Til stendur að tappa 8,5 milljörðum króna af Símanum í ár og skila til hluthafa

Salan á Sensa og breyt­ing á fjár­magns­skipan hefur gert það að verkum að Síminn ætlar að greiða hlut­höfum sínum hálfan millj­arð króna í arð og kaupa eigin bréf af þeim fyrir átta millj­arða króna á þessu ári.

Síminn hefur verið skráður á markað frá haustinu 2015. Orri Hauksson er forstjóri félagsins.
Síminn hefur verið skráður á markað frá haustinu 2015. Orri Hauksson er for­stjóri félags­ins. Mynd: Nasdaq Iceland

Síminn ætlar að breyta fjár­magns­skipan sinni með því að dótt­ur­fé­lagið Míla verður látið ganga frá eigin fjár­mögnun frá Íslands­banka og móð­ur­fé­lagið sjálft er að ganga frá end­ur­fjár­mögnun frá Arion banka. Við þessar breyt­ingar, og söl­una á Sensa til Crayon Group í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins, sem skil­aði Símanum sölu­hagn­aði upp á 1,7 millj­arða króna, losnar um fjár­muni sem félagið telur að nýt­ist sér ekki í dag­legum rekstri.

Í fjár­festa­kynn­ingu vegna upp­gjörs Símans fyrir árið 2020 kemur fram að hluta þeirra fjár­muna verði komið til hlut­hafa og til stendur að leggja til­lögu fyrir aðal­fund um að færa niður eigið fé Símans um átta millj­arða króna. Til við­bótar á að greiða arð upp á hálfan millj­arð króna vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Hlut­hafar Símans munu því fá 8,5 millj­arða króna greidda út úr félag­inu í ár. Samhliða mun eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins lækka úr 57,2 í um 44 pró­sent.

Í fyrra stóð yfir und­ir­bún­ingur á breyttri verka­skipt­ingu milli Símans og dótt­ur­fé­lags­ins Mílu, sem heldur utan um fjar­skipta­inn­viði félags­ins. Sú breytta verka­skipt­ing tók gildi í byrjun þessa árs. Á meðal þess sem fólst í breyt­ing­unni var að Míla tók yfir net­rekstur sem áður var innan vébanda Símans.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að fjár­festar hefðu lagt fram óform­legar fyr­ir­spurnir til Sím­ans um mögu­leg kaup á Mílu en að engar ákvarð­anir hefðu verið teknar um söl­una. Ljóst er að ef Míla yrði seld væri hægt að skila enn meiri fjár­munum úr rekstri Símans til hlut­hafa félags­ins.

Stoðir stærsti hluthafinn

Stærsti ein­staki hlut­hafi Símans er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem á 14,86 pró­sent hlut í félag­inu. Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða, er einnig stjórn­ar­for­maður Símans. Miðað við núver­andi eign­ar­hlut geta Stoðir vænst að fá tæp­lega 1,3 millj­arða króna út úr Símanum í ár. Aðrir helstu eig­endur Símans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Stoðir eru líka stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka, þess sem nú end­ur­fjár­magnar skuldir Símans, en þar hefur verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bank­anum und­an­farin ár. Á næstu árum er stefnt að því að greiða um 50 millj­arða króna til hlut­hafa bank­ans. Á þessu ári munu arð­greiðslur verða þrír millj­arðar króna og end­ur­kaup á eigin bréfum 15 millj­arðar króna. Hlut­deild Stoða í þeirri útgreiðslu er um 900 millj­ónir króna.

Tekjur jukust í erfiðu árferði

Tekjur Símans juk­ust um 868 millj­ónir króna í fyrra þrátt fyrir það sem stjórn­endur félags­ins lýsa í kynn­ingu að hafi verið „erfitt árferði“ vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Tekjur af sjón­varps­þjón­ustu juk­ust mest, alls um 632 millj­ónir króna.

[links]Þar mun­aði mest um tekjur af Premium-áskrift Sjón­varps Símans, sem juk­ust um hálfan millj­arð króna, og auknar aug­lýs­inga­tekjur, sem juk­ust um tæpar 100 millj­ónir króna. Flestir sam­keppn­is­að­ilar Símans sáu aug­lýs­inga­tekjur sínar drag­ast umtals­vert saman vegna heims­far­ald­urs­ins. Tekjur af upp­lýs­inga­tækni juk­ust líka umtals­vert á milli ára og launa­kostn­aður var lækk­aður um 300 millj­ónir króna milli ára, meðal ann­ars með fækkun stöðu­gilda um 50.

Á móti lækk­uðu tekjur af reiki­gjöldum, sem ferða­menn greiða að uppi­stöðu, um 400 millj­ónir króna í fyrra. Í fjár­festa­kynn­ingu Símans er sér­stak­lega tekið fram að félagið hafi ekki nýtt sér nein úrræði sem stjórn­völd buðu upp á vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, enda ekk­ert í rekstri félags­ins sem virð­ist hafa kallað á slíka nýt­ingu.

Hagnaður Símans á árinu 2020 var 2,9 millj­arðar króna sem er nán­ast sami hagn­aður og félagið skil­aði árinu áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár