Gert út á Ólympíudrauminn en börnin gleymdust

Aðeins mán­uði eftir að banda­ríska kvenna­liðið í fim­leikum sóp­aði til sín verð­launum á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó birti dag­blað í Indíana frétt um að liðs­lækn­ir­inn Larry Nassar hefði mis­notað ungar fim­leika­stúlkur. Málið var stærra en nokkurn óraði fyrir þá.

Þegar fyrsta fréttin um ásakanir þriggja kvenna um misnotkun Larry Nassar kom út haustið 2016 grunaði fáa hvert umfang málsins yrði, en talið er að Nassar hafi misnotað yfir 500 stúlkur yfir meira en tveggja áratuga tímabil sem landsliðs- og háskólalæknir
Þegar fyrsta fréttin um ásak­anir þriggja kvenna um mis­notkun Larry Nassar kom út haustið 2016 grun­aði fáa hvert umfang máls­ins yrði, en talið er að Nassar hafi mis­notað yfir 500 stúlkur yfir meira en tveggja ára­tuga tíma­bil sem lands­liðs- og háskóla­læknir Mynd: EPA

Ef allt væri eðli­legt stæði fim­leika­keppni Ólymp­íu­leik­anna sem hæst þessa dag­ana, en útsend­ingar frá úrslitum í fim­leikum kvenna er eitt allra vin­sælasta sjón­varps­efni leik­anna. Í for­grunni keppn­innar und­an­farna leika hafa verið hetj­urnar í banda­ríska kvenna­lið­inu, allir vilja berja þær augum enda sýn­ingin stór­kost­leg. Engir Ólymp­íu­leikar eru í ár en á einni stærstu efn­isveitu heims, Netflix, er sýnd heim­ild­ar­myndin Athlete A sem fjallar um myrkar hliðar árang­urs liðs­ins og það þegar dag­blaðið Indi­ana­polis Star fletti ofan af Larry Nassar, níð­ingnum sem komst upp með það ára­tugum saman að mis­nota ungar fim­leika­stúlkur í Banda­ríkj­unum. 

Í mynd­inni, sem sýna átti á Tribeca kvik­mynda­há­tíð­inni hefði henni ekki verið aflýst, er rýnt í þá menn­ingu sem ríkti, eða ríkir, í banda­ríska fim­leika­heim­inum og átti mögu­lega þátt í því að Nassar var ekki stöðv­aður fyrr.

Draumar barna nýttir til að byggja upp vörumerki

„Þessi börn fengu öll ráð frá full­orðnu fólki um hvernig þau gátu látið Ólymp­íu­draum­inn ræt­ast. Það var svo í raun verið að nota þessa drauma þeirra til að byggja upp vöru­merki, og full­orðna fólkið var svo upp­tekið við að selja vöru­merkið að það hafði ekki tíma fyrir þessar stelpur.”

Svona kemst rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Steve Berta að orði þegar hann lýsir yfir­mönnum banda­ríska fim­leika­sam­bands­ins, USA Gymnastics, og vinnu­brögðum þeirra í heim­ild­ar­mynd­inni Athlete A, en Berta stýrði rann­sókn­arteymi dag­blaðs­ins Indi­ana­polis Star sem fyrst allra miðla fletti ofan af níð­ingnum Larry Nassar.

Fórnarlömbin reyndust mörg hundruð

Myndin, sem er gerð af Bonni Cohen og Jon Shenk, er með vin­sælasta efni á Netflix þessa dag­ana en nafnið Athlete A vísar í heiti sem blaða­menn Indi­ana­polis Star gáfu fyrstu afreks­kon­unni sem greindi fim­leika­sam­band­inu frá brotum Larry Nassars, læknis banda­ríska lands­liðs­ins í fim­leikum til tveggja ára­tuga og háskóla­læknis Michigan háskóla, en sú vildi ekki koma fram undir nafni fyrst þegar sagðar voru fréttir af mál­inu haustið 2016.

Hún kom síðar fram og heitir Maggie Nichols, ein allra besta fim­leika­kona Banda­ríkj­anna, sem þó var horft fram hjá við val í Ólymp­íuliðið 2016 enda hafði hún þá til­kynnt um brot Nassar til fim­leika­sam­bands­ins og virð­ist hafa verið snið­gengin fyrir vikið.

Rannsóknarblaðamennska upphafið að endinum

Eins og allir sem fylgj­ast með fréttum vita var mál Nassars eitt mesta hneyksli innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar, ekki bara í Banda­ríkj­unum heldur í heim­inum öllum, í áraraðir. Vart er hægt að ímynda sér neitt verra en að kom­ast að því að læknir sem átti að halda utan um börn og vernda þau þegar þau meidd­ust eða glímdu við verki, mis­not­aði þau þess í stað í skjóli aðstöðu sinnar.

Í upp­hafi, þegar IndyStar fór af stað með málið, greindu þrjár stúlkur þeim frá brotum Nassars en síðar stigu alls fram yfir 500 fórn­ar­lömb lækn­is­ins. Líkt og heims­byggðin fékk að fylgj­ast með var Larry Nassar árið 2018 dæmdur í allt að 175 ára fang­elsi fyrir að hafa beitt mörg hund­ruð stúlkur kyn­ferð­is­legu ofbeldi og mis­notkun.

Hann var einnig dæmdur í 60 ára fang­elsi fyrir vörslu barnakláms og því ljóst að Nassar mun ekki um frjálst höfuð strjúka framar.

Sak­sókn­ari í mál­inu sagði að rann­sókn­ar­blaða­mennsku væri að þakka fyrir að Larry Nassar hefði náðst.

Hefði IndyStar ekki hafið sína rann­sókn og fylgt mál­inu vand­lega eftir væri óvíst að hann hefði verið fund­inn sekur. En, eins og myndin sýnir fram á, hefði verið hægt að ná honum fyrr. Hann fékk óáreittur að fremja brot sín jafn­vel eftir að til­kynnt hafði verið um brotin til fim­leika­sam­bands­ins og Michigan-háskóla. Mörgu er enn ósvarað varð­andi þetta and­styggi­lega mál, einkum um það hver vissi hvað og af hverju ekk­ert var gert fyrr.

Spurningarnar sem eftir standa

Hvernig gat þetta gerst? Þetta er spurn­ingin sem ómar í höfðum flestra sem setja sig inn í málið og reynt er að finna ein­hver svör við í mynd­inni. Larry Nassar starf­aði í yfir tvo ára­tugi með börnum og ung­lingum og virð­ist á þeim tíma hafa náð að mis­nota og beita mörg hund­ruð stúlkur kyn­ferð­is­of­beldi.

Líkt og reynt er að varpa ljósi á í mynd­inni þá er það ekki síður umhverfið í kringum Nassar sem sætir gagn­rýni. Eitruð keppn­is­menn­ing, harð­ræði og óeðli­legt and­rúms­loft sem skap­ast hefur í fim­leika­heim­inum í Banda­ríkj­unum er talið hafa ýtt undir það að eng­inn sagði frá.

Með öðrum orðum, það var svo illa farið með þessar stelpur dags­dag­lega að þær áttu litla mögu­leika á að koma auga á fram­koma Nassars væri óeðli­leg. Ef þær voru svangar var þeim sagt að það væri mis­skiln­ingur, ef þær voru meiddar var þeim sagt að það væri eðli­legt. Fim­leika­konur vönd­ust því frá unga aldri að þeirra þarfir skiptu ekki máli. Einhvern veg­inn svona er and­rúms­loft­inu í banda­ríska fim­leika­heim­inum lýst í mynd­inni og því haldið fram að teknar hafi verið upp gagn­rýn­is­laust þjálf­un­ar­að­ferðir frá fyrrum Sov­ét­ríkj­unum þar sem harð­ræði og nið­ur­læg­ing voru talin hluti af því að ná árangri. Gengið er svo langt að segja að aðal­þjálf­arar banda­ríska kvenna­liðs­ins um ára­bil, hjónin Marta og Bela Karolyi, hafi normalíserað grimmd sem þjálf­un­ar­að­ferð.

Þetta er langt því frá í fyrsta sinn sem hjónin, sem áður þjálf­uðu í Rúmeníu, eru gagn­rýnd og þess­ari menn­ingu ógnar og ótta í fim­leika­heim­inum er lýst. Í bók­inni Pretty Girls in Little Boxes eftir blaða­mann­inn Joan Ryan sem kom út árið 1995 kom fram hörð gagn­rýni á nákvæm­lega þessa ógn­ar­stjórn sem ein­kennir þjálfun fim­leika­kvenna. Bent var á að ungar stelpur væru látnar æfa þótt þær væru meiddar og svelti væri dag­legt brauð, enda varp­aði bókin mik­il­vægu ljósi á átrask­anir sem vanda­mál í svona and­rúms­lofti. Ryan hefur sagt í við­tölum eftir að myndin Athlete A kom fram að það sé sorg­legt að sjá hversu lítið hafi í raun breyst frá því bókin kom út fyrir ald­ar­fjórð­ungi.

„Þetta hefði verið hægt að forðast”

„Það var horft fram hjá okkur of lengi. Þetta hefði verið hægt að forð­ast. Við þurftum bara einn full­orð­inn ein­stak­ling til að standa á milli okkar og Nassars,” sagði Ólymp­íu­far­inn Aly Raisman sem einnig hefur komið fram opin­ber­lega sem þol­andi lækn­is­ins.

En eng­inn full­orð­inn stóð þarna á milli eins og lýst er í mynd­inni. Enginn stopp­aði níð­ing­inn og hann hafði óheftan aðgang að börnum. Hluti af því að Nassar náði sífellt í ný fórn­ar­lömb var einmitt að hann var svo skemmti­legur, hann var við­kunn­an­legur og jafn­vel eini full­orðni ein­stak­ling­ur­inn sem fim­leika­stúlk­urnar hittu í tengslum við sínar æfingar sem öskr­aði ekki á þær. Hann laum­aði til þeirra mat og nammi meðan þjálf­ar­arnir kröfð­ust þess að þær borð­uðu sem minnst. Hann var hressi gaur­inn sem hrós­aði þeim og stapp­aði í þær stál­inu meðan þjálf­ar­arnir nið­ur­lægðu þær.

Það er einmitt þessi jarð­vegur ógn­ar­stjórnar sem var svo frjór fyrir níð­ing­inn Nassar.

Ljóst er að fim­leika­sam­bandið virð­ist hafa gert fátt til að vernda börn og ljóst er að fjöldi til­kynn­inga um mis­notkun eða grun um slíkt náðu aldrei til yfir­valda frá sam­band­inu heldur stopp­uðu eða var stungið ofan í skúffu hjá Steve Penny, for­manni sam­bands­ins.

Tilkynntu ekki um meint brot til yfirvalda

Penny tók við stjórn­ar­taumum hjá sam­band­inu árið 2005 og stýrði því þar til hann lét af störfum vegna brota Nassars árið 2017. Hann var ráð­inn vegna reynslu sinnar af mark­aðs­setn­ingu íþrótta­við­burða og reynslu af við­skipta­þróun á þeim vett­vangi, ekki vegna reynslu af því að vinna með börnum.

Penny við­ur­kenndi, þegar mál Nassars kom upp, að sam­bandið til­kynnti mál þar sem grunur léki á mis­notkun nán­ast aldrei til yfir­valda, jafn­vel þegar börn ættu í hlut, enda gæti slíkt skaðað þjálf­ara reynd­ust ásak­an­irnar fyrir rest vera ósannar.

Rúmu ári eftir að Penny lét af störfum var hann hand­tek­inn grun­aður um að hafa eytt sönn­un­ar­gögnum sem hefðu getað nýst í máli Nassars. Hann á að hafa fyr­ir­skipað að gögn um fjölda lækn­is­með­ferða á búgarði lands­liðs­þjálf­ar­anna, nokk­urs konar æfinga­búðum, þar sem þjálfun lands­liðs­kvenna fór fram, yrðu flutt á skrif­stofu sína eftir að ásak­anir á hendur Nassar komu fram. Gögnin hafa aldrei fund­ist og því var hann ákærður fyrir að eyða þeim.

Það er áhrifa­ríkt atriði í mynd­inni þegar sýnt er frá nefnd­ar­fundi á Banda­ríkja­þingi þar sem Penny á að sitja fyrir svörum um vinnu­lag innan fim­leika­sam­bands­ins í kjöl­far Nassar-hneyksl­is­ins. Penny ítrekar aðeins að lög­menn hafi ráð­lagt honum að svara ekki og hann hygg­ist nýta sér þann rétt. Þing­maður spyr hvort hann finni ekki til ábyrgðar gagn­vart fim­leika­fólk­inu, börn­unum, sem hann átti að vernda.

Penny svarar því ekki heldur, end­ur­tekur bara að lög­fræð­ingur hafi ráð­lagt sér að segja ekk­ert. Og eng­inn spyr meira, hann bara fær að yfir­gefa sal­inn. Penny var færður í gæslu­varð­hald þegar hann var hand­tek­inn en síðar sleppt gegn trygg­ingu. Enn hefur ekki verið réttað í máli Pennys en hans gæti beðið allt að tíu ára fang­els­is­dómur verði hann fund­inn sekur.

Sagði foreldrunum að rannsókn stæði yfir

Athlete A er fim­leika­konan Maggie Nichols, afreks­kona í fim­leikum, en bæði hún og for­eldrar hennar koma fram í mynd­inni. Hún var sú fyrsta sem sagði frá brotum Nassars, sagði að hann hefði snert sig á óvið­eig­andi hátt. Þjálfari hennar sagði yfir­manni innan fim­leika­sam­bands­ins frá og þaðan barst málið til Steve Penny, sem gerði ekk­ert í því. Hann hélt því samt stöðugt fram við for­eldra hennar að rann­sókn stæði yfir og FBI væri að skoða málið.

Ýmsu er enn ósvarað um það mál og IndyStar bíður enn úrskurðar um hvort það fái gögn um það hvort Steve Penny var í raun að vinna að mál­inu í sam­starfi við FBI eða ekki.

Kvik­mynda­gerð­ar­menn­irnir hafa sagt að myndin sé í raun um fólk sem sé mis­notað af stofnun sem missir sjónar á ábyrgð sinni. Fim­leika­sam­bandið hafi farið að snú­ast um sigra, pen­inga og sæmd. Það hafi misst sjónar á því hlut­verki sínu að vernda iðk­endur en hugsað um það eitt að mark­aðs­setja íþrótt­ina og hetjur hennar en ekki hugað að fórn­ar­kostn­að­inum. Alltum­lykj­andi var draum­ur­inn um að kom­ast á topp­inn, að ná á Ólymp­íu­leik­ana og vinna gull.

Þáttur Karolyi-hjónanna

Bela og Marta Karolyi koma tölu­vert fyrir í mynd­inni. Þau eiga heið­ur­inn að þjálfun margra sig­ur­sælla fim­leika­stúlkna. Þau komu upp­haf­lega til Banda­ríkj­anna frá Rúmeníu eftir að hafa þjálfað sjálfa Nadiu Comaneci. Í fim­leika­heim­inum hafa þau í gegnum tíð­ina verið talin nán­ast goð­sagna­kenndar verur.

Það er talið að miklu leyti þeim að þakka hversu vel banda­ríska kvenna­lið­inu hefur gengið á stór­mótum á síð­ustu ára­tugum. En nú velta margir því fyrir sér hvort verð­mið­inn fyrir þennan árangur hafi verið of hár?

Þeim var treyst og risu fljótt til met­orða í banda­rískum fim­leika­heimi og höfðu umsjón með vali í lands­lið kvenna og þjálfun þess meira og minna frá því á níunda ára­tugnum og þar til þau hættu að vinna fyrir sam­bandið eftir Ólymp­íu­leik­ana í Ríó 2016.

Búgarður þeirra í Texas var oft vett­vangur brota Nassars eins og lýst er í mynd­inni, en þar fóru fram æfinga­búðir hinna bestu. Eftir að fim­leika­of­ur­hetjan Simone Biles tísti um að hún hefði verið mis­notuð af Nassar einmitt á þessum búgarði var ákveðið að loka fim­leika­búð­unum þar.

Hvergi er því haldið fram að þjálf­ara­hjónin hafi vitað af brot­unum eða átt neinn beinan þátt í þeim hryll­ingi sem Nassar kall­aði yfir fim­leika­stúlk­urnar. En það and­rúms­loft sem þau sköp­uðu, meðal ann­ars á fim­leika­bú­garð­inum, kann að hafa verið frjór jarð­vegur fyrir þögn­ina um brotin. Stúlk­urnar voru lok­aðar frá umheim­inum, engir for­eldrar fengu að koma nærri, því var stýrt hvað þær borð­uðu, þær þurftu að pína sig í gegnum meiðsli. Ef þær voru svangar var ekki hlustað á það, ef þær voru meiddar var þeim ekki trúað. Hvernig átti þeim að detta í hug að segja frá því að lækn­ir­inn snerti þær á óvið­eig­andi hátt? Þeim datt lík­lega ekki í hug að neinn gerði neitt í því - sem var líka raunin eins og Maggie Nichols fékk að reyna.

Fangelsun Larry Nassars ekki endapunktur

Athlete A dregur ýmsar hliðar Nassar máls­ins fram og minnir áhorf­and­ann á að mál­inu er ekki lokið þótt Nassar sé kom­inn bak við lás og slá.

Þrátt fyrir að því hafi verið fagnað þegar Larry Nassar var stungið í stein­inn þá er ljóst að tölvu­ert vantar uppá að rétt­læti hafi náð fram að ganga í mál­inu. Hvaða dóm hlýtur Steve Penny? Verður hægt að draga hann til ábyrgðar og refsa fyrir að hafa ekki greint yfir­völdum frá ásök­unum Maggie Nichols og fleiri um mis­notkun Nassars? Og hvað með Karolyi-hjónin, verður þeirra þáttur í mál­inu rann­sak­aður frekar?

Að auki hafa þjálf­arar við Michigan-háskóla verið ákærðir fyrir að hafa ekki til­kynnt um brot Nassars sem iðk­endur greindu þeim frá, en enn hafa ekki fallið dómar í þessum málum.

Myndin Athlete A hefur frá því hún kom út fyrir rúmum mán­uði nú þegar haft tölu­verð áhrif. Í Ástralíu hafa fim­leika­konur stigið fram og lýst ógn­ar­stjórn á æfingum og and­legu ofbeldi sem land­lægu í íþrótta­grein­inni þar í landi og úrbótum verið heitið af ástr­alska fim­leika­sam­band­inu. Svipað er uppi á ten­ingnum í Bret­landi, þar stíga fim­leika­konur fram ein af annarri á sam­fé­lags­miðlum og lýsa ástandi sem um margt lík­ist lýs­ingum banda­rísku fim­leika­kvenn­anna á harð­ræði og slæmri fram­komu full­orðna fólks­ins.

Hvort fleiri verði dregnir til ábyrgðar verður tím­inn að leiða í ljós. En myndin er áminn­ing um það að þótt Ólymp­íugull sé eft­ir­sókn­ar­verður gripur að hafa um háls­inn þá eru ótal brotnar barns­sálir ekki fórn­ar­kostn­aður sem nein þjóð ætti að sætta sig við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár