Eigið fé Stoða í lok síðasta árs var 32 milljarðar – Hefur meira en tvöfaldast á fjórum árum

Stoðir er stærsti eig­andi Símans og Kviku og stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion banka. Félagið hagn­að­ist um 7,6 millj­arða króna í fyrra og eigi fé þess hefur auk­ist um 18,5 millj­arða króna á fjórum árum.

Jón Sigurðsson er á meðal stærstu eigenda Stoða og settist í stól forstjóra félagsins fyrr í þessum mánuði.
Jón Sig­urðs­son er á meðal stærstu eig­enda Stoða og sett­ist í stól for­stjóra félags­ins fyrr í þessum mán­uði. Mynd: Síminn

Stoðir, einn stærsti einka­fjár­festir lands­ins, hagn­að­ist um 7,6 millj­arða króna á árinu 2020. Eigið fé félags­ins í lok síð­asta árs var 31,8 millj­arðar króna. Stoðir eru nán­ast skuld­laust félag. Alls nema skuldir þess 42 millj­ónum króna, eða 0,1 pró­senti af bók­færðu virði eigna félags­ins.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Stoða fyrir árið 2020. Þrátt fyrir góða afkomu og mik­inn hagnað lagði stjórn Stoða ekki til að beinn arður yrði greiddur út úr félag­inu vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Hagn­að­ur­inn getur þess í stað nýst í nýjar fjár­fest­ingar.

Langstærsti hluti eigna Stoða er bund­inn í skráðum hluta­bréfum í þremur íslenskum félögum. Virði þeirra félaga var bók­fært á 25,8 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og virði eigna­flokks­ins jókst alls um rúm­lega 8,3 millj­arða króna milli ára.

Alls hefur eigið fé Stoða auk­ist um 18,5 millj­arða króna frá árs­lokum 2016.

Ekki upplýst um kaupverðið

Vorið 2017 keypti hópur fjár­festa ráð­andi hlut í Stoð­u­m af þrota­búi Glitnis, síðar Glitnir HoldCo, banka sem hafði haldið á hlutnum frá því að fjár­fest­inga­fé­lagið var gert upp í kjöl­far banka­hruns­ins. Það hét áður FL Group og var á meðal stærstu eig­enda Glitnis.

Þegar þessi sala átti sér stað áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoð­um. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­er­um og hafa ávaxt­ast með þeim hætti að eigið féð er nú næstu næstum 14 millj­örðum krónum hærra.

Glitnir Holdco hefur aldrei viljað veita upp­lýs­ingar um söl­una. Á meðal þess sem Kjarninn hefur spurt félagið að vegna hennar er á hvað hlut­ur­inn hafi verið seldur.

Jón orðinn forstjóri á ný

Þessi eign­ar­hlutur í Stoðum er nú inni í félag­inu S121 ehf. stærsta eig­anda Stoða með 55,3 pró­sent eign­ar­hlut. Stærsti eig­andi S121 ehf. er félagið Helg­ar­fell ehf. sem er í eigu Jóns Sig­urðs­sonar, for­stjóra Stoða, Bjargar Fenger eig­in­konu hans og fjöl­skyldu hennar. Á meðal ann­arra eig­enda Helg­ar­fells er Ari Fenger, for­maður Við­skipta­ráðs.

Jón hefur verið stjórn­ar­for­maður Stoða und­an­farin ár en var fyrr í þessum mán­uði ráð­inn for­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins. Sigurjón Pálsson tók við sem stjórn­ar­for­maður sam­hliða. Þar með er Jón kom­inn aftur í stól for­stjóra sem hann sett­ist fyrst í í des­em­ber 2007, þá ekki orð­inn þrí­tugur.

[adspot]Aðrir stórir eig­endur í S121 ehf. eru margir hverjir ein­stak­lingar með tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn.

Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örvari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. M ehf., félag tengt Þor­steini M. Jónssyni, sem var á meðal lyk­il­leik­enda í FL Group á árum áður, á líka hlut í S121 ehf.

Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, stóran hlut.

Lands­bank­inn átti 12,1 hlut í Stoðum sem var seldur í des­em­ber í fyrra á 3,3 millj­arða króna. Mótás, félag í eigu Bergþórs Jóns­sonar og Fritz Hendriks Berndsen, keypti stærstan hluta hans, eða fyrir rúman millj­arð króna. Á meðal ann­arra fjár­festa sem keyptu af Lands­bank­anum er eign­ar­halds­fé­lagið P1211 ehf., sem er í eigu Lárusar Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitnis, og Ágústu Mar­grétar Ólafs­dóttur, eig­in­konu hans. Þau keyptu um eitt pró­sent hlut.

Þá bættu hluti fyrri hlut­hafa við sig eign­ar­hlutum.

Eiga stóran hlut í tveimur bönkum

Stoðir er einn umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði í dag. Það er til að mynda stærsti ein­staki hlut­hafi Símans með 15,41 pró­sent eign­ar­hlut.

[links]Í fjár­festa­kynn­ingu vegna upp­gjörs Símans fyrir árið 2020 kom fram að lagt yrði til við aðal­fund að færa niður eigið fé Símans um átta millj­arða króna. Til við­bótar átti að greiða arð upp á hálfan millj­arð króna vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Hlut­hafar Símans munu því fá 8,5 millj­arða króna greidda út úr félag­inu í ár. Hlutur Stoða í þeirri greiðslu verður um 1,3 millj­arðar króna.

Stoðir eru líka stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka, þess sem nú end­ur­fjár­magnar skuldir Símans, en þar hefur verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bank­anum und­an­farin ár. Á næstu árum er stefnt að því að greiða um 50 millj­arða króna til hlut­hafa bank­ans. Á þessu ári munu arð­greiðslur verða þrír millj­arðar króna og end­ur­kaup á eigin bréfum 15 millj­arðar króna. Hlut­deild Stoða í þeirri útgreiðslu er um 900 millj­ónir króna.

Eftir að sam­ein­ing Kviku, TM og Lykils gekk í gegn eru Stoðir líka stærsti eig­andi þess banka með 9,03 pró­sent hlut.

Þessar þrjár eignir eru yfir 90 pró­sent af eignum Stoða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár