár.

Oksana Chusovitina keppir fyrir Úsbekistan í fimleikum á Ólympíuleikunum. Hún er 46 ára og kemur til með að setja nýtt met sem elsta konan til að taka þátt í fimleikakeppninni.
Oksana Chusovitina keppir fyrir Úsbekistan í fim­leikum á Ólymp­íu­leik­unum. Hún er 46 ára og kemur til með að setja nýtt met sem elsta konan til að taka þátt í fim­leika­keppn­inni. Mynd: EPA

Oksana Chusovitina var í sig­ur­liði leik­anna í Bar­selóna 1992 og býr sig nú undir að taka þátt í sínum átt­undu Ólymp­íu­leikum. Hún er 46 ára og verður elst til að taka þátt í fim­leika­keppni Ólymp­íu­leik­anna, slær eigið met frá því í Ríó þegar hún keppti 41 árs. Chusovitina keppir nú fyrir heima­land sitt Úsbekistan.

Hóf ferilinn fyrir Sovétríkin

Þegar Chusovitina hóf sinn keppn­is­feril í fim­leikum keppti hún undir merkjum Sov­ét­ríkj­anna. Eftir að þau liðu undir lok keppti hún í eitt skipti fyrir Samveldi sjálf­stæðra ríkja, en fyrrum Sov­étlýð­veldin sendu lið undir því nafni á Ólymp­íu­leik­ana 1992, þá fyrstu sem Chusovitina keppti á. Á árunum 1993 til 2005 keppti hún fyrir Úsbekistan en flutti svo til Þýska­lands og keppti með þýska lands­lið­inu í nokkur ár áður en hún sneri aftur í úsbeska lands­liðið sem hún hefur keppt fyrir frá 2013.

Chusovitina státar af níu gull­verð­launum á stór­mótum, 14 silf­ur­pen­ingum og níu brons­medal­íum. Og hún er ekki hætt að kom­ast á pall, hún vann til dæmis silfur í stökki á Asíu­leik­unum árið 2018, þá 43 ára. Stökk er hennar sér­grein og hún hefur sagt í við­tölum að hún telji sig eiga góða mögu­leika á að keppa um verð­laun í Tókýó. Hún varð sjö­unda í keppni á stökki í Ríó, þannig að hún er sann­ar­lega enn á meðal þeirra allra bestu. Besti ein­stak­lings­ár­angur hennar á Ólymp­íu­leikum er silfur á stökki á leik­unum 2008.

Ferill hennar spannar lengri tíma en ævi flestra fim­leika­kvenna sem Chusovitina etur kappi við. Simone Biles, besta fim­leika­kona heims, er til dæmis fædd árið 1997. Chusovitina hafði þegar keppt á tvennum Ólymp­íu­leikum þegar Biles kom í heim­inn og býr sig nú undir sína átt­undu og síð­ustu. Raunar voru aðeins þrjár fim­leika­konur sem skráðar eru til leiks á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó fæddar þegar Chusovitina tók þátt í sínum fyrstu Ólympu­leikum, engu að síður er hóp­ur­inn nú eldri en oft­ast áður.

Meðalaldur fer hækkandi

Með­al­aldur kvenn­anna 98 sem taka þátt í fim­leika­keppni á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó er 21 ár og 11 mán­uðir. Á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó 2016 var með­al­aldur fim­leika­kvenna 20 ár og níu mán­uðir og er um tölu­vert stökk að ræða. Með­al­aldur í þess­ari vin­sæl­ustu keppni hverra Ólymp­íu­leika hefur ekki verið svona hár frá árinu 1964, ef marka má frétt NBC Sports um málið.

Oft hefur ungur aldur fim­leika­kvenna verið gagn­rýndur, en svo virð­ist sem margar þjóðir sendi nú eldri fim­leika­konur til leiks en áður. Frá árinu 2000 hefur reglan verið sú að til að fá að keppa á Ólymp­íu­leikum þurfi fim­leika­kona að hafa náð 16 ára aldri þegar hún keppir.

Áður var til­hneig­ingin sú að senda sífellt yngri stúlkur til leiks. Margir muna til dæmis eftir því þegar banda­ríska kvenna­liðið vann gull í fyrsta sinn á Ólymp­íu­leikum. Það var á leik­unum í Atlanta árið 1996, en margir muna eftir til­finn­inga­þrung­inni stund þegar ljóst var að Kerri Strug hefði meiðst. Hún lauk engu að síður keppni, með slitin lið­bönd, og liðið náði Ólymp­íugulli og hlaut heims­frægð í kjöl­farið. Sú elsta í banda­ríska lið­inu var á þessum tíma 19 ára og sú yngsta aðeins 14 ára.

Ljóst er því að margt hefur breyst frá því þegar alsiða var að senda ung­linga á Ólymp­íu­leika til að keppa í fim­leikum kvenna. Með­al­aldur kvenna í fim­leika­keppn­inni á Ólymp­íu­leik­unum var 20 ár á leik­unum í Mexík­ó­borg árið 1968, hann féll svo niður í 18 ára 1972 og á átt­unda, níunda og tíunda ára­tugnum var með­al­ald­ur­inn jafnan á bil­inu 16 til 18 ár, en hann hefur farið hækk­andi frá árinu 2012.

Fimleikakonur yfir tvítugu í meirihluta

Oksana Chusovitina hífir með­al­talið vissu­lega upp, en það er ekki bara hennar aldur sem hefur áhrif. Í Tókýó verða konur 20 ára og eldri í meiri­hluta en tán­ingar, 16 til 19 ára, í minni­hluta. Það hefur ekk­ert gerst frá árinu 1968.

Tíðindum þykir sæta að tvö kvenna­lið sem skráð eru í ár, lið Hollands og Þýska­lands, eru alfarið skipuð konum 20 ára og eldri. Síðast þegar þjóð sendi lið án tán­inga til keppni í fim­leikum kvenna var árið 1964. Banda­ríska liðið er einnig með óvenju háan með­al­aldur en engin hinna banda­rísku fim­leika­kvenna er yngri en 18 ára og fjórar eru yfir tví­tugu. Ald­urs­for­setar liðs­ins, Simone Biles og MayKayla Skinner, eru 24 ára gamlar. Fari þær að for­dæmi Chusovitinu gætu þær enn verið í fullu fjöri á Ólymp­íu­leik­unum árið 2040.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fimleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár