Ekkert gefið upp um sölu á hlut Glitnis í Stoðum

For­stjóri Glitnis HoldCo var ekki til­bú­inn að svara spurn­ingum um sölu á hlut félags­ins í Stoðum.

Hópur íslenskra fjárfesta hefur keypt hlut Glitnis í Stoðum.
Hópur íslenskra fjár­festa hefur keypt hlut Glitnis í Stoðum. Mynd: EPA

Ingólfur Hauksson, for­stjóri Glitnis HoldCo, seg­ist ekki geta tjáð sig um það á hvaða verði Glitnir seldi hlut sinn í Stoðum, eða yfir­höfuð um við­skiptin.

Þetta kemur fram í svari hans við fyr­ir­spurn Kjarnans. Eins og greint var frá í Mark­aðnum fyrr í vik­unni þá hefur hópur íslenskra fjár­festa keypt ríf­lega helm­ings­hlut í Stoðum af Glitni og erlendum eig­endum í eig­enda­hópi félags­ins.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær þá er félagið PAI Partners SAS, sem er fjár­fest­inga­fé­lag sem ein­blínir á Evr­ópu­mark­að, sagt vera að und­ir­búa yfir­tökutil­boð í hol­lenska drykkju­vöru­fram­leið­and­ann Refresco sem íslenska félagið Stoðir hf., áður FL Group, á ennþá 8,8 pró­sent hlut í.

Fyrr í mán­uð­inum var til­boði þess upp á 1,4 millj­arða evra neit­að, en sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg gæti end­ur­nýjað til­boð hljóðað upp á 1,62 millj­arða evra, eða sem nemur um 182 millj­örðum króna.

Miðað við það verð er 8,8 pró­sent hlutur 16,3 millj­arða króna virð­i. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir síð­asta ár, sem lagður var fram á aðal­fundi 21. apríl síð­ast­lið­inn, var hlutur Stoða met­inn á tæp­lega 13 millj­arða.

Auk TM sam­anstendur kaup­enda­hóp­ur­inn af félögum á vegum Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, Ein­ari Erni Ólafs­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs, Örv­ari Kjærne­sted, fjár­festi og stjórn­ar­manni í TM, og Magn­úsi Ármanni Jóns­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stjórn­ar­manni í FL Group. Jón hefur setið í stjórn Refresco frá árinu 2009 og þekkir því félagið vel.

Refresco er skráð á markað í Hollandi og er mark­aðs­verð þess, miðað við lokun mark­aða í gær, 1,44 millj­arðar evra, um 167 millj­arðar króna.

Fyr­ir­spurn Kjarnans, vegna þess­ara við­skipta, til for­stjóra Glitnis HoldCo var svohljóð­andi: Hvenær seldi Glitnir hlut sinn í Stoðum, og á hvað var hlut­ur­inn seldur?

Svar Ingólfs Hauks­sonar var svona: „Ég geri ráð fyrir að það komi ekki á óvart að Glitnir getur ekki tjáð sig um sölu á ein­stökum eignum félags­ins, hvorki hvort til­tekin eign hafi verið seld eða á hvaða verði.“

Íslensku bank­arnir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, eiga sam­tals um 32 pró­sent hlut í Stoðum. Samkvæmt síð­asta árs­reikn­ingi átti Credit Suisse bank­inn 8,4 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu og JP Morgan 7,3 pró­sent.

Á aðal­fund­inum 21. apríl tók ný stjórn við, en í henni sitja Jón Sig­urðs­son, Iða Brá Bene­dikts­dóttir, frá fyr­ir­tækja­sviði Arion banka, og Örva Kjærne­sted.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár