Sigurður Ingi ekki ánægður með leka á WOW-skýrslu Ríkisendurskoðunar

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra vill vita hvort það þurfi ekki að taka upp nýja verk­lags­reglu um trúnað þegar skýrslur sem trún­aður er á leka út.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, bað um að fá að taka til máls um fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi í dag. Í ræðu sinni setti Sigurður Ingi fram fyr­ir­spurn og ábend­ingu til for­seta Alþingis og for­sætis­nefndar vegna skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um fall WOW air og hlut­verk Sam­göngu­stofu og Isavia í því falli. Umræddri skýrslu var lekið til fjöl­miðla sem birtu ítar­legar fréttir úr henni í gær áður en trún­aði af henni var aflétt.

Ráð­herr­ann spurði hvort ein­hverjar verk­lags­reglur væri um trúnað í þing­inu og setti í kjöl­farið fram þá ábend­ingu að ef skýrslur væru að leka út, „hvort það þurfi þá ekki að taka upp aðra verk­lags­reglu um að þær séu birtar um leið og þær ber­ast þing­inu þannig að aðrir geti líka tekið þátt í þeirri umræðu.“

Svört skýrsla

Skýrslan var kynnt á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á mánu­dag og til stóð að hún yrði tekin fyrir á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar, sem bað um gerð hennar, í þess­ari viku. Það hefur frest­ast fram á þriðju­dag í næstu viku og því er enn trún­aður á skýrsl­unni.

Kjarninn birti í gær, fyrstur allra miðla, ítar­lega umfjöllun um skýrsl­una. Skýrslan fer hörðum orðum um fram­göngu Sam­göngu­stofu á meðan að WOW air háði dauða­stríð sitt, sagði stofn­un­ina meðal ann­ars hafa haft við­skipta­lega hags­muni flug­fé­lags­ins að leið­ar­ljósi í ákvörð­un­ar­töku, hafa veitt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu mis­vísandi upp­lýs­ingar og ekki hafa beitt þeim úrræðum sem það bjó yfir og átti að gera.

Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans hér.

Sigurður Ingi sagði á þingi í dag að þrátt fyrir að á skýrsl­unni væri trún­aður virt­ist svo vera að ein­stakir þing­menn gætu farið í fjöl­miðla og tjáð sig um hana. Þeir þing­menn hefðu þá vænt­an­lega séð skýrsl­una, en ráð­herr­ann sagði að hún hefði enn ekki borist til síns ráðu­neytis né und­ir­stofn­ana þess sem fjallað er um í henni. „Ég get sagt sem sam­göngu­ráð­herra að ég myndi gjarnan vilja tjá mig um þessa skýrslu því að ég hef séð hana á vinnslu­stigi. Ég hef ekki séð end­ann á henni en það var margt jákvætt sem þar var fjallað um stjórn­sýslu sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins. Og mér þætti það mjög sér­kenni­legt að þingið skuli hafa það verk­lag uppi að það sé ein­hver trún­aður á skýrslu, sem virð­ist vera hægt að tala um af ein­stökum þing­mönnum, en allir aðrir geta ekki tjáð sig um hana. Það getur ekki gagn­ast opin­berri, skyn­sam­ari, gegn­særri umræðu í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að svo sé.

Hvatti ráðherra til að lesa fjölmiðla

Sá þing­maður sem hefur haft sig mest frammi í gagn­rýni á stofn­anir og ráðu­neyti vegna skýrsl­unnar er Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og gagn­rýni Sigurðar Inga var aug­ljós­lega beint að henni.

[links]Hún kom í pontu á eftir Sigurði Inga og sagð­ist hafa tjáð sig um fréttir sem birtar hefðu verið um skýrsl­una í fjöl­miðlum. Þær hefðu verið ítar­legar. Sjálf sitji hún hvorki í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd né umhverfis- og sam­göngu­nefnd og hafi því ekki fengið skýrsl­una þar. „Ég bara hvet ráð­herra til að lesa fjöl­miðla. Því þar er margt að finna sem ég held að hæst­virtur ráð­herra ætti að líta á og taka alvar­lega.“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í umræð­unum að það væri ekki til fyr­ir­myndar að skýrslan hefði lekið út. Það væri hins vegar mjög sér­kenni­leg staða sem við þing­menn væru komnir í ef þeir gætu ekki tjáð sig um það efni sem birt­ist í fjöl­miðl­unum hverju sinni. „Mér finnst það und­ar­legt að hæst­virtur ráð­herra skuli hafna því að mæta í við­tal og ræða það efni sem hefur lekið. Síðan er það sjálf­stætt verk­efni að koma í veg fyrir að skýrslur leki yfir­leitt. Þar held ég að eng­inn sé haf­inn yfir grun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wowair

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár