WOW air aftur í loftið í október

End­ur­reist WOW air mun fljúga fyrstu ferð sína í næsta mán­uði. Banda­rískt fyr­ir­tæki hefur keypt eignir úr þrota­búi flug­fé­lags­ins.

WOW air mun hefja lág­far­gjalda­flug­rekstur til Banda­ríkj­anna og Evrópu í næsta mán­uði. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá USAaerospace Associ­ates LLC sem samið hefur um kaup á eignum úr þrota­búi WOW air. Fyrsta flugið er áformað milli Dulles flug­vallar í Washington í Banda­ríkj­unum og Kefla­vík­ur­flug­vallar í októ­ber. 

Stærsti hlut­hafi USA­er­ospace Associ­ates LLC Michele Roos­evelt Edwards, einnig þekkt sem Michele Ballarin. Hún hafði áður gert til­raun, og náð samn­ingum um, að kaupa eignir WOW air.

Hún greindi frá þessu á blaða­manna­fundi sem nú stendur yfir á Grillinu á Hótel Sögu. Áætlanir nýrra eig­enda að WOW air vöru­merk­inu gera ráð fyrir vax­andi umsvifum þegar líður á kom­andi vetur og aukin áhersla verður lögð á þátt vöru­flutn­inga í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

[adspot]Kaup­verðið á þeim eignum sem USAaerospace Associ­ates LLC kaupa er trún­að­ar­mál og Ballarin vildi ekki gefa upp hvert það er á blaða­manna­fund­inum. Hún sagði hins vegar að fyr­ir­tæki hennar væri mjög fjár­hags­lega sterkt, að þar væri engar skuldir heldur ein­ungis eigið fé. Það væri því nægi­lega sterkt til að standa á bak­við WOW air til lang­frama. Kaupin fara fram í gegnum íslenskt félag.

Höf­uð­stöðvar WOW air verða á Washington Dulles flug­vell­inum í Banda­ríkj­unum en félagið verður með aðstöðu á flug­vell­inum í Keflavík og með skrif­stofu í Reykja­vík.

Ballarin sagði þó að ekki lægi fyrir hvar til að mynda skatta­legt heim­il­is­festi WOW air yrði. Það yrði fundið út úr því í nán­ustu fram­tíð.

Munu flytja sjávarfang

Ballarin segir í frétta­til­kynn­ingu að end­ur­vak­inn flug­rekstur WOW air skipti almenn­ing á Íslandi og í Banda­ríkj­unum miklu máli og að hann muni efla bæði menn­ing­ar­leg og við­skipta­leg tengs milli Reykja­víkur og Washington. „Við hyggj­umst auka umsvifin í far­þega­flug­inu með fleiri flug­vélum áður en sum­arið heilsar okkur. Frá fyrsta degi í vöru­flutn­ing­unum, sem einnig munu hefj­ast á næstu vikum, munum við leggja mik­inn metnað í vand­aða þjón­ustu á sviði vöru­flutn­inga með ferskt íslenskt sjáv­ar­fang á Banda­ríkja­markað.“

Í stjórn­enda­teymi WOW air verða meðal ann­ars Charles Celli, rekstr­ar­stjóri hjá USAerospace. Hann starf­aði meðal ann­ars í stjórn­un­ar­stöðu hjá Boeing áður fyrr en WOW air not­að­ist ein­vörð­ungu við Airbus vélar á þeim tíma sem Skúli Mogensen átti og rak félagið.

Reyndi áður

WOW air fór í þrot 28. mars 2019 eftir margra mán­aða dauða­stríð sem fór fram fyrir opnum tjöldum.

Í skýrslu skipta­­stjóra WOW air, sem kynnt var fyrir kröfu­höfum félags­ins í ágúst, kom fram að þrotabú félags­­ins væri enn í við­ræðum við nokkra aðila um sölu á vöru­­merk­inu WOW air, lénum félags­­ins, bók­un­­ar­­vél og ýmsu lausafé sem teng­ist rekstri félags­­ins. „Þær við­ræður ganga ágæt­­lega og von­­ast skipta­­stjórar til þess að ljúka samn­ingum um sölu þeirra eigna,“ sagði í skýrsl­unn­i.

Eini áhuga­­sami kaup­and­inn sem greint hafði verið frá opin­ber­­lega á þeim tíma var Michelle Ball­­­ar­in.

Hún gerði kaup­­samn­ing um valdar eignir úr þrota­­búi WOW air í júlí. Hún kom svo í við­­­tal við Við­­­skipta­Mogg­ann skömmu síðar og þar full­yrti hún að búið væri að tryggja millj­­­arða króna til rekst­­­urs nýs flug­­­­­fé­lags á grunni WOW air sem ætti að duga næstu tvö árin. 

[adspot]Í lok júlí var kaup­unum hins vegar rift vegna þess að síend­­­ur­­­tekið hafði dreg­ist að borga fyrstu greiðslu sam­­­kvæmt kaup­­­samn­ingi sem gerður var milli félags Ball­­­arin og þrota­­­bús­ins. Heild­­­ar­um­­­fang við­­­skipt­anna átti að vera ríf­­­lega 180 millj­­­ónir króna og sú greiðsla að greið­­­ast í þremur nokkuð jöfnum áföng­­­um.

Ball­­­arin var svo stödd hér á landi á ný um miðjan ágúst. Frétta­vef­­ur­inn Túrist­i.is, sem sér­­­hæfir sig í ferða­­­þjón­ust­u­tengdum frétt­u­m, greindi þá frá því að erindi hennar væri að að reyna aftur við stofnun nýs flug­­­fé­lags á grunni WOW air. Hér­­­­­lendis voru full­­­trúar hennar almanna­teng­ill­inn Gunnar Steinn Páls­­­son og lög­­­­­mað­­­ur­inn Páll Ágúst Ólafs­­­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wowair

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár