Auðlindaákvæðið „ekki bara glatað, það er stórhættulegt“

For­sæt­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar tók­ust á um nýja auð­linda­á­kvæðið á þingi í dag. Ágrein­ing­ur­inn felst ekki í breyt­ingum á stjórnar­skrá sem slíkum heldur þessu til­tekna ákvæði.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar hvetur Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra til að nýta sína póli­tísku inn­eign til að „fá hennar kæru vini í Sjálf­stæð­is­flokknum til að skipta um skoðun“ varð­andi nýja auð­linda­á­kvæðið sem til stendur að setja í stjórn­ar­skrána ef sam­komu­lag næst um málið. Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þing­mað­ur­inn bað for­sæt­is­ráð­herra að fá Sjálf­stæð­is­menn með sér í lið til að gera auð­linda­á­kvæðið alger­lega ótví­rætt; að tíma­bundna samn­inga þyrfti til þess að vera með afnot og aðgang að auð­lindum þjóð­ar­innar. „En hún vill ekki nýta þessa inn­eign sína í þetta, gott og vel,“ sagði Þor­gerður Katrín um for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín sagði að fyrsta umræða, þegar mælt var fyrir mál­inu, hefði verði mál­efna­leg og að hún átt­aði sig á því að ekki væri sam­staða um ákvæðið. Ekki stæði á henni í þessu máli og hefði hún sagt það marg­ít­rekað að hún teldi mjög mik­il­vægt að ná fram ein­hverjum breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.

Hefði viljað sjá stærri skref

Þor­gerður Katrín sagði að skyn­sam­legt væri að taka að ein­hverju leyti stjórn­ar­skrár­breyt­ingar í gegnum þingið og sýna það að þingið gæti breytt stjórn­ar­skránni. „Ég hefði viljað sjá stærri og meiri skref, það er til dæmis ekk­ert laun­ung­ar­mál að við deildum um jafnt vægi atkvæða. En það var sam­komu­lag um það í upp­hafi að fjalla næst um það. En þegar rök­ræðukönn­unin sem gerð var sýndi ótví­rætt fram á vilja þjóð­ar­innar til að breyta því fyr­ir­komu­lagi hefði ég gjarnan viljað hafa það með. En gott og vel, það varð ekki.“

Skilaboð þing­manns­ins til Katrínar eru þau að Viðreisn standi ekki í vegi fyrir því að sumar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá fari í gegnum þingið.

„Hins vegar er líka meiri­hluti fyrir því hjá rík­is­stjórn­inni að ýta áfram auð­linda­á­kvæð­inu. Gott og vel. Ef það kemur hingað þá ætla ég líka að segja að ég mun ekki fara í mál­þóf varð­andi það ömur­lega ákvæði, heldur ein­fald­lega láta þjóð­ina taka afstöðu til þess þegar þar að kemur,“ sagði hún og hvatti Katrínu til dáða í þessum efnum og und­ir­strik­aði að hún vildi ekki að þessi mál yrðu föst í nefnd. „Ég held að við eigum að reyna að gera allt til þess að taka skref í þessu skyni og afgreiða að minnsta kosti hluta þeirra.“

Samhljómur um sumar breytingar

Katrín svar­aði og sagði að þegar hún mælti fyrir þessu máli í febr­úar hefði henni fund­ist fyrsta umræða um frum­varpið vera góð umræða. „Mér fannst hún mál­efna­leg. Ég dró það út úr þeirri umræðu að það kynni að vera sam­hljómur um ýmsar þær breyt­ingar sem lagðar eru til í frum­varp­inu þó að það sé aug­ljós­lega ekki sam­hljómur um allar breyt­ingar.“

Hún sagð­ist auð­vitað ekki vera sam­mála Þorgerði Katrínu um auð­linda­á­kvæðið en hún telur það einmitt vera skýrt og „snú­ast um grund­vall­ar­regl­urnar sem við viljum setja um auð­linda­nýt­ingu í sam­fé­lag­inu. Mér finnst þetta vera gott ákvæði. Ég átta mig hins vegar á því að það er ekki sam­staða um það. Ég veit að kallað hefur verið eftir því í hátt­virt stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hvort unnt sé að ná saman um ein­hver ákvæði, hvort það séu ein­hver ákvæði sem hátt­virtir þing­menn sem þar sitja telja flöt á að sam­ein­ast um, þó að það sé ekki allt. Þá er það auð­vitað hægur vandi fyrir nefnd­ina að afgreiða hluta máls­ins í sam­stöðu og skilja þá önnur mál eftir til frek­ari úrvinnslu síðar meir. Ég hef hvatt til þess ef slíkur vilji er fyrir hendi.“

Sagði hún að sú pressa sem skap­ast á afgreiðslu stjórn­ar­skrár­breyt­inga í aðdrag­anda kosn­inga gerði fólki mjög erfitt fyrir að ná saman um mál sem jafn­vel væri hægt að ná saman um undir öðrum kring­um­stæðum. „Þannig að ég ætla bara að fá að lýsa þeirri skoðun minni að ég tel, með þennan marg­breyti­lega þing­heim og fjölda flokka, að þetta verk­efni muni reyn­ast okkur erfitt ef við viljum reyna að ná fram breyt­ingum í sam­stöðu, sem ég held að sé vilji lang­flestra hér inni.“

Tækifæri til að taka ákveðin skref

Þor­gerður Katrín kom aftur í pontu og benti á að grund­vallará­grein­ingur þeirra á milli væri varð­andi þetta auð­linda­á­kvæði. „Ég tel það ekki bara glatað, það er stór­hættu­legt. Ég vil miklu frekar hvetja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra og þing­mann Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, Katrínu Jak­obs­dóttur, til að nýta sína póli­tísku inn­eign til að fá hennar kæru vini í Sjálf­stæð­is­flokknum til að skipta um skoðun, segja við þá: Kæru vinir. Breytum þessu og höfum þetta alger­lega ótví­rætt, að það þurfi tíma­bundna samn­inga til þess að vera með afnot og aðgang að auð­lindum þjóð­ar­innar. Gerum þetta ótví­rætt, kæru vinir. En hún vill ekki nýta þessa inn­eign sína í þetta, gott og vel.“

Vildi hún und­ir­strika að hún teldi mjög mik­il­vægt að þing­menn fengju tæki­færi til að ræða stjórn­ar­skrána áfram í þing­sal.

„Ég tel tæki­færi til að taka ákveðin skref. Já, það á víst eftir að vinna ákveðna þætti og mér hefði þótt meiri bragur á því ef nefndin hefði verið komin lengra. En ég held engu að síður að það sé enn svig­rúm og enn tæki­færi einmitt til að taka ein­hver skref varð­andi stjórn­ar­skrána í sæmi­legri sátt og þá er ég að tala um íslensku­á­kvæðið, umhverf­is­á­kvæði og síðan hinn títt­nefnda II. kafla stjórn­ar­skrár sem er kenndur við for­set­ann.“

Dapurlegt að stjórnarskrá Íslands sé þögul með öllu um umhverfis- og náttúruvernd

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að ekki stæði á henni í þessu máli og hefði hún sagt það marg­ít­rekað að hún teldi mjög mik­il­vægt að ná fram ein­hverjum breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.

„Ég tel margar þeirra breyt­inga sem eru lagðar þarna til þess eðlis að um þær ætti að geta verið sam­staða. Auðvitað er dap­ur­legt að stjórn­ar­skrá Íslands sé til dæmis þögul með öllu um umhverfis- og nátt­úru­vernd, ein stjórn­ar­skráa á Norð­ur­löndum. Ef stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd næði saman um að afgreiða slíkt ákvæði þá myndi ég vera full­kom­lega til í þá umræðu sem og þær breyt­ingar sem hátt­virtur þing­maður vísar hér til og þær þurfa ekki allar að koma til atkvæða ef fólk metur þær ekki allar skyn­sam­legar.

En þó hefur mér heyrst að það geti verið tölu­verður sam­hljómur um ýmsar þær breyt­ingar sem eru lagðar til í for­setakafl­anum, ekki allar, gott og vel. Ég hef hvatt fram­sögu­mann máls­ins og for­mann nefnd­ar­innar til að vinna að því einmitt að kanna það alger­lega til botns hvort ekki sé unnt að ná sam­stöðu um ein­hver ákvæði þannig að þetta verk­efni hreyf­ist og þannig að stjórn­ar­skráin verði til dæmis ekki þögul áfram um umhverfis- og nátt­úru­vernd sem er eitt stærsta mál sam­tím­ans,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár